Fara í aðalinnihald

Kjötsúpan mín

Súpukjöt er sérkennilegt fyrirbæri. Þar sem ég kaupi aðallega í matinn í lágvöruverðsverslunum! sé ég súpukjöt niðursagað frosið í á tilboðum. Í gær greip ég einn poka úr frystikistunni og skellti í pott. Venjufremur góðir og fitulitlir bitar nema neðst í pokanum voru nokkrir litlir þunnir beinabitar sem við nánari athugun reyndust vera þykkur hálsbiti sem hafði verið sagaður niður (var sá á kjötsöginni að breyta til??). En banakringlan fylgdi með og það finnst mér frekar ósmekklegt og lítið ætilegt þar.

En súpuna sauð ég og skellti í hana því girnilegasta úr garðinum. Þetta þykir mér eitt það besta sem ég fæ en því miður eru ekki allir í fjölskyldunni spenntir fyrir grænmetissúpum af þessu tagi. Jóhann Gylfi borðar hana þó með bestu lyst en hin börnin halda sig við soðið kjöt!

JÓH kom seint heim í gærkvöldi og fékk sér smá súpu. Hann vaknaði svo með ælupest í morgun og þó ég geti alls ekki samþykkt að það hafi nokkuð með súpuna að gera, langar manninn minn ekki í meiri kjötsúpu. Þannig að við JG sitjum ein að afganginum.

Í kvöld er svo sjónvarpskvöld hjá okkur IH sem nær hámarki í síðasta þættinum af "Aðþrengdum eiginkonum" sem ég bara má ekki missa af. Það verður semsagt poppað...

Sumarfríið er þar með búið og mæting í vinnu klukkan 9:00 í fyrramálið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.