Blogger er eitthvað svo hæggengur svona í morgunsárið að myndirnar verða að bíða betri tíma.
Við smáfjölskyldan fórum í sælureitinn okkar í fyrradag með tjaldkerruna í eftirdragi og áttum eina ágæta nótt bakvið hús á hólnum. Það er heilmikið að gerast núna hjá okkur. Í gær vorum við að hreinsa utanaf stóra húsinu og henda gamalli einangrun, sagi og reiðingi. Það er líka komið nýtt hurðargat á húsið og hurð en Stebbi skellti henni í í gær. Og núna fer að sjást hvar nýju gluggarnir verða settir. Sem gerist á næstu dögum.
Ég er með hálfgerða strengi í höndunum, enda mörg ár síðan ég hef haldið svona lengi á hamri eins og í gær.
Við JG enduðum á því að fara í sund á Dalvík og sá stutti steinsofnaði á leiðinni heim. Það tókst ekki almennilega að hátta hann þegar heim var komið þannig að hann var enn hálfklæddur þegar hann vaknaði í morgun. "Afhverju er ég í bol og peysu í rúminu?"
Ég ætla að byrja daginn á því að fara í morgunkaffi til pabba og mömmu og reyna svo að vekja unglingana sem fengu að vera einir heima heilan sólarhring um helgina. Þeir eru báðir í fríi í dag og héldu upp á það með því að vera leeeeengi á fótum. Hm.

Ummæli
Skrifa ummæli