"Hvenær kemur sólin" sagði JG í morgun.
Við getum nú samt ekki kvartað yfir veðrinu. Það rigndi svo í fyrrinótt að það buldi á þakinu. Ég bjó mig út í regnslá og gúmmístígvél og fór í gönguferð með JG og Blíðu í rigningunni í gær. Við löbbuðum upp í skóg og teyguðum að okkur ilminn af gróðrinum. Kisa varð úrillari eftir því sem hún varð blautari, en hún gat sjálfri sér um kennt að vera að elta okkur þetta.
En það er stytt upp og sólin á eftir að brjótast fram úr skýjunum í dag spái ég.
Ég dreif mig í húsverkin í morgun þegar ég vaknaði og skrúbbaði klósettið sem er það leiðinlegasta sem ég geri. Gott þegar það er frá.

Ummæli
Skrifa ummæli