Ég held að ég sé komin með skammdegisþunglyndi af allri þessari rigningu. Kannski í og með vonbrigði með það að hafa ekki druslast í berjamó í uppstyttunni í gær (var í vinnunni fram undir kvöldmat í staðinn) og það hefur rignt eins og hellt væri úr fötu allan seinnipartinn í dag. Það hefði verið svo ágætt að eiga nokkur bláber ofan á pavlovuna sem afmælisbarn morgundagsins pantaði. Heimasætan verður 12 ára á morgun og óskaði eftir fjölskyldukaffi annaðkvöld, bauð afa sínum og ömmum og frænkum og frændum.
Ég ætla að draga fyrir eldhúsgluggana, kveikja fyrst á kerti, svo á bakarofninum og síðan á hrærivélinni og vona að ég komist í betra skap. Arg.....
Ég ætla að draga fyrir eldhúsgluggana, kveikja fyrst á kerti, svo á bakarofninum og síðan á hrærivélinni og vona að ég komist í betra skap. Arg.....
Ummæli
Skrifa ummæli