Maddaman sjálf með nýju sólgleraugun!Á sólpallinum með Bakkadalinn í baksýn, en þangað er planið að ganga einhverntímann í náinni framtíð.
Þessi mynd er tekin á fimmtudaginn en þá vorum við með gott nesti í hádegismatinn eða saltfisksalat sem var hitað upp á prímusnum (eldavélin er ekki komin í samband, en það er sko rafmagn).
Veðrið var því miður ekki svona gott í dag þegar ég brunaði úteftir með vinnumanninn úr helgarfríinu en þá ultu þokubakkarnir á móti okkur á Hámundarstaðarhálsinum og smiðirnir (JÓH og Stefán) orðnir hálf bláir í hráslaganum.
Svona er lífið á hólnum. :)
Ummæli
Skrifa ummæli