Tærnar á mér, alltaf þótt þær frekar flottar og ekki skemmir naglalakkið. Myndin tekin til minningar um grænu perlusaumuðu sandalana, svona rétt áður en þeir fóru í ruslið. Þeir eru ekki keyptir á spænsku markaðstorgi eins og ætla mætti heldur í Tiger á Akureyri og entust passlega sumarið og sólarströndina. Tiger er víst dönsk verslunarkeðja og á víst að bera fram "tí-er", en ekki eins og við gerum hér paa Island, allt upp á ensku ef að það skyldi vera útlenska á annað borð. Eftir að hafa farið í tvær heimsóknir til Spánar í ár á sitthvort landshornið hef ég komist að þeirri niðustöðu að Spánverjar tala ekki ensku. Tvær undantekningar þó. Garðyrkjumaðurinn sem kom og snyrti pálmatrén í garðinum, lagði sig allan fram við að rabba við okkur um landsins gagn og nauðsynjar, enda fannst honum þetta mesta vitleysa að vera að standa í þessu klifri á þessum árstíma, vegna hitans, þambaði 3 lítra af vatni á milli þess sem hann klifraði upp í pálmatrén vopnaður sveðju og einhverju sem ...
Í dagsins önnum.