


Tvíburarnir óskuðu eftir Laugafellsferð í afmælisgjöf þannig að frídagar voru samræmdir og við fórum fram á fjöll í gær.
Það leit ekkert sérstaklega út með veður þegar við komum fram á dal en það rættist úr því eins og sjá má á myndunum. Glampandi sólskin og hlýtt.Ég gat ekki valið eina mynd þannig að það eru bara margar.
Við byrjuðum að sjálfsögðu á því að fá okkur gott bað í hreinni lauginni og dormuðum þar lengi í sólskininu og teyguðum í okkur orkuna frá Hofsjökli. Drukkum svo kaffi í Hjörvarsskála (ekki húsið á myndinni), röltum um nágrennið og fórum svo heim á leið endurnærð á sál og líkama.
Pabbi og mamma komu með okkur og við enduðum góðan dag á því að borða saman grillaðan kjúlla, a la JÓH, með ofnbökuðum nýjum kartöflum, a la moi, salat úr garðinum og bláber og rjómi í eftirrétt.
Gerist það betra?
Ummæli
Skrifa ummæli