Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá júní, 2005

Fuglaveiðar

Skark og læti utan við svefnherbergisgluggann vakti okkur í morgun. Hrossagaukur gaggaði svo í nágrenninu og varaði við yfirvofandi vá. Einhver hlustaði ekki og veiði morgunsins liggur hérna úti. En pjattrófan okkar virðist ekki hafa lyst á fjöðrum. Þarna var líklega Blíða að verki, því það gleymdist að loka glugganum í þvottahúsinu í gærkvöldi! Hann Fúsintes heitinn, bröndótti kisinn hennar mömmu át það sem hann veiddi, jafnt ferfætlingana sem þá fiðruðu. Tvíburarnir gerðu rannsóknir á þessu og komust að því að hann gleypti fuglinn og hrækti svo út úr sér fjöðrunum, en mýsnar borðaði hann frá haus og afturúr en sleppti skottinu. (Þeir voru 5-6 ára þegar þessar rannsóknir fóru fram og virðist ekki hafa orðið meint af þessum "blóðugu" upplifunum.)

Sumarnætur

Nú er sumarnótt og fjörðurinn er feiminn svo að fagurrauðum log slær um heiminn. Er það satt að sólin gefi gaum er hún gengur yfir hafið dreymin? Litverp skýin uppí lofti varla ná sér og þau langar til að segja: Ertu frá þér! Jafnvel fjöllin roðna og fara hjá sér; allir firðir eiga svona draum. Næturþögnin tregablandin tárast titrar dögg um stund á birkigrein. Eirðarleysið sólinni er sárast, sína leið hún gengur burtu ein. Og í stundarkvöl sig felur bak við fjöllin faðmar hana að sér gullin skýjahöllin þar til morgungeislar verma völlinn, vekja fjörðinn upp með lífsins glaum. Síðla dags hann gefur henni gætur, glæðist aftur roði sumarnætur; henni er ekki eins leitt og hún lætur læðist nær og vekur nýjan draum. Við vorum á leiðinni heim úr afmæli á seinni tímanum í miðnætti í gærkvöldi þegar fjörðurinn var nákvæmlega eins og lýst er í þessu ljóði Emilíu Baldursdóttur. Þá langar mig mest af öllu að vaka alla nóttina, hlusta á fuglana og ána og finna ilminn af sumrinu. Þetta gerist ekki ö...

Fjörugróður

Blóm

Blágresi og sóleyja í fossúðanum við Seljalandsfoss

Heima er best

Kisugreyið okkar er búin að vera ein heima í heila viku, innilokuð (við töldum það áhættuminnst). Hún varð heldur glöð þegar við duttum inn úr dyrunum í gærkvöldi og er búin að mjálma yfir fjölskyldumeðlimum í kvörtunartón síðan. Eftir að hafa slegið lóðina strax við heimkomu héldu nafnarnir út í Svarfaðardal í morgun. JG tilkynnti það þegar hann vaknaði að þangað ætlaði hann í dag!! Ég fór afturámóti út í garð og reyndi aðeins að klóra í umhirðuleysi síðustu vikna. Komst að því m.a. að það kom ekki upp svo mikið sem ein gulrót af öllu því sem ég sáði! Skil bara ekkert af hverju. En það er nú ýmislegt annað ætilegt sem sprettur bara vel. Þannig að ég læt nú ekkert hugfallast. Svo brunuðum við IH í bæinn að versla og ná í útilegumanninn sem var að koma frá R-vík í dag og langaði alveg óskaplega mikið heim. Hann hefur ekkert komið frameftir alla vikuna. Gisti bara hjá Dísu í bænum. Enda er hann búinn að loka sig inni í herbergi hjá tölvunni og ég býst ekki við að sjá hann fyrr en í fyrr...

jubilantar

Við hjónakornin erum að halda upp á tuttugu ára (segi og skrifa) stúdentsafmæli þessa dagana. Ég verð víst að viðurkenna að úthaldið hjá mér hefur minnkað með árunum, hvort sem það er aldurinn eða eitthvað annað. Lokahófið er í kvöld þegar við mætum í höllina í samkvæmisklæðnaði og skemmtum okkur með öðrum jubilöntum (ég veit nú ekki alveg hvort þetta latneska orð er rétt stafsett hjá mér), eða eitthvað um sjöhundruð manns. Það er búið að vera fj. skemmtilegt síðustu tvo daga en ég verð að viðurkenna að ég er svolítið slæpt í dag. Við fórum í stutta skoðunarferð um okkar gamla skóla í gær. Sverrir Páll leiddi okkur um nýbyggingarnar og útskýrði ýmsar breytingar. Nú ber svo við að ýmislegt dót sem notað var þegar við vorum við skólann er komið upp á háaloft og er þar til sýnis. Sýnishorn af gömlum tölvum og básar úr málastofunni (sælla minninga) svo dæmi séu tekin. Við JÓH notuðum tækifærið fyrst við vorum á staðnum á virkum degi og gengum úr skugga um hvort umsóknir sona okkar væru ekk...

Blómstrandi runnar

Garðurinn hefur oft litið betur út í byrjun sumars, en það er eitthvað aðeins að lifna yfir honum. Ég sneiddi alveg hjá því að mynda koparreyninn sem er þarna við hliðina en blöðin á honum sölnuðu í kuldanum um daginn. Ég er að senda þessar myndir í gegnum Hello og það þýðir ekkert að senda texta með það koma bara kassar fyrir broddstafina og þ & ð. Þetta er ekki alveg nógu sniðugt.

Meira sólskin

Ég verð alltaf hálf dösuð eftir að hafa verið lengi úti í sólinni. Það er nefnilega sól og blíða fyrir norðan í dag. Bara alvöru sumar með logni fyrir hádegi og hafgolu seinnipartinn. Steikjandi hiti á pallinum í Brekkutröðinni. Ég dró Þorgerði mágkonu með mér í kvennahlaupið hér á Hrafnagili og tókum við dætur okkar með. Þær hlupu auðvitað eitthvað á undan okkur nema þessi minnsta sem var bara í vagninum sínum. Svo voru grillaðar pylsur á eftir og boðið upp á ýmsar mælingar sem ég sleppti í þetta sinn. Við fórum bara í Vín með mömmu og fengum okkur ís í tilefni dagsins. Þannig að ég er eiginlega alveg búin að vera í augnablikinu. Ég hef samt grun um að slen undanfarinna daga megi rekja til þess að ég er að taka inn rándýrar töflur úr grænu tei sem eiga að vera svona ansi hollar. Hm.

Sólskinsdagar

Hérna fyrir neðan skrifaði ég uppáhaldssetninguna úr Dalalífi eftir Guðrúnu frá Lundi. Ég er byrjuð á sumarlesningunni, búin að blaða í gegnum bindin fimm og er loks byrjuð aftur á fyrsta bindinu. Til að lesa almennilega. Skyldulesning a.m.k. annað hvert ár en bara í sumarfríinu. Nokkrar blaðsíður á kvöldi og njóta allra skemmtilegu orðanna og setninganna. Í fyrsta kaflanum eru þessi orð: "Það var hagfræðin, sem þá réð hjónaböndunum. Ástin var lítið þekkt olnbogabarn, sem sjaldan þorði að láta sjá sig í birtunni".

Samræmd próf

Tvíburarnir fóru með mér niður í skóla í dag til að fá að vita hvernig þeir hefðu komið út úr prófunum. Þeir voru missáttir við útkomuna en geta verið alveg hæstánægðir sýnist mömmu gömlu. Nú geta þeir farið að ganga frá umsóknum í framhaldsskóla. Annar þeirra er búinn að ákveða að sækja um MA og sjá til hvort hann kemst inn. Hinn er ekki alveg ákveðinn ennþá. Ég heyrði áðan í útvarpinu að meðaleinkunnin væri lægst í samfélagsfræði og skil það vel því ég skoðaði prófið um daginn!!

Gómsætt

Gómsætt í sólinni. Ég keypti þennan fína blómabakka á tvöhundruðkall í Tiger á föstudaginn.

Sól og blíða

Sunnudagsmorgun í sveitinni.

kál, krydd og fleira

Ég fékk þessa frábæru skyndihugdettu í morgun þegar ég var búin að skutla Halldóri í tónlistarskólann. Kom við í BYKO og keypti mér einn lítinn ræktunarkassa. Svo hringdi ég í JÓH og tilkynnti honum að hann þyrfti að munda skrúfjárnið í kvöld. Ég fattaði svo áðan að það fylgdu víst engar skrúfur, það er nú kannski hægt að bjarga því en það vantar víst lamir líka þannig að betri helmingur minn verður að koma við í byggingarvöruverslun. Nú ætla ég að henda gamla jarðaberjareitnum og grisja jarðaberjaplönturnar. Það hefur ekki verið nein óskapar uppskera hjá mér undanfarið þannig að ég ætla að minnka svolítið umfangið í bili. Af því að ég var nú komin af stað í þessari hugmyndavinnu þá varð ég auðvitað að koma við í Kjarna og keypti þar slatta af bláum stjúpum. Sem eru að vísu ekki alveg í réttri sétteringu við húsið!!! Mér fannst þetta bara fallegasti liturinn. Þær eiga að fara í lítil beð sem eru kringum reynitrén mín tvö. Bætti svo við nokkrum kálplöntum og kryddjurtum. Ég ætla svo að...

Morgunstund gefur gull í mund

Ég var nú samt ekkert sérstaklega hress í morgun þegar síminn hringdi fyrir hálf átta. Allra síst vegna þess að við fórum nú ekki að sofa fyrr en að ganga fjögur í nótt. Hm... Meðan JÓH var í blaðamennskunni kom það oft fyrir að menn hringdu til að ræða málin, á öllum tímum sólarhringsins og í misjöfnu ástand. Þeim ágangi linnti nú að mestu þegar hann skifti um starfsvettvang. En sýnilega ekki alveg. Ég var búin að ákveða að sofa lengi frameftir í morgun, enda gott næði. Inga Hildur og Jóhann Gylfi bæði að heiman og tvíburarnir bæra nú ekkert á sér fyrr en eftir hádegi nema tilneyddir. Þeir eru að reyna að sofa út... áður en þeir byrja að vinna og þurfa að fara að vakna sjálfir. En fyrst ég er vöknuð á annað borð er best að drífa sig á fætur og fara út í sólina.