Heimasætan lagði land undir fót seinnipartinn og er farin af stað í Borgarnes þar sem hún ætlar að dvelja fram að næstu helgi. Þær urðu samferða frænkurnar, hún og Ástdís, með rútunni. Hún hefur verið frekar þungt haldin af ferðakvíða undanfarið en ég held að það hafi nú allt saman verið yfirstaðið þegar þær lögðu af stað. Ég skil þetta alveg með kvíðan enda hefur hún það beint frá mér. Það er nokkuð sem verður bara að takast á við og yfirvinna.
Það fækkar því heldur í kotinu. Útilegumaðurinn okkar kom að vísu heim í dag og verður heima í nótt en fer svo aftur suður á morgun. Og þá erum við bara þrjú eftir, við hjónakornin og JG. En það stendur nú ekki til að senda hann neitt. Þó hann væri örugglega alveg til í að vera bara í sveitinni. Þeir fóru feðgarnir úteftir bæði í dag og gær. JG var bara skilinn eftir á hlaðinu á Hofsá, upp í dráttarvél og út að slá.
Ummæli
Skrifa ummæli