Fara í aðalinnihald

Morgunstund...

Ég stend sjálfa mig að því þessa dagana að í staðin fyrir að drífa mig á fætur þegar ég vakna, sný ég mér á hina hliðina og lúri aðeins lengur áfram. Jafnvel fram undir hálf ellefu á virkum degi sem er alveg ómögulegt (þó maður sé í sumarfríi).
Það er næði til þess þessa dagana. JÓH fer snemma í vinnuna með útilegumanninn á rútuna. Og þá erum við bara tvö heima ég og JG og hann skríður bara undir sæng hjá mömmu og sefur áfram.

Ég er aðeins duglegri núna í morgun. Búin að fara út á snúrur og faðma hreina þvottinn minn. Út í garð og kíkja á jarðaberjaplönturnar og út á pall að tína saman það sem fauk í nótt. Sá stutti sefur enn og það er best að fara að vekja hann. Ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að fá mér langan göngutúr og prófa nýju skóna. Eða fara og þrífa bílinn. Það er auðvelt að geta sér þess til hvort mér finnst skemmtilegra.

Rás 1 er útvarpstöðin mín þessa dagana og í gær heyrði ég í Sverri Páli mínum gamla kennara. Þar sem hann flutti pistil um íslenskt tungutak í anda Mannamáls í þætti sem heitir Sögumenn samtímans.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur.