Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá júní, 2006

Sniglabandið

Mæli með Rás 2 á sunnudögum milli 14:00 og 16:00 en þá er Sniglabandið í beinni. Sérstaklega ef maður er "úti að aka" eins og við vorum í gær á leiðinni Borgarnes - Akureyri. Á hinum bílnum sem ekki var á leiðinni á Vindheimamela.

ofsaakstur

Ég sýndi ábyrgð mína sem borgari í morgun, tók upp gemsann, hringdi í lögguna og tilkynnti um ofsaakstur. Þegar ekið er á svo miklum hraða að ekki er hægt að sjá mikið meira en litinn á bílnum er ekki ástæða til annars og ekki síst þar sem um vegarspotta er að ræða þar sem er 5o km hámarkshraði og fyrir utan bíla eru aðallega börn á reiðhjólum eða gangandi á ferðinni. Þetta var á þjóðveginum fyrir neðan hjá mömmu. Þegar ég var 8-9 ára var ég að fara yfir veginn þarna og leit til beggja handa eins og mér var uppálagt sá bíl langt í burtu og tölti af stað. Bíllinn var bara ekkert á þeirri ferð sem mér sýndist hann vera og þegar ég er á miðjum veginum heyri ég flaut og þá er hann rétt hjá mér. Ég brást við þannig að ég sneri við og hljóp til baka í veg fyrir bílinn sem sveigði í þá áttina. Annar fóturinn á mér lenti utan í framdekkinu og skórinn minn rifnaði af. Aumingja strákasninn sem keyrði stoppaði bílinn, hentist út og hundskammaði mig. Ég stóð bara eins og stjörf. Þangað til annar b...

Sumarblíða

Við áttum góðan dag í gær. Fórum í eina stúdentsveislu, skemmtilega óformlega, inni í Kjarnaskógi. Nýstúdentinn er ekki sérlega mikið fyrir tilstand og stakk upp á pikknikk í Kjarnaskógi með kaffi og kleinum. Ýmislegt fleira hafði slæðst með í nestisboxið og skálað var í óáfengu kampavíni. Þetta var mjög gaman og til eftirbreytni. Við kíktum svo á Ráðhústorgið á Akureyri en seinnipartinum var eytt fyrir framan sjónvarpið. Við skutumst heim í hálfleik til að setja upp kvöldmatinn. Ég var búin að bjóða mömmu í mat og hún ætlaði að koma eftir leik. Þegar fimm mínútur voru eftir kom hún á harðaspretti. Gat ekki setið lengur ein heima yfir landsleiknum, spenningurinn var svo mikill. Tengdamóðir mín er mesti handboltaáhugamaður sem ég þekki og JÓH þorði ekki annað en að hringja í hana í gærkvöldi svona til að vita hvernig hún hefði það. Hún þekkir allt landsliðið með nafni og ætt og uppruna sumra. Hún hefur nærri eins mikinn áhuga á fótbolta, nema þegar afkomendurnir eiga hlut að máli. Í dag...

Fyrsta ferðin

Nú er ég búin að fá eldskírnina. Fór í Mývatnssveit á sunnudaginn í skipaferð með leiðsögumanni. Fékk aðeins að láta ljós mitt skína og meira að segja tekin upp á video í Dimmuborgum. (með fæturna í sitthvorri heimsálfunni!). Í gærmorgun fór ég svo ein með 52 í ferð sem heitir "a glimpse of culture" og þá er farin Eyjafjarðarhringurinn, sá stærri, skoðaðar tvær kirkjur, hestasýning borðað í Íslandsbænum og síðast en ekki síst verslað í Jólagarðinum. Ég bara stóð mig nokkuð vel. Gleymdi að kynna bílstjórann í upphafi ferðar, bætti svo úr því, var líka pínulítið skjálfrödduð svona fyrstu mínútuna. Ehemmm. En skemmti mér svo alveg konunglega restina af ferðinni. Svo er það bara Mývatnssveit í næstu viku.

Kaffi, mmmmm.....

What Kind of Coffee are You? You're a Classic Cup 'O' Joe! Take this quiz ! Quizilla | Join | Make A Quiz | More Quizzes | Grab Code

skólaslit

Var að koma heim af skólaslitum búin að kveðja krakkana mína fyrir sumarið og sé mörg þeirra ekkert fyrr en í ágúst aftur. Kveð alltaf með söknuði þó að ég sé líka í aðra röndina fegin að vera á leiðinni í sumarfrí. Nú ætla ég að vera heima og rækta garðinn minn (í eiginlegri og óeiginlegri merkingu) í sumar og hlaða batteríin. Ég er svolítið tvístígandi þessa dagana. Var ekki fyrr búin með námið sem ég var að bauka í í vetur en mig langaði til að gera eitthvað meira. Skráði mig í viðbótarnám í íslensku á vegum KHÍ og Menntamálaráðuneytisins. Það byrjaði fyrir hálfum mánuði og ef restin verður eins og þetta hófst held ég að ég fari nú bara í eitthvað annað. Þetta lyktar allt af því að það sé verið að búa til eitthvað sem heitir svolítið flottu nafni sem menntamálaráðherran getur stært sig af að sé í gangi. Ég eyddi einum og hálfum degi hérna niðri í háskóla í spjall með ágætum íslenskukennara úr KHÍ sem er til allrar hamingju nokkuð skemmtilegur maður en hann vissi eiginlega ekkert hva...

vorleysingar

Það rauk upp með sunnanroki í morgun með tilheyrandi moldroki úr ökrum og flögum bændanna í sveitinni. Ég harkaði af mér og hjólaði í vinnuna með moldarbragð í munninum. Íþróttaálfurinn var heima í dag, með slæman hósta. Stóra systir er búin í skólanum og "neyddist" til að vera heima hjá honum og leiddist með stórum stöfum. Hún ætlar að skella sér í bíó með bekkjarfélögunum á eftir og sjá Da Vinci lykilinn. Við hjónin fórum í öróvissuferð í gærkvöldi og enduðum á Friðrik V. Snæddum þar dýrindis máltíð í góðra vina hópi og komum alltof seint heim. Þetta er í annað skipti á nokkrum vikum sem við borðum hjá Friðrik. Bæði skiptin stórkostleg upplifun.