
Þá getum við Norðlendingar tekið gleði okkar á ný. Sólin er farin að skína og norðangarrinn lætur undan síga. Það er miðvikudagur og verslunarmannahelgin nálgast nú óðfluga. Maður opnar ekki svo útvarp að ekki sé verið að tala um veðurspána og/eða ferðalög og útihátíðir. Það er nú í lagi í dag en þessi umræða byrjaði fyrir hálfum mánuði og er að verða svolítið þreytt, sérstaklega veðurspáin en hún er aldrei óáreiðanlegri en einmitt þessa helgi þegar slæm veðurspá getur hreinlega slegið af heilu hátíðirnar.
Við fjölskyldan förum alltaf í útilegu um verslunarmannahelgina og höfum ekkert verið að flækja málin neitt sérstaklega. Förum bara alltaf á sama stað og höfum gert svo lengi sem börnin okkar muna, ekki skemmir fyrir nú um stundir að við förum að sjá fram á að þurfa ekki að vera mikið oftar í tjaldi í þessari útilegu. Þessi útihátíð er nefnilega haldin í næsta skógarreit við bústaðina okkar á hólnum í dalnum "kæra" Svarfaðardal. (þetta síðasta var nú frekar væmið, en ég er nú búin að láta þau boð út ganga að ég vildi frekar láta raula"Dal einn vænan ég veit..." yfir mér genginni, en "Blessuð sértu sveitin mín....").
Það hafa stundum verið margir með okkur í þessari útilegu og stundum færri og stundum höfum við bara verið eina nótt, það fer bara eftir veðrinu.
Núna verður heldur meira viðhaft en venjulega því Hofsárbóndi er fertugur í dag og ætlar að halda upp á það á laugardagskvöldið í tjaldi heima á hlaði. JÓH og Stebbi færðu honum fyrstu afmælisgjöfina í dag, gashitara til að hlýja gestunum í teitinu.
Myndin er af útsýninu af pallinum hjá okkur í bústaðnum. Er undra þó maður verði fyrir andlegum hughrifum af svona útsýni. Tréð skyggir að vísu aðeins á en það gegnir líka ágætlega hlutverki sóllhlífar og í framtíðinni er á áætlun að nota það sem annað stag fyrir hengirúm!
Svona að lokum þá hjólaði ég með börnunum tveimur sem heima eru til afa og ömmu í morgun. Þar sat ég úti í 30°C (a.m.k.)og kláraði lopapeysuna sem ég er búin að vera að dunda við í allt sumar. Ég áttaði mig allt í einu á því að það gæti verið gott að eiga þessa peysu kláraða um helgina. Ég hafði það af og þvoði hana meira að segja áðan og breiddi út undir handklæði.
Svo bið ég bara um gott veður um helgina. :)
Ummæli
Skrifa ummæli