Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá 2004

Skýjafar

Þessa mynd tók ég í morgun af hlaðinu í Syðra-Holti. Þegar við lögðum svo af stað nokkrum mínútum síðar ókum við inn í snjókomuna. Annars hefur verið hið besta veður hér í Eyjafirðinum fram í dag. Lygnt og nokkuð bjart. Þannig að það kom nokkuð á óvart þegar við komum heim og pabbi hringdi og lét okkur vita af því að slökkviliðsstjórinn á Akureyri hefði afturkallað brennuleyfið sem hafði verið fengið fyrir hinni árlegu brennu stórfjölskyldunnar!! Vegna veðurs! Nú er klukkan farin að ganga sex og lítið bólar enn á óveðrinu. Við erum að venju á leið til pabba og mömmu í hangiketið. Þar mætum við öll systkinin sem erum á svæðinu í hvert sinn með börn og buru og það er að verða ansi þröngt á þingi í litla húsinu. Nú er JÓH farinn að reka á eftir mér þar sem ég sit við tölvuna í bláa kjólnum. Allir fyrir löngu komnir í sparifötin og kisu orðið eitthvað órótt líka. Gleðilegt ár allir nær og fjær.

Gamlársdagur

Það er fastur liður hjá Brekkutraðarfjölskyldunni að fara í bíltúr út á Dalvík á gamlársdag. Heimsækja leiðið hans Halldórs afa og taka síðan hús á Ásu og Adda í Hringtúninu. Þar snæðum við hrísgrjónagraut og fleira gómsætt og tökum út helstu atburði ársins. Að þessu sinni fékk Imba amma að fljóta með en hún skrapp fram í Holt meðan við hin fórum í grautinn.

Af íþróttum

Ég varð satt að segja ákaflega hissa og hneyksluð á því að Kristín Rós Hákonardóttir skyldi ekki verða ofar á listanum í kjöri íþróttamanns ársins. Ég var svo barnaleg að halda að hennar afrek á íþróttasviðinu og alþjóðlegar viðurkenningar dygðu til að hún yrði fyrir valinu sem íþróttamaður ársins. Hver á það frekar skilið. Punktur og basta.

Bóklestur og bíómyndir

Þetta eru búin að vera ósköp góð jól. Ég hef alveg getað haldið í það að vera í fríi og vera ekkert að baksa við neitt sérstakt. Ég ákvað að vera dugleg að lesa en leyfa öllum handavinnupælingum að bíða betri tíma (inni í skáp). Svo hef ég ekki verið neitt óskaplega dugleg að lesa. Kleifarvatn kom hingað á heimilið í tveimur eintökum, þannig að ég er búin að lesa hana og fannst hún ágæt. Við gáfum strákunum saman síðasta hlutann af Hringadróttinssögu á DVD og við erum búin að vera að horfa á aukaefnið og heimildarmyndirnar. Það varð svo til þess að í gærkvöldi dró ég fram lúið eintak sem ég á af fyrstu bókinni á ensku. Rak augun í það að ég hef keypt þessar bækur árið 1982 svo að þær hafa fylgt mér í meira en tuttugu ár og það sést alveg. Ég reyndi að lesa íslensku þýðinguna einhverntímann en gafst fljótlega upp. Gat einhvernvegin ekki fellt mig við stílinn. En ég hef ekki lesið bækurnar síðan ég sá fyrstu myndina í bíó þannig að það er alveg kominn tími til. Það ætti að endast...

Jólakveðjur

Eins og venja er opnum við jólakortin þegar allt er komið í ró á jólanóttina. Lesum svo hvort fyrir annað hjónin allar skemmtilegu kveðjurnar sem koma með kortunum. Nokkrar vísur fylgja alltaf með en mig langar að deila með fleirum ljóði eða ljóðbroti sem kom með einu jólakortinu. Ef þú átt ró, er aðrir æðrast hafa og uppnám sitt og vanda kenna þér, ef traust þín sjálfs er vaxið allra vafa, en veist þó samt að hann á rétt á sér, ef kanntu í biðraun þoli þínu að halda og þreyta án lygi tafl við grannans róg, og láta ei heiftúð hatur endurgjalda, en hafa lágt um dyggð og speki þó.- Rudyard Kipling (þýð. Magnús Ásgeirsson)

Gleðileg jól

Jólin eru loksins að koma hingað í Brekkutröðina. Eftir mikinn spenning undanfarna daga hefur verið mikil ró yfir heimilisfólkinu hér í dag, stórum sem smáum. Jóhann Gylfi bíður á náttsloppnum eftir því að fá að fara í sparifötinn. Þau voru að koma úr jólabaðinu hann og Inga Hildur. Rauðkálið mallar í pottinum, búið að leggja á borð og verið að pakka inn síðustu jólagjöfunum. Nú er komið að Jóhanni en hann sér að mestu um matargerðina, nema salatið og brúnuðu kartöflurnar. Vegna slæms veðurútlits kom tengdamamma með Jóhanni um hádegið en hann þurfti aðeins að skreppa í búð í morgun. Ef veðrið versnar þá ætlar hún bara að gista í nótt. Það er búið að aflýsa aftansöngnum á Grund þannig að ekki förum við í messu í kvöld. En jólin koma fyrir því og við fögnum þeim eins og aðrir. Ég óska öllum ættingjum jafnt og vinum sem þetta lesa gleðilegra jólahátíðar. Gleðileg jól

Inga Hildur engill

Jólatré tilbúið til flutnings 
Jólatré í skógi 
Hún heitir Blíða 

Kettlingar, kettlingar, kettlingar...

Heimiliskötturinn hann Rósbrandur hvarf í ágúst og hefur ekkert til hans spurst. Við erum eiginlega búin að telja hann af og það hefur verið töluverð sorg á heimilinu vegna þess. Það er orðið þónokkuð síðan farið var að biðja um annað gæludýr og hefur ýmislegt verið nefnt í því sambandi. Inga Hildur hefur verið mjög fylgin sér í þeirri baráttu að eignast annan kött og þegar við fréttum af kettlingum úti í Dal í gær lét hún hvorki laust né fast fyrr en pabbi hennar var búinn að hringja og spyrjast fyrir um kettlingana. Hún er búin að lofa uppvaski og annarri aðstoð við heimilisverk í langan tíma ef að köttur fáist á heimilið fyrir jól.

Mömmudrengirnir

Sá skemmtilegi siður hefur verið við lýði hjá okkur í skólanum í mörg ár að starfsfólkið borðar með nemendum á unglingastigi fyrir jólaballið. 9. bekkingar þjóna til borðs og snædd er svínasteik með öllu tilheyrandi, appelsín og malt og ís á eftir. Skemmtiatriði með kaffinu. Svo storma unglingarnir út í "Hyldýpi" og þar er ball fram að miðnætti. Spariklæðnaður skilyrði. Þar kemur nú ástæðan fyrir því að það þurfti nauðsynlega að kaupa jakkaföt. Halldór er búinn að vera að æfa bindishnútinn síðustu tvo daga, en það fór svo á endanum að mamma gamla var fengin til að hjálpa örlítið til. Líka að sjá um hárgreiðsluna. Við vorum nefnilega aðeins of sein að hugsa fyrir jólaklippingunni. Tvíburarnir eiga pantaðan tíma klukkan 18:00 á Þorláksmessu og mæta vel klipptir í skötuna hjá afa og ömmu. Skemmtiatriðin hafa nú verið upp og ofan eins og gengur. Tíundi bekkurinn núna er fyrsti árgangurinn sem var í forskóla í tónlistarskólanum upp í fjórða bekk og eitthvað skilar það sér þv...

Jóla, jóla

Við gerðum stutta ferð í höfuðborgina um helgina. Þetta er að verða árviss viðburður, eins og kaupstaðarferðir bænda forðum. Smá jólaskrens í búðunum, út að borða með samstarfsfólki JÓH og svo kíkk á ölstofur á leiðinni heim á hótel. Eða með öðrum orðum allt hið skemmtilegasta. Ég verð þó að viðurkenna að mannmergðin í Kringlunni er alveg skelfilega yfirþyrmandi á þessum árstíma. Ég einhvernvegin nýt mín betur í fámenninu. Afleiðingin var reyndar jákvæð að einu leyti því ég eyddi alveg sáralitlu. Það fannst þó jólakjóll á heimasætuna, sem var það eina sem ég var á höttunum eftir, en ekki fyrr en eftir mikla leit. Það er nefnilega ekki í tísku að vera í kjól ef maður er ellefu ára nema einhverju litlu, svörtu eða rauðu. Það höfðaði ekki alveg til minnar að kaupa annan af tveimur valkostum í Hagkaupum hér fyrir norðan. En úrvalið er bara ekkert meira í fjölmenninu. Hún fékk þó að lokum það sem hana langaði mest í, síðan kjól. Ég fór svo í skemmtilegan leiðangur í dag með sonunum. Þe...

jóladagatalið mitt

Það að stinga tánum undir teppi með kaffibolla og maula konfektmola dagsins er ... mmmm. Ég hef ekki fengið súkkulaðidagatal í svo marga áratugi að mig langar ekkert til að muna það. En núna sit ég með stóra rauða öskju sem er með tuttugu og fjórum litlum rauðum öskjum og í hverri öskju er ... einn konfektmoli. Mmm.. himneskt. Þetta er minn "danski kúr" í þessum mánuði.

Jólaseríur

Það er lítið skáldlegt við veðrið hérna núna. Rigningarsuddi, slabb og hálka. Enda dró ég bara fyrir, kveikti á nokkrum kertum og bætti við einni ljósaseríu. Strákarnir fóru upp á háaloft um helgina og komu niður með jólaskrautskassana. Nú er að koma yfir heimilið þetta óreiðuyfirbragð sem helst allan desember, jólapappír, kort og föndur út um allt, innan um auglýsingabæklinga og pappakassa. Seríurnar eru að koma upp hver af annarri, eitthvað hefur nú gengið úr sér síðan í fyrra svo að ég varð að fara í peruleit í gærkvöldi þegar mér datt skyndilega í hug að setja upp seríur í herberginu hans Jóhanns Gylfa. Bætti svo um betur og setti seríur í eldhúsgluggana líka og hengdi eina langa kringum stóra spegilinn á ganginum áðan. Þannig að ég er voðalega jólaleg og þegar ég lít í spegilinn (sem ég, verð víst að viðurkenna að ég geri oft) . Við höfum alltaf haft ákveðna stefnu í ljósaskreytingum, erum svolítið gamaldags og viljum bara hafa marglitar (og margar) seríur. Það finnst okkur jól...

Stóð ég úti í tunglsljósi

Ég vildi helst hafa svona veður allan veturinn, eins og er núna. Það má alveg snjóa annað slagið, rétt svona til að við komumst á skíði. Ef að ég gæti slökkt öll rafmagnsljósin sem trufla tunglskinið úti núna gæti ég auðveldlega séð fyrir mér stóra skara af huldufólki skeiða yfir grund. Næturmyrkrið er ekki svart heldur lýsir fullt tunglið upp snæviþakta jörðina. Við erum búin að eiga góðan dag. Tengdamamma á afmæli og við fórum til hennar í kaffi. Tvíburarnir voru að spila niðri á Ráðhústorgi með lúðrasveitinni þegar tendrað var á jólatrénu. Ég var eiginlega að átta mig á því að jólafastan er að byrja á morgun. Við keyrðum í gegnum miðbæinn á leiðinni heim og JG sagði vaaáá... Jóhann er að elda kvöldmatinn, Spaugstofan er að byrja og við sein fyrir eins og venjulega. En það er ljúft kvöld framundan, heima í faðmi fjölskyldunnar. Er það ekki alltaf best.

húsmóðurraunir

Stundum líður tíminn svo hratt að dagarnir bókstaflega hlaupa frá manni. Eftir vinnu í gær fór ég með I.H. til tannlæknis og þeyttist svo í búðir á eftir. Hef nefnilega ekkert komist í bæinn lengi vegna sumardekkja á smábílnum. Það er nú búið að bæta úr því og ég er komin af stað aftur. Í dag skrapp ég svo aðeins til mömmu í kaffi. Jóhann Gylfi hittir afa sinn á miðvikudögum í íþróttahúsinu og þeir sammæltust um að hittast seinnipartinn. Sá stutti vildi svo alls ekki koma heim með mér og skældi svolítið (bara pínulítið) þangað til afi lofaði að skutla honum heim á jeppanum fyrir kvöldmat! Núna er ég búin að vera að gera örlitla hreingerningu á heimilinu. Setti í vél, þreif baðherbergið og moppaði svo fram í eldhús. Ég held ég verði að virkja þessa óvæntu hreingerningarorku aðeins betur og reyna að komast niður úr hreina þvottinum sem, er farinn að dreifast um gólfin en á að vera samanbrotinn og straujaður inni í skápum. Satt best að segja þá langar mig bara meira í bað! ...

Bridget Jones

Það eru einna helst rómantískar gamanmyndir sem draga okkur hjónakornin í bíó fyrir utan einstaka íslenska bíómynd og svo auðvitað Harry Potter og Hringadróttinssögu. Við drifum okkur því í bíó í gærkvöldi til að sjá nýju Bridget Jones myndina. Ég fékk bókina lánaða hjá mömmu einhverntíman í sumar og er búin að vera að lesa hana annað slagið. Kafla og kafla. Svo ég sé nú ákaflega klisjukend í dómum þá verð ég bara að segja að mér finnst nú bókin betri. Mér fannst reyndar fyrri myndin betri en bókin! En þetta var ósköp notaleg skemmtun og ekki skemmdu leikararnir. Ég hef nú alltaf verið veik fyrir mr Darcy, hm...

Smá grín

Ég mátti til að skella þessu hérna inn því ég var svo ánægð með borgina. Hef að vísu aldrei komið þangað en... Which American City Are You? San Francisco Liberal and proud, you'll live your lifestyle however you choose in the face of all that would supress you.

Vetrardagur í Eyjafirði

Um þrjú í dag fór ég upp á leikskóla og náði í Jóhann Gylfa og við röltum svo heim í góða veðrinu. Það er nefnilega gott veður þó að frostið sé nú komið niður í 13 gráður í mínus. Þetta er eitt af því sem fær mig til að þakka fyrir það hvað ég er lánsöm kona þrátt fyrir allt. Að geta notið þess að horfa á fjallahringinn alhvítan baðaðan í roðagullinni skammdegissólinni, sem gengin er niður hérna á láglendinu á þessum tíma dagsins. Það brakar í snjónum í frostinu og áin er orðin ísi lögð. Ekkert rýfur kyrrðina nema einstaka bíll sem brunar hjá og hamarshögg úr nýbyggingum í hverfinu. Jóhann Gylfi veður jafnfallna mjöllina utan við götuna með fulla lófa af snjó sem hann rekur tunguna í. Rjóður í kinnum af kuldanum en með nýprjónaða ullarvettlinga frá ömmu á höndunum og í hlýjum ullarsokkum í stígvélunum. Heitur kakóbolli bíður heima og eftir að hafa dundað sér í kubbunum svolitla stund skríður hann undir sæng í pabba holu og sofnar. Það er stundum gott að fá sér lúr eft...

Verkfallstöskur

Nú er ég farin að tala við sjónvarpið eins og amma. Ég sit inni í herbergi og horfi á umræður á Alþingi. Gat ekki á mér setið áðan og gargaði upp yfir mig. Segi ekkert af hverju. Nú vantar mig eiginlega digital myndavél því ég er að prjóna svokallaða "verkfallstösku". Nafnið kemur til af því að uppskriftina komust við yfir í verkfallsmiðstöð kennara á Akureyri. Taskan er prjónuð úr ullargarni og síðan saumuð saman og þæfð í þvottavél. Ég er að prófa að prjóna úr afgöngum af plötulopa og það verður gaman að sjá hvernig til tekst. En annars miðast flestar þessar uppskrifti, sem ég hef séð,við norskt ullargarn.

Vetrarforðinn

Fór út áðan og opnaði sneisafulla frystikistuna. Við eigum meira að segja fisk núna. Fisksalinn bankaði upp á á föstudagskvöldið (rétt fyrir súpuveisluna) og JÓH stóðst ekki mátið og keypti saltfisk og eitthvað fleira. Það er bara svo mikið í kistunni að við urðum að geyma hluta af fiskinum hjá m&p. Mér tókst þó að finna tvo sláturkeppi sem malla núna í potti á eldavélinni. Einkadóttirin kom svo inn áðan og kyssti mömmu sína fyrir það að ætla að hafa svona þjóðlegan og gamaldags kvöldmat. Hún orðaði það auðvitað ekki svona en henni þykir slátur gott, eins og ýmislegt annað sem flestum þykir skrítinn matur eins og kæst skata, gráðostur og soðnir þorskhausar og jafnvel hákarl. Hún hefur notið góðs af því að fá að vera í fæði hjá afa og ömmu endrum og sinnum. Ekkert af þessu sem ég taldi upp er haft á borðum hér. Nema kannski gráðosturinn en þá er hann bræddur með rjóma saman við. Ég er annars búin að vera hálf eirðarlaus í dag. Fór þó í bæinn í morgun og hitti hana V...

Haustsúpa og Svik

Titillinn er dálítið sérkennilegur, en svona fer þegar þarf að koma mörgu að. Þá er þessi helgi búin. Á morgun er talningardagurinn og svo veit maður ekkert hvað tekur við. En helgin er búin að vera ljúf. Við brettum upp ermarnar og buðum örfáum útvöldum ættingjum og vinum í súpu á föstudagskvöldið. Ég eldaði og tókst bara nokkuð vel upp. Meira að segja með frönsku súkkulaðikökuna sem var í eftirrétt. Sem ég skutlaðist með til mömmu í ofninn hjá henni. Vegna þess að súpan var í ofninum hjá mér. Það varð örlítill skipulagsvandi vegna þess að eins og venjulega þegar eitthvað stendur til hér á þessu heimili lentum við í tímahraki. Við hjónakornin skruppum snögga ferð í bæinn til að fara í búð og ríkið og ... og .... og komum aðeins of seint heim. En þetta bjargaðist nú allt saman eins og það gerir alltaf. Súpan var góð. Súkkulaðitertan geggjuð og vínið, vel valið. Það varð afgangur af því, fyrir utan allt sem JÓH fékk í afmælisgjöf. (Og ég líka). Þannig að þeim sem slysast í h...

Saltfiskdraumar

Húsbóndinn á heimilinu stendur við eldavélina núna þó að það sé farið að nálgast miðnætti. Hann á nefnilega afmæli á morgun. Stórafmæli. Loksins erum við bæði komin á fimmtugsaldurinn og hann hættir að segja "gamla mín" þangað til í mars. Á mínum vinnustað tíðkast það að koma með tertur og annað þessháttar kruðerí á afmælisdögum. Jóhann minn er ekkert mikið fyrir tertur og enn lélegri er hann við baksturinn. En honum fannst samt að hann yrði að gera eitthvað fyrir liðið sem hittist á kaffistofunni í hádeginu. Hann fékk mjög skemmtilega matreiðslubók, sem heitir "Seiðandi saltfiskur og þorskréttir þjóðanna", í jólagjöf í fyrra. Við erum búin að elda svolítið upp úr henni og í vetur fór hann eitt sinn með afgang af saltfiski sem ég eldaði eftir uppskrift úr þessarri bók. Það fengu einhverjir að smakka og Beggi er búinn að bíða eftir því síðan að fá meiri saltfisk. Því verður boðið upp á saltfisk í hádeginu hjá JÓH á morgun. Tvíburarnir eru búnir að...

Í amstri mánudagsins

"Jákvæða hliðin á lífinu" Afmælisdagar eru góðir fyrir þig - því fleiri sem þú átt, því lengur lifirðu. Hamingjan kemur inn um dyrnar, sem þú veist ekki einu sinni af að þú hefur opnað. Það getur verið að þú sért stundum eina manneskjan í heiminum, en þú ert líka ef til vill allur heimurinn fyrir eina manneskju. Sum mistök eru allt of skemmtileg til að gera þau bara einu sinni. Ekki gráta af því að því er lokið, brostu af því að það gerðist. Við gætum lært heilmikið af litunum: sumir eru skærir, sumir fallegir, sumir leiðinlegir, sumir hafa skrítin nöfn og allir eru þeir mismunandi.... en allir geta þeir komist ágætlega fyrir í sama kassanum. Raunverulega hamingjusamur maður er sá sem getur notið þess sem gerist þegar hann endurtekur ferðina. Eða eins og einn maður sagði - það að vera hamingjusamur er ákvörðun. Eigðu frábæran dag og vittu að einhver sem þykir þú skipta máli, hefur hugsað til þín í dag!.. kveðja Ég

Jóhann Gylfi

Hérna er prinsinn á heimilinu. Þessi mynd er tekin um páskana þegar hann var að máta nýju jakkafötin sín. Vart þarf að taka fram að hann er fæddur töffari. Þegar byrjaði að snjóa um daginn spurði hann hvort jólin væru komin. Við útskýrðum það fyrir honum að jólin kæmu ekki fyrr en eftir næstum tvo mánuði. Nokkrum dögum seinna þegar enn snjóaði kom hann til mömmu sinnar og hvíslaði í eyrað á henni: "Mamma, getum við náð í jólin núna?"

Föstudagur í vinnunni!

Stökk fram úr í morgun klukkan hálf átta (heldur seint) og var mætt í vinnuna rúmlega átta. Eftir sex vikur í verkfalli er maður að byrja aftur á vetrinum. Við fengum að sjá miðlunartillöguna en ég er satt best að segja svartsýn á það að hún verði samþykkt. Svona í fljótu bragði.

Hálkublettir og fleira

Svona er það að vera ekki akandi. Ég hef ekki farið neitt á bíl síðan fyrir helgi nema sitjandi í farþegasætinu. Það gerir kjarkleysið en ég verð alltaf lafhrædd við að keyra í fyrstu hálku haustsins/vetrarins. Það bætir svosem ekki úr skák að báðir heimilisbílarnir eru á sléttu ennþá og sá stærri, slitnu í ofanálag. Pyngjan er heldur létt þessa dagana og því ekki búið að gera neitt í því. Strákarnir þurftu á æfingu í kvöld og bóndinn er í babminton þannig að það kom í minn hlut að keyra. Nú er ég komin heim aftur heilu og höldnu. Ferðin tók helmingi lengri tíma en venjulega enda keyri ég varlega! Mér sýndist fleiri vera í sömu sporum og ég í umferðinni en einu tók ég eftir bæði á leiðinni niðureftir og heim mætti ég bílum svo þétt saman að ég hélt að það væri spotti á milli. Sem var ekki. Þetta er hættuspil í hálku en menn gera alltof mikið af þessu við venjulegar aðstæður. Bílstjóranum fyrir framan má ekki fipast augnablik svo að hann fái ekki þann næst á eftir upp á skottið. Af ...

Þriðjudagur

Ég var að fikta í uppsetningunni á blogginu þá er allt í einu komin titillína á póstinn. Ekki veit ég hvaðan hún birtist. En í góðu lagi með það. Það snjóar hér og snjóar. Inga Hildur er úti að renna sér með vinkonunum. Strákarnir hanga í tölvunni. Þeir voru lengi úti í gær með sleðana sína. Úlfar Bjarki var eitthvað að kvarta yfir rassæri áðan. En það er gott að þau hreyfa sig eitthvað. Ég veit að ég hefði gott af því líka þannig að ég ætla að taka með mér sleða þegar ég næ í Jóhann Gylfa og labba með hann út í Jólagarð og svo til afa og ömmu. Honum ætti að líka það því hann vill yfirleitt ekki fara heim af leikskólanum. Ég ætlaði að mæta í verkfallsmiðstöðina í morgun en ákvað svo bara að halda áfram að sinna heimilisstörfunum! Það er að segja setja í uppþvottavélina/þvottavélina og taka úr þeim, ganga frá og hengja upp. Ekki veit ég hvaðan þessi ódæmi af þvotti koma eiginlega, það kemur mér alltaf jafnmikið á óvart þegar þvottahúsið er skyndilega orðið fullt af ...

MSN

Skemmtileg uppfinning þetta msn. Ég á í "uppbyggilegum" samræðum við Úlfhildi systur oft í viku þessa dagana á msninu. Við erum ekkert mjög duglegar við að hringja í hvor aðra þannig að við erum í meira sambandi núna en oftast. Sem er hið besta mál. Krakkarnir nota þetta líka töluvert. Aðallega til að spjalla við frændsystkini sín hefur mér sýnst.
Fyrsti vetrardagur Það er kominn vetur. Úti er sól og snjókoma til skiftis og hvít snjóbreiða yfir öllu. Alveg eins og það á að vera á þessum árstíma. Ég kemst bara í svolítinn jólafíling, langar að kveikja á reykelsi og kerti og láta fara vel um mig. Ég sem ætlaði að setja niður fullt af laukum í blómabeðin í garðinum. Ég var að vísu ekki búin að koma því í verk að kaupa þá, sem er eins gott. En kannski kemur hláka og allur snjórinn fer. Þannig hefur það verið undanfarin ár. Krakkarnir hafa ekki látið það aftra sér frá því að dreyma um ný bretti og skíði og mikið pælt í fjárfestingum undanfarið. Ég vona því að það verði almennilegur skíðasnjór í vetur. Eftir skelfilegan letidag í gær og leiða yfir ástandinu dreif ég mig út í gærkvöldi og hitti samstarfsfólk mitt yfir súpu og salati (með meiru) hjá Einari G. Það var alveg tímabært að dreifa huganum aðeins. Ég kom heim nokkuð seint en með bros á vör. Jóhannarnir mínir báðir löngu sofnaðir og ég skreið undir sængina hjá þeim og s...
Föstudagur er letidagur Ég hef verið alveg ótrúlega löt í dag. Setið við tölvuna og dundað mér í einu 0g öðru. M.a. skoðað skemmtilegar sænskar bloggsíður. Þar sem áhugasamar prjónakonur segja frá því sem þær eru að gera. Ég fékk ýmsar hugmyndir. Ef svona heldur áfram sem horfir þá kem ég ekki neinu í verk. En núna ætlum við Jóhann Gylfi að skella okkur í bað. Svo er best að fara að reyna að hressa sig við því við ætlum að hittast í kvöld samkennararnir og snarla og spjalla saman. Ekki veitir manni nú af andlegri upplyftingu.
Heimilistölvan gafst upp á sunnudaginn og var í viðgerð þangað til í gærkvöldi. Ég hefði ekki trúað því að óreyndu hvað maður er orðinn háður þessarri tækni, að geta fylgst með fréttum og verið í sambandi við fólk. Það þyrmdi yfir mig til að byrja með og mér fannst ég fullkomlega einangruð fyrir umheiminum. Svo uppgötvaði ég mér til léttis að það er til sími! Ég áttaði mig á því á dögunum að þessi tölva okkar, sem mér hefur alltaf fundist svo mikil græja, er orðin "pínulítið" úrelt. Strákarnir keyptu sér einhvern kassa um daginn, eftir miklar pælingar, sem er víst mörgum sinnum stærri en fína tölvan mín. Og auðvitað hraðvirkari. Þessi innkaup fóru fram í byrjun verkfallsins. Ég uppgötvaði í gær að ég er búin að missa alveg stjórnina á tölvunotkun heimilismanna. Því nú geta krakkarnir lokað að sér inni í herbergi, tímunum saman.
Morgunverkin. Jóhann Gylfi er alveg að fríka út. Hann fékk smá magaskot í gærkvöldi. Ældi í stofusófann og virtist lagast upp úr því. Spenningurinn er alveg að fara með hann þessa stundina. Inga Hildur er búin að læsa sig inn í herberginu sínu. Það er svo erfitt að ákveða í hverju á að vera í dag. Hún er á þriðja eða fjórða dressinu núna. Og litli bróðir stendur organdi á ganginum og vill komast inn. Halldór er að vaska upp (alltaf duglegur að hjálpa mömmu). Hann fann engar sparibuxur áðan. Kannski eru þær bara inni hjá Úlfari sem hefur ekki komið út úr herberginu sínu í morgun nema rétt til að fá samþykki mömmu fyrir sparklæðnaði dagsins. Ég er búin að vera alveg ofboðslega dugleg í morgun. Bakaði eina skúffuköku til að eiga með kaffinu í dag og sett svo á terturnar sem ég lofaði Þorgerði mágkonu. Því við erum að fara í skírn á eftir. Jóhann verður hér heima með systkinum sínum og fjölskyldum að ganga frá kjötinu og svo borðar allt liðið hér í kvöld. Því að "Hakkið...
Jæja, ég ákvað að breyta til og fékk mér nýtt útlit. Svolítið haustlegra. En það týndist eitthvað á leiðinni. Þarf að lesa leiðbeiningarnar betur. Það er föstudagur í dag og ákveðið í gærkvöldi að í dag skyldi vera tiltektardagur. Það er semsagt Skúra, skrúbba og bóna. Enda von á fjölmenni um helgna. Það er ekki bara "kjötið" og von á öllum systkinum Jóhanns og fjölskyldum. Heldur ætlar Gísli bróðir að láta skíra á morgun.
Ég er aðeins að reyna að lesa leiðbeiningarnar með blogginu. Tókst, eins og sjá má að setja inn mynd af mér í "my profile" alveg hjálparlaust. Góð :). Eitt sem mig vantar þá er hvernig maður setur inn tengla. Ýmiskonar. Verð augsýnilega að grufla meira.
Ég fékk einhvern áróðurspóst í morgun, frá fylgjendum hrafnafífunnar í kosningunum um þjóðarblómið. Hérna birti ég mynd af mínum kandídat. Sem er að sjálfsögðu geldingahnappurinn. Þrautseigur og nægjusamur og þrífst þar sem síst skyldi. Mér finnst hann svolítið eins og íslenska þjóðin, lifir allt af.  
Útsýnið til suðurs af hólum okkar í Svarfaðardal 
Einhvern dag þú að því kemst, sem engum mátt þú segja, - þinn tilgangur var fyrst og fremst að fæðast, lifa og deyja. KH Ég rakst á þessa vísu í minningargrein í Mogganum á dögunum og finnst hún falleg. Minningargreinar eru merkilegar og ég les þær oft. Því miður er mjög misjafnt hvernig þær eru úr garði gerðar og oft betur heima setið en af stað farið. Ég til dæmis hef aldrei skilið hvað fær fólk til að skrifa látnum ættingjum sínum sendibréf til birtingar opinberlega. Ég er ekkert viss um að framliðnir séu mikið að fletta Mogganum og er viss að betra er að tala við þá einslega á annan hátt en á prenti ef maður þarf. En það tekur víst enginn eftir því.
Ég var frekar langt niðri þegar ég skrifaði síðast. JÓH spurði mig hvort ég ætlaði ekki að fara að leita mér að annarri vinnu. En það þýðir ekkert að sökkva sér í þunglyndi. Ég er að hugsa um að mæta á baráttufundinn í dag í Borgarbíói á Akureyri.
4. verkfallsvika Með fullri virðingu fyrir því fólki sem er í samninganefndum bæði kennara og sveitarfélaga. Þá hef ég einhvernvegin á tilfinningunni að það standi ekki til að semja. Neitt á næstunni.
Inga Hildur og Brynja Sóley í ágúst 2004 
Jæja, komin úr kaupstað eftir venjulegar föstudagsútrettingar. Ég sló met í hagkvæmum innkaupum í Bónus. Svona miðað við rúmmál. Ég er búin að lofa því að elda pizzu í kvöld fyrir börnin, sem hafa ekki fengið neitt almennilegt að borða svo lengi sem þau muna. Það var sláturgerð hér síðasta föstudag og blóðmör í matinn. Svo bætti ég nú gráu ofan á svart með einhverju austurlensku jukki, grænmeti og hrísgrjónum á laugardagskvöldið. Unglingarnir á heimilinu sátu brúnaþungir og andvörpuðu yfir matarborðinu (Og ekkert gos í ofanálag því það gleymdist!). Ég ætla því að bæta um betur í kvöld. Og strákarnir búa til degið. Þeir eru orðnir ansi flinkir í því. Eins og þeir eru nú matvandir, þá hafa þeir engan áhuga á því að elda. Þeir gætu lifað lengi á brauði, osti og núðlusúpum. Svo að ég sé pínulítið jákvæð þá eru yngri systkinin ekki nándarnærri eins vandætin og unglingarnir. J.G. borðar allt sem fyrir hann er borið og IH er mjög nýjungagjörn. Svo get ég ekki mikið sagt sjálf, því þeir haf...
Ég þurfti að skutla bóndanum í vinnuna í morgun. Veðrið eins og það getur yndislegast verið á þessum árstíma. Frost (að vísu 5 stig) og heiðskírt. Sólin að koma upp og baðaði fjöllin sem eru orðin hvít langt niður í hlíðar. Áin var alveg spegilslétt og hundruð gæsa að vakna í náttstaðnum. Maður þarf að staldra við og draga andann djúpt og njóta. Það er svo mikil kyrrð yfir allri náttúrunni. Ég ætla að fara út á eftir og hengja nokkur handklæði á snúrurnar. Það er reglulega gaman að hafa garð í kringum húsið sitt. Stundum finnst mér í alvöru að ég sé dálítið einkennileg en sá staður sem mér líður best á er við þvottasnúrurnar!! Nú vantar mig eitthvað fallegt ljóð til að setja hér neðan við en bókin sem ég ætlaði að fletta í er í skólanum! Ég las grein í DV á laugardaginn, heil opna um gömlu skólaljóðin þar sem inntakið var það væri svo mikið af hörmungarljóðum í henni. En höfundur viðurkenndi þó í lokin að hann ætti þessa bók og læsi úr henni fyrir börnin sín. Eitt af dæmun...
Ég frétti að Gallup hefði kannað það hverjir tækju slátur. Niðurstaðan var láglaunafólk, sveitafólk og framsóknarmenn (kannski einn hópur enn). Það má með nokkrum sanni segja að ég tilheyri þessum þremur hópum. Er grunnskólakennari í verkfalli, bý í sveit þó ekki sé ég bóndi og hef kosið framsókn (oftar en einu sinni, því miður). Enda fór ég, ásamt mágkonu minni, sem einnig telst til framsóknarmanna, vestur í Skagafjörð á föstudaginn og keypti hráefni til sláturgerðar í nokkru magni. Þeir eru nefnilega svo vænir hjá Kaupfélagi Skagfirðinga að selja ennþá ekta vambir. Við vorum svo framsýnar að hringja og panta það sem við þurftum þannig að það beið tilbúið innpakkað fyrir okkur þegar við mættum í Skagfirðingabúð. Þeir fá sannarlega hrós þarna "fyrir vestan" fyrir góða þjónustu. Skemmst er frá því að segja að sláturgerðin tókst bærilega
Nú er komið að því. Ég er búin að búa mér til blogg síðu. Hætt að láta mér innbundna dagbókina í náttborðsskúffunni nægja og ætla að fara að úthella hugsunum mínum yfir hvern þann sem nennir að lesa. Eitthvað verð ég að gera mér til dundurs í verkfallinu sem er nú að leggja í þriðju vikuna!!