Ég er alveg búin að fá nóg af rigningu!
Rigningarskýin hanga þunglyndisleg rétt yfir húsþökunum og gusa úr sér annað slagið. Það er haust í loftinu, en við höfum ekkert komist í berjamó. Kannski rignir berin niður í bókstaflegri merkingu áður en af því verður. Þvotturinn fer beint í þurrkarann og þvottavélin hefur ekki við að þvo drullugalla af leikskólabarninu.
Fjósamaðurinn skrapp í bæinn í gærkvöldi til að spila smástund á fínasta veitingahúsi Akureyrar. Mamma straujaði sparifötin og fann axlaböndin sem ekki hafa verið brúkuð síðan í vor. (Þeir voru í einhverskonar "seventees" búningum á Handverkinu). Þeir fengu svo að velja hvort þeir fengju borgað í peningum eða kvöldverði og völdu að sjálfsögðu hið síðarnefnda. "En frábært" sagði mamma og drengurinn leit á hana og sagði svo hægt og rólega að foreldrum væri ekki boðið með...
Hann er að verða fullorðinn litli drengurinn minn.....
Á morgun eru nefnilega 16 ár síðan þeir fæddust glókollarnir. Það sem tíminn er fljótur að líða.

Ummæli
Skrifa ummæli