Við vorum meira og minna í sveitinni alla helgina, en núna er komið að þvotta- og þrifadeginum hér á þessu heimili.
Við JÓH vorum að mála í gær og ég þurfti að taka á honum stóra mínum og klifra upp í stiga til að mála þakskegg. Lofthrædd manneskjan. JÓH fékk að fara upp á þak. Ekki vildi betur til en svo að í eitt skiftið sem hann var að prika upp á þakið skrikaði honum fótur og var það lukkan ein sem réði því að hann hrapaði ekki niður á pallinn. Hann var með fulla málningarfötu í hendinni sem megnið helltist úr í hamaganginum þegar hann var að reyna að fóta sig. Málningin rann niður þakið og rigndi á mig sem var að bauka með pensilin fyrir neðan hann. Þannig að ég varð skyndilega með rósrauðar strípur í hárinu og doppótt í framan!
En það var nú skárra heldur en að fá manninn í hausinn. Er nokkuð undarlegt þó mig sundli við það eitt að sjá einhvern uppi á þaki. Þetta var bara litla húsið sem er næstum með flötu þaki en næst á dagskránni er að mála þakið á stóra, sem er með háu risi!!!

Ummæli
Skrifa ummæli