Ég held að það megi kalla yngsta fjölskyldumeðliminn lífsnautnamann með réttu. Það þýðir ekkert að bjóða upp á kornfleks eða súrmjólk í morgunmat. Nei, bláber og rjómi skal það vera og barnaefnið með.
Á laugardagsmorgni þegar hitastigið úti er 5 gráður og búið að hækka í öllum ofnum í húsinu er voða gott að kúra undir teppi og borða bláber með rjóma meðan horft er á "Póstinn Pál". Þá er allt í lagi að fara í kringum regluna: aldrei borða fyrir framan sjónvarpið. (Við erum ekki með tæki í eldhúsinu!)
Þvottavélin er komin heim, blessunin, öll miklu hressari og frískari en áður. Ég sem var farin að skoða auglýsingar frá heimilistækjaverslunum og strauk nokkrum spegilgljáandi nýjum þvottavélum í Byko í vikunni, þegar ég átti leið þar um. En fegin er ég að þurfa ekki að læra á nýja þvottavél. Mér þykir nefnilega ósköp vænt um gömlu mína og vona að hún endist sem lengst. Þetta er sænskur gæðagripur, topphlaðinn, keyptur í raftækjaverslun á Akureyri sem er löngu farin á hausin.

Ummæli
Skrifa ummæli