Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá febrúar, 2007

Öskudagur

Einu sinni á ári langar mig til að vera búðarkona, það er á öskudaginn. Ég fæ að vísu að vera bílstjóri, keyri krakkana í bæinn og fer svo í kaffi til Dísu systur og hlusta á söng í klukkutíma eða svo og það er sko skemmtilegt. Yfirhöfuð leggja krakkarnir sig fram og eru þakklát fyrir það sem þeim er rétt að launum. Jóhann var svo óheppinn að vera aleinn í húsinu þar sem hann er með skrifstofu og í fyrsta skipti í mörg ár kom enginn til hans nema Inga Hildur og stelpurnar. Einkadóttirin og fermingarbarnið tilvonandi er líklega á sínu síðasta ári í öskudagsliði. Þær frænkur langaði bara svo mikið í bæinn og eyddu löngum tíma í að mála sig áður en lagt var af stað upp úr átta í gærmorgun. Lögin voru æfð á leiðinni í bæinn og svo sungu þær af hjartans lyst. Ég ætla ekkert að segja frá því hvað sælgætið var mikið sem þær komu með heim en seinnipartinum var eytt fyrir framan sjónvarpið í sykurvímu. JG var Jack Sparrow eins og sjá má og fór hæstánægður á leikskólann. Hann er að byrja í skóla...

Söngvakeppni VMA

Úlfar Bjarki, sem reyndar er nemi í MA, tók þátt í söngvakeppni VMA á dögunum. Ekki söng hann í þetta seinn en sést hér munda saxafóninn lengst til hægri á myndinni. Þó söngvarinn næði ekki verðlaunasæti voru þeir hæstánægðir með sína framistöðu. Fannst bara verst að fá ekki tækifæri til að taka lagið aftur.

"Hvaða Eiríkur...?"

Yfirskriftin er orðrétt tilvitnun í einkadótturina þegar móðirin dásamaði tiltekinn flytjanda eins Júróvisjón laganna. Mamma uppgötvaði þá að það er orðið ansi langt síðan árið var nítjánhundruð áttatíu og eitthvað og Eiki er búinn að búa í Norge síðan áður en fermingarbarnið fæddist. Hvað um það. Í okkar partýi stóðu fermingarpíurnar upp þegar úrslit voru ljós og lýstu því yfir að þær ætluðu ekki að horfa á Júróvisjón í maí. Allir aðrir viðstaddir ætla að mæta hér spenntir fyrir framan skjáinn og fylgjast með okkar fulltrúa áður en pólitíkin kemst að. Enda erum við þess fullviss að hann komist beina leið í úrslitin á leðurbuxunum. Ég uppljóstra því samt að ég kaus Heiðu tvisvar (fyrir mig og mömmu) og svo Eirík einu sinni (fyrir mig). :)

prjón og meira prjón

Þegar allt um þrýtur fer ég að horfa á American Idol endurteknar endursýningar á ITV. Það virkar vel með prjónaskapnum því maður þarf ekki að horfa neitt mjög mikið. Ég komst yfir ansi skemmtilega bók á dögunum sem heitir Vettlingar og fleira. Allar uppskriftir hannaðar fyrir plötulopa og að mestu í sauðalitunum. Getur ekki hentað mér betur. Ég er búin að prjóna eina vettlinga og þæfa og er að fara að byrja á öðrum. Meðfram er ég að prjóna vettlinga úr Tove sem á líka að þæfa. Svona til að kóróna sjónvarpsglápið hjá mér er JÓH að munda sig með penslilinn og er að mála meðfram loftinu í stofunni en við (lesist hann (ég er svo ansi slæm í bakinu ehe..)) ætlum að renna eina umferð yfir loftin um leið og við málum ganginn. Þetta (loftið) þarf eiginlega að vera búið fyrir laugardaginn en þá verður auðvitað Júróvisjónpartí. Að sjálfsögðu verður maður að reyna að hafa gaman af þessu.

Svartir kettir og aðrir...

Við hjónakornin skelltum okkur í leikhús í kvöld og sáum Svartan kött hjá LA og skemmtum okkur vel. Þrátt fyrir að hafa farið með hálfum huga því verkið hefur fengið misjafna gagnrýni. Óumflýjanlega ber maður saman þessar tvær sýningar, Herra Kolbert og Svartan kött, en þær eiga ekki mikið sameginlegt annað en að vera dálítið blóðugar, eða þannig. Sem er það sem mér finnst helst gagnrýnivert að skella á tveimur svona verkum hverju á eftir öðru á sama leikárinu. Það er held ég fullmikið að kyngja fyrir dygga aðdáendur LA sem eru komnir af léttasta skeiði. Ég hitti eina á áttræðisaldri í hléinu sem fannst alltof mikill hávaði, en tónlistin er notuð til áherslu og til að fela skiptingar milli atriða. Mjög flott. Það sem fólk hefur hneykslast mest á gerist ekki fyrr en í seinni hlutanum og ég hitti því miður engan í lok sýningarinnar sem ég þekkti en heyrði athugasemd frá ungum manni fyrir utan leikhúsdyr sem sannfærði mig um það að þetta verk höfði líklega betur til yngri áhorfenda. Ég hl...