Heimasætan missti stjórn á sér í dag og hefur farið um húsið eins og hvítur stormsveipur. Hún er sönn meyja sem vill hafa allt í röð og reglu. Þegar hún var búin að raða í forstofunni, baðherberginu og herbergi litla bróður síns, tók hún til við að taka til hjá fjósamanninum og er langt komin. Ég veit ekki hvað hann kemur til með að segja þegar hann kemur heim (verður örugglega bara feginn). Ég held að tvíburabróðir hans sé með einhverskonar tiltektarfælni því hann verður alltaf bæði mállaus og heyrnarlaus þegar minnst er á að herbergið hans sé ekki alveg... Það verður að segjast að aðkoman þar er ólýsanleg. Ég veit ekki hvort heimasætan ætlar að taka til þar líka. Ég hugsa að ég verði að borga henni fyrir atorkuna en um það var ekkert samið í upphafi. Hún er frábær!
Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...
Ummæli
Skrifa ummæli