
Pabbi og mamma komu í morgunkaffi í morgun og þegar þau brunuðu í burtu um hádegið var lítill laumufarþegi í aftursætinu.
Pabbi hringdi svo og lét vita af því að stubbur væri í ömmu og afahúsi.
Þar finnst honum best að vera. Hann fær að hjálpa afa að slá og raka og brasa í viðgerðum, verða skítugur og fá ís hjá ömmu og jafnvel mola hjá langömmu ef afi skreppur í kaffi.
Ummæli
Skrifa ummæli