Öskudagur Öskudagsbúningurinn er prufukeyrður á sprengidagshátíð í skólanum, stundum jafnvel búið til tvöfallt sett en ekki að þessu sinni. Í fyrra var drengurinn Viddi úr Leikfangasögu - Toy story. Núna Tinni. Að sjálfsögðu. Árla morguns á öskudag setti ég gelið aftur í hárið á drengnum, spreyjaði svo yfir með gulu og hárlakkaði yfir allt. Greiðslan hélt til kvölds þegar hann var skikkaður í sturtu sér til armæðu. Um átta leytið mætti sá fyrsti úr hópnum, lögrelgumaður í fullum herklæðum. Við fórum svo af stað og tókum upp í einn Iron man, kúreka og einn í svartri skykkkju yfir vetrarúlpunni. Það er betra að vera vel klæddur. Fyrsta stopp Eimskip þar sem þeir stukku glaðir inn á Flytjanda og síðan Eimskip þar sem starfsmenn voru uppáklæddir í tilefni dagsins. Ég sá a.m.k.einn kúreka inn um gluggann. Þeir fengu síðan að labba en ég fór og fékk kaffi á skrifstofu S.B.A. í Hjalteyrargötu. Þar sátu starfsmenn á skrifstofu og tóku á móti syngjandi börnum, undir borði var stór ...
Í dagsins önnum.