Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá mars, 2011

Bækur

Þegar bókastaflinn var farinn að flæða út á gólf, tók ég til á náttborðinu. Söguþættir landpóstanna sem verið hafa á náttborðinu og gólfinu síðan um jól fengu stað uppi í hillu ásamt mörgu fleiru. En þetta er bunkinn sem varð eftir:  Íslensk matarhefð eftir Hallgerði Gísladóttur Sturlunga - fyrsta bindi Harry Potter and the deathly hollows (verður þarna þar til ég er búin að fara á síðustu myndina).  Nýjasta bókin hans Braga Ólafs, þessi með langa titlinum. Er að byrja aftur á henni og ætla að klára núna.  Lítil bók með dönskum jólasögum - í láni frá mömmu. Skíma málgagn móðurmálskennara  - Myndin er svarthvít því Inga H. var að fikta eitthvað í myndavélinni!