Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá nóvember, 2012

Vetrarveður

 Svona var umhorfs hér í Brekkutröðinni í morgun.  Maddama Blíða þurfti að taka ein fjögur tilhlaup til að komast út í gærmorgun en hefur ekkert lagt það á sig í dag. Svona lét hún fara vel um sig í gærkvöldi.  Í frystikistunni leyndust nokkur tólgarkerti sem brenna með kyrrlátum loga og notalega hátíðlegt að horfa á. Enginn skóli í gær föstudag og manni finnst því vera sunnudagur í dag. Meðan snúðarnir voru að hefast og bakast las ég eina af bókunum sem ég greip með mér af safninu í vikunni. Hún heitir "Að endingu" og er eftir Julian Barnes. Endirinn kom pínu á óvart og því fletti ég aftur á fyrstu síðuna og blaðaði í upphafinu aftur. Hm.. jahá einmitt...  Mæli með henni ekki löng en heillandi lesning og vel þýdd.