Í vor prjónaði ég heljarmikinn sekk sem átti að verða einhverskonar sundtaska. Eftir þæfingu í þvottavélinni varð til eitthvað sem líktist öllu öðru en tösku. Þetta hrúgald er búið að þvælast fyrir mér hérna í sumar án þess að ég vissi almennilega hvað ég ætti að gera við það.Í rigningunni gær fékk ég svo andann yfir mig, tók fram skæri og nál og þetta er útkoman, þessi fína hliðartaska.
Ég er bara frekar ánægð með sköpunargleðina. Þetta á ég til þó að það sé stundum dálítið djúpt á því.
Ummæli
Skrifa ummæli