Eftir útilegur taka alltaf við nokkrir dagar sem fara í það að þvo þvott og ganga frá dótinu. Við höfum nú verið meira og minna í "útilegu" í sumar þannig að töskur og matarkistur eru hættar að fara inn í skáp á milli ferða.
Í dag er þvottadagur á heimilinu. JÓH fór úteftir í morgun en JG ætlar að njóta síðasta dagsins í sumarfríinu heima og fara kannski í hjólatúr til afa og ömmu. Hann byrjar á leikskólanum á morgun og hlakkar til.
Fyrir utan útilegumanninn okkar sem var á Stuðmannatónleikum í R-vík á laugardagskvöldið mættum við fjölskyldan öll í afmæli stórbóndans á Hofsá.
Þegar Jóhann Gylfi vissi að hann myndi fá að koma í afmælisveisluna ákvað hann að hann ætlaði að gefa Trausta afmælisgjöf. Við fórum í leiðangur á föstudaginn og keyptum þessa fínu dráttarvél með ámoksturstækjum (en það var algjört skilyrði) og létum svo pakka henni fínt inn í blómabúð. Hann var frekar montinn þegar hann fékk afhenda pakkann með viðhöfn í veislunni.
Það er auðvitað skemmst frá því að segja að veislan tókst mjög vel. Veðrið var líka alveg frábært og þó að það hafi verið tjaldað samkomutjaldi yfir gestina þá voru oftast fleiri úti, en inni. Við skreiddumst í rúmið eitthvað að ganga fimm á sunnudagsmorgun. Vorum því frekar lúin í gær og komum ekki miklu í verk.
Helgin endaði að venju í grilli hjá Gísla bróður í gærkvöldi og flugeldasýningin í eftirmat (eða þannig). Þau búa á eyrinni rétt hjá íþróttavellinum þannig að við þurftum ekki að fara langt til að njóta. Nema JG sem er nánast sjúklega hræddur við flugelda. Hann sofnaði til allrar hamingju rétt áður en lætin byrjuðu. Maður gæti haldið að hann væri þar að glíma við gamlar minningar frá fyrri tilverum.

Ummæli
Skrifa ummæli