Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá janúar, 2006

Eftir blótið

Það er ekki laust við að ég sé ennþá svolítið lúin. Ég er komin á svo virðulegan aldur að ég get ekki vakað endalaust án þess að það séu einhver eftirköst og þá á ég ekki við timburmenn. Þorrablótið tókst svona líka dæmalaust vel. Við skemmtum okkur konunglega og klukkan var allt í einu orðin næstum 4 og við ákváðum að tími væri kominn til að drífa sig heim. Börnin að passa og gista á ýmsum stöðum, svo við vorum ein heima. Ég vaknaði samt í gærmorgun klukkan átta eins og venjulega. Sofnaði líka snemma í gærkvöldi.

Hm...

Your Power Color Is Teal At Your Highest: You feel accomplished and optimistic about the future. At Your Lowest: You feel in a slump and lack creativity. In Love: You tend to be many people's ideal partner. How You're Attractive: You make people feel confident and accepted. Your Eternal Question: "What Impression Am I Giving?" What's" Your Power Color?

"Nú er frost á fróni"

Þetta verður örugglega sungið af krafti í kvöld á þorrablóti íbúa Eyjafjarðarsveitar, þó að úti sé sunnanvindur og sjö stiga hiti. Ég er búin að taka til matinn að mestu, búin að sortera ballkjólana og velja úr. Auðvitað var blettur í kjólnum sem að ég valdi fyrst þannig að ég henti mér í að þvo og strauja. Eftir dauðaleit að nælonsokkabuxunum sem ég keypti í gær, var JÓH sendur með miða í bæinn og nákvæmar lýsingar á stærð og lit. Hann leysti auðvitað úr þeim vanda án vandræða. Þegar ég var loksins búin að ná blettinum úr og þurrka kjólinn með straujárninu fór ég, IH til mismikillar skemmtunar, að máta "gömlu" kjólana mína. Á endanum ákvað ég svo að fara á blótið í kjól sem ég hef nú ekki lagt í að fara í í mörg ár öhö... (svartan þröngan flaueliskjól!!!) Þannig að ég er bara ánægð með sjálfa mig. Svo er spurningin, hvernig verða skemmtiatriðin, annállinn, hljómsveitin (ég keypti mér nýja skó um daginn)??? "frýs í æðum blóð kveður kuldaljóð kári í jötunmóð...." Brr...

ég bloggaði í fyrradag líka

Samkvæmt veðurspánni átti að vera stórhríð og stormur hér í morgun. En það hefur ekki bærst hár á höfði hér í allan dag. Hagstæði vindátt fyrir okkur framfirðinga. Ekki það að það hefði breytt neinu. Hér er ekki lengur felldur niður skóli vegna veðurs og meðan ég kemst sjálf í vinnuna á ég að mæta. Sem er auðvitað bara hið besta mál. Helgin var auðvitað ekki sérlega góð fyrir mig og nýju vigtina. Þetta er hin mesta græja sem ég fjárfesti í. Tölvustýrð með ýmsum möguleikum. Enda var hún fokdýr. Ég ákvað að það væri betra að hugsa um gæði frekar en verð minnug þess að sú síðasta(ódýrt drasl!) entist ekki í ár. (Af hverju skyldi það nú vera??) En tölurnar eru ekki alveg nógu jákvæðar. Hmmm... Svo er ég farin að sauma út. Eftir að ég fékk gleraugun og sé heiminn í nýju ljósi, eða þannig, dró ég fram gömul ókláruð handavinnuverkefni og ætla að hlamma mér fyrir framan sjónvarpið í kvöld og glápa á endursýningu á Golden globe verðlaunaafhendingunni á stöð 2. Milli þess sem ég munda nálina og ...

Letilíf!

Matarklúbbshelgi. Loksins höfðum við okkur í það að hittast fjölskyldurnar á hlutlausu svæði, mættumst nokkurn vegin á miðri leið. Í Ytri-vík á Árskógsströnd og lögðum undir okkur gamla húsið með öllu tilheyrandi. Það var komið að okkur að sjá um matinn en við fengum aðstoð í þetta sinn því Maggi og Rut komu með kóngakrabbaklær með sér frá Ólafsfirði sem hafðar voru í forrétt og Hofsárbændur lögðu til annað af tveimur lambalærum sem lögð voru á grillið. (Hitt lambalærið var að vísu líka af Hofsárskum uppruna en rataði í frystikistuna okkar upp úr haustslátrun). JÓH sá um eldamennskuna að mestu og ég um meðlætið. Það er svo skrambi góð verkaskifting á þessu hjá okkur. Það er víst best að geta þess að við vorum með börnin með okkur því þó að við séum öll mikil átvögl eru tvö læri full mikið fyrir sex manneskjur en við vorum tólf sem sátum til borðs en þrettándi gesturinn er bara fimm mánaða. Það var nú samt alveg hægt að borða yfir sig og enginn fór svangur í rúmið. Við tókum því svo fr...
Er búin að vera að velta fyrir mér fjölmiðlaumhverfinu á Íslandi undanfarna daga. Þegar við hjónakornin byrjuðum að búa fengum við ekki færri en 6 dagblöð inn um lúguna á morgnanna og skiptum bunkanum á milli okkar með morgunkaffinu. Núna kaupum við eitt dagblað og eitt héraðsfréttablað sem kemur út annað slagið. En við erum með þrjár nettengdar tölvur á heimilinu (þrjú sjónvörp líka) og fréttaþorstinn hefur lítið minnkað. Ég skrifa sjálf einskonar fréttasíðu á blogginu þar sem og segi frá ýmsu sem á dagana drífur. Ég áttaði mig mjög fljótt á því þegar ég fór að blogga að þú skrifar ekki hvað sem er og ritskoðunin er slík að fleiri pistlar fara yfirleitt í ruslið en þeir sem birtir eru. Ég setti mér til dæmis fljótt ákveðna staðla. Til dæmis að skrifa helst ekki um heilsufar fjölskyldumeðlima allra síst um krónísk veikindi. Mér finnst það bara ekki skemmtileg umræðuefni og fátt leiðinlegra en einstaklingar sem eru stöðugt að velta sér upp úr sínu heilsufari og annarra. Ég ákvað líka að...

lífið eftir jólin

Þá er maður kominn aftur á skrið eftir hátíðirnar. Búið að pakka niður jólaskrautinu og breyta í stofunni að því tilefni. (þvoði meira að segja glugga í leiðinni og geri aðrir betur). Ekki byrjuð í ræktinni samt... Á morgun? Datt skyndilega í hug um þrjú leytið í dag að ég þyrfti nauðsynlega að fara á snyrtistofu. Hringdi og fékk tíma seint seinnipartinn. Þannig að ég er voðalega fín núna lituð og plokkuð(vöxuð). Ákvað að gera e-ð meira úr þessu og gerði smá skrens í vefnaðarvörubúðum, fyrir skólann. Endaði svo í Heilsuhorninu og bað um vítamín. Konan horfði sem snöggvast á mig og sagði svo: "Ég sé alveg hvað þig vantar" seldi mér svo eitthvað sem heitir Spirulina og er víst alveg ægilega gott fyrir orkulausar konur! Annars hef ég litla trú haft á svona dóti, verð alveg að viðurkenna það. En helgin var meiriháttar. Skruppum á föstudag með yngra barnasettið (unglingarnir eru að lesa fyrir próf) vestur á Krók og snæddum fiskisúpu með meiru hjá fjölskyldunni í Háuhlíðinni. Guðr...

Annar í nýjári

Gamlársdagur á Dalvík. Að venju var fjölskyldan drifin á fætur fyrir allar aldir á gamlársdag. Við ákváðum að fara hringinn í dalnum og komum við á "Hólnum". Skoðuðum jólaseríurnar og JÓH náði í skóna sína sem hann gleymdi í seríuferðinni! Svo var komið við í kirkjugarðinnum áður en tekið var hús í Hringtúninu og snæddur grjónagrautur hjá Ásrúnu og Adda og árið tekið út. Venjulega getum við tekið því mjög rólega á gamlársdag en núna var mamma að vinna og það kom í okkar hlut að að vera með mat. Þannig að JÓH stillti sér upp við eldavélina þegar við komum heim og steikti svínakótelettur og lambalærissneiðar. Bara upp á gamla móðinn með eggi og raspi. Pabbi, Gísli og Þorgerður og krakkarnir voru með okkur í þetta sinn þannig að við vorum tólf. Við fórum svo á brennuna en eftir hana heim til pabba og mömmu og vorum þar um miðnættið þegar mamma kom heim úr vinnunni. Eins og sjá má á myndinni sem er tekin um morguninn var þetta fína veður og það hélst alveg fram á nýja árið. Við l...