Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá september, 2007

Sunnudagsmorgun

Hér gengur lífið sinn vanagang þessa dagana. Það er búið að vera mikið að gera undanfarnar vikur og er ekkert lát á. Maður verður svo að reyna að slaka pínulítið á um helgar. Láta eftir sér að fara ekki almennilega á fætur fyrr en um hádegi. Lesa blöðin í rúminu og sötra te eða lúra með prjónana fyrir framan sjónvarpið. Öll fjölskyldan er heima, nema JG sem dreif sig út að hjóla rétt áðan. JÓH er úti í bílskúr. Inga Hildur í sturtu og í unglingunum hef ég ekki heyrt enn. Það heyrðist í farsíma hjá öðrum hvorum þeirra rétt áðan. Ég held að það sé verið að reyna að vekja í ræktina eða sund. Ég er búin með eitt verkefni af lista dagsins og sendi nokkra pósta áðan en við erum að undirbúa haustfund sem á að vera um næstu helgi. Það er kvenfélagið altsvo. Annað verkefni dagsins er að ljúka við að lesa texta úr Eddukvæðum og byrja á verkefni sem þarf að skila á þriðjudaginn. Ég skráði mig í einn íslenskuáfanga í KHÍ í fjarnámi og verkefnaskil valda mér svitaköstum þessa dagana. Ekki það að þe...

Tónlist

Við ákváðum í vor að skrá JG í tónlistarskólann. Hann fékk að velja um gítar eða fiðlu og kvað upp úr með það að fiðlur væru fyrir stelpur og hann vildi læra á trommur eða töffaragítar! Þar með fór jafnréttisuppeldið, ég bara skil alls ekki hvaðan hann hefur þessar hugmyndir, hm... Hann fékk ekki að læra á trommur, þar bjargaði skólinn okkur því hann tekur ekki sex ára í slagverksnám (guði sé lof). Litli grunnskólaneminn kom svo afarstoltur heim úr skólanum í gær með gítarinn í fanginu. Hann er búinn að æfa sig stöðugt síðan og sýnir þessu mun meiri áhuga en lestrarbókinni sem kom líka heim í gær í fyrsta skipti. Núna situr hann fyrir framan sjónvarpið og horfir á Dalalíf í hundraðasta skipti og spilar með allri tónlist sem kemur fyrir í myndinni. Það er ágætt að hann heimtaði ekki að læra á trompet, það fær að bíða þar til í fjórða bekk. Annars var ég að hlusta á frétt áðan um samstarf tónlistarskóla í Reykjavík og nokkurra grunnskóla og áttaði mig þá á því að það eru orðin ein 12 á...

ber

Meðan naglasúpan mallar á eldavélinni setti ég nokkar myndir inn á tölvuna og rakst þá á þessar litförgru berja og sveppamyndir sem ég tók úti í Svarfaðardal um daginn. Fann þar auk berjanna þennan fína berserkjasvepp og beitilyngið er til skrauts um alla móa. En naglasúpan, sem er örugglega að verða soðin, er að meginhluta krækiberjahrat, sólber og vatn. Til að hafa eitthvað óvænt með þá setti ég eitt epli og skellti svo nokkrum eldrauðum reyniberjum saman við. Það verður fróðlegt að sjá og bragða útkomuna en þetta á að verða hlaup í fyllingu tímans. Eða kannski það fari allt í ruslið - hvur veit.