Fara í aðalinnihald

fiskidagurinn mikli

Við heimsóttum Dalvík í dag eins og tugþúsundir annarra Íslendinga og þar rakst ég á plakatið á myndinni hér fyrir neðan. Við smökkuðum á fiski og hlustuðum og horfðum á tónlistarflutning (á milli þess sem auglýst var eftir týndum foreldrum og börnum). Og hittum ótalmargt fólk sem við þekktum og misstum af enn fleiri.
JÓH fór með bræðrum sínumí gærkvöldi á súpurölt um Dalvíkina. Þeir fóru heldur seint af stað þannig að litla fengu þeir súpuna en ýmislegt annað víst...

Merkilegt hvað það er alltaf gott veður á fiskidaginn mikla, það er varla einleikið...

Ummæli