Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá maí, 2007

Sunnudagskvöld

Jamm og jæja. Þá er Júróvisjón búið þetta árið. Lagið sem ég kaus vann. Mér fannst hvorki finnska lagið né það sænska (voða líkt mjög gömlu Bay City Rollers lagi sem mamma á á plötu) skemmtilegt, þannig að ég sveik lit og kaus Austur-Evrópuþjóð. Ég er alveg sammála þeim sem vilja breyta fyrirkomulaginu á keppninni. En ég er ekki viss að það sé rétt að skipta undankeppninni í austur, vestur. Svo var það kosningasjónvarpið. Við gáfumst upp á Rúv fljótlega, það voru svo mikil læti og verið að reyna að gera allt í einu. Á stöð tvö var til dæmis gefið upp á skjánum hvenær tölur voru væntanlegar en rúv klippti bara á það sem var að gerast og skellti upp tölunum, skipti svo beint aftur án þess að skoða nokkuð hvað gerst hafði eða ekki. En grafíkin er alltaf flottari hjá Rúv. Ég vona svo bara að við fáum nýtt ríkisstjórnarsamstarf sem fyrst. Verst að það verður að öllum líkindum með sjálfstæðisflokknum í forsæti.

Efnilegur ...

Dreif mig af stað um fimmleytið út í Krossanesborgir þar sem leiðsögumenn voru búnir að mæla sér mót við Sverri fuglaáhugamann númer eitt hér á svæðinu. Hann rölti með okkur um borgirnar vítt og breitt og benti okkur á fugla. Við komum til dæmis auga á tvo flórgoða sem eru ekki varpfuglar á þessu svæði og ég held bara að ég þekki núna í sundur þrjár mávategundir. Það var heldur kalt en mjög gaman að öðru leyti. Þegar ég kom heim voru börnin orðin frekar svöng en höfðu tekið til hendinni. "Litla barnið" fór og lagaði til í hjónaherberginu og lagði m.a. náttfötin hennar móður sinnar mjög snyrtilega á rúmið hennar megin. hann er samt ekkert fyrir að taka til í sínu eigin herbergi.

Bleik frímerki

Fermingarbarnið situr inni í stofu þessa stundina og sleikir frímerki til að skella utaná umslögin með boðskortunum. Pabbi fór og keypti græn umslög utan um kortin - í stíl að sjálfsögðu - hringdi meira að segja heim sérstaklega til að bera litinn undir álit sérfræðings (þ.e.a.s. fermingarbarnsins). Hann var samt ekki undirbúin þegar stúlkan saup hveljur yfir litnum á frímerkjunum. En þau eru æpandi bleik og EKKI í stíl...