Mjög svo efnileg yfirskrift hér.
Ég var búin að skrifa langan pistil um umferðarmenninguna hér í Eyjafjarðarsýslunni og áhyggjur vegna ofsaaksturs í Öxnadal. Svo ýtti ég á publish post og allt heila klabbið hverfur nema nafnið.
Best ég nefni líka ábyrgð umferðarlögreglunnar sem góðu heilli hefur verið mjög sýnileg síðustu vikurnar a.m.k. á Ólafsfjarðarvegi þar sem ég keyri annan hvern dag.
Jæja, ég er á leiðinni út á þjóðveginn seinnipartinn og mæti líklega þeim sem lögðu af stað úr höfuðborginni um hádegið. Ég hef einu sinni farið leiðina Reykjavík - Akureyri á föstudegi fyrir verslunarmannahelgi (lögðum af stað um 6 leytið) og það var lífsreynsla. Þetta var þegar Halló Akureyri var upp á sitt "besta" og bílalestin var óslitin nánast alla leið.
Það gerði þetta ferðalag óraunverulegra en ella að við vorum að koma af jarðaför ungs manns sem farist hafði í umferðarslysi og hugarástand okkar ferðafélaganna eftir því.

Ummæli
Skrifa ummæli