Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá apríl, 2006

Kaffi, kaffi, kaffi...

You are a Black Coffee At your best, you are: low maintenance, friendly, and adaptable At your worst, you are: cheap and angsty You drink coffee when: you can get your hands on it Your caffeine addiction level: high What Kind of Coffee Are You? Ég sá nefnilega frétt um það á mbl.is í dag að uppáhellt kaffi væri ekki heilsuspillandi!!

Hausverkur

Íþróttaálfurinn strunsaði beint inn í herbergið sitt þegar við komum heim og klæddi sig í náttföt. Þegar ég mætti honum svo á ganginum með sængina sína í eftirdragi spurði ég hvort eitthvað væri að? "Ég er með hausverk í maganum" sagði hann og lagðist upp í stofusófa með sængina sína ofan á sér og pantaði barnaefni. Hann er að æfa sig í því að loka öðru auganu.

Prjón

Helgin búin. Síðasta vika aprílmánaðar framundan. Bara komið sumar samkvæmt dagatalinu, það er að segja. Ég keypti mér dýrt garn í Storkinum um daginn og byrjaði á sjali sem ég er búin að vera með á dagskrá að prjóna í ein tvö ár. Það er efnismeira en ég hélt og verður líklega dýrasta fataplagg sem ég eignast á þessu ári. En ógeðslega flott líka!

Annar í páskum

Jæja þá eru þessir páskar að líða hjá. Ég er búin að vera svo dugleg að ég sá enga ástæðu fyrir að vera með samviskubit yfir því að kúra lengi dags í nýja rúminu og lesa Harry Potter og blendingsprinsinn (í annað sinn(á ensku auðvitað- þarf að æfa mig í að hugsa á ensku!)). Við máluðum hjónaherbergið, keyptum nýtt rúm og minnkuðum við okkur um 48 cm eða þar um bil. Nú verður litli prinsinn á heimilinu að sofa í sínu rúmi framvegis. Ég saumaði líka nýjar gardínur og keypti púða í stíl svona til að fullkomna umskiptin. Fyrst ég var byrjuð á gardínunum fékk Halldór mig til að kaupa og sauma nýja gardínur fyrir herbergisgluggann hjá sér og Inga Hildur fékk líka nýjar gardínur en hún keypti tilbúna vængi sem ná niður á gólf en hún bindur upp á einhvern óskiljanlegan máta og finnst auðvitað "oggisslega" flott. Ég eyddi líka einum degi í að slá inn verkefni sem skila á næsta laugardag og við vorum búin að vinna að mestu í hópnum sem ég er í og svo skrapp ég í Mývatnssveitina með SBA...

Svarfaðardalur

Sólfar í Svarfaðardal í gær. Fjölskyldan hengdi vélsleðakerruna aftan í strumpastrætóinn og dreif sig í Dalinn með nesti og nýja skó. Komumst að því að fram af "Hólnum" er þessi fína sleðabrekka en vorum líka fegin að rafmagnið var á því fennt var kjallaradyrnar þar sem taflan er staðsett. Við gátum því hitað okkur kakó og yljað okkur aðeins í litla húsinu. Ekki að það hafi verið nein þörf á að hlýja sér því veðrið alveg yndislegt þó sólskinið vantaði.

Lake Mývatn winter tour 2

Skófir og grasstrá. Litir náttúrunnar.

Lake Mývatn winter tour

Myndin er frá Hveraröndinni í Námaskarði. Ef rýnt er má sjá holu sem sem er fótspor eftir ógæfusamann ferðamann sem eyddi afgangnum af sumarfríinu á spítala. Þetta og ýmislegt annað skemmtilegt fræddist ég um í gær þegar ég fékk að fljóta með sem "assistant" í Mývatnstúr. Mæli hiklaust með því að fólk geri sér ferð þarna austur að vetrarlagi því stórbrotin fegurð náttúrunnar nýtur sín ekki síður að vetrarlagi. Svo er alveg gráupplagt að fara í bað í Jarðböðunum í leiðinni. Við skruppum þarna fjölskyldan á föstudaginn langa í fyrra (ekki í píslargönguna þó) .

Goðafoss

Goðafoss í vetrarbúningi Myndin er tekin fyrir nokkrum vikum síðan þegar ég fór í Mývatnssveitina. Ég kom þarna aftur viku seinna og þá var fossinn í klakaböndum og miklu tilkomumeiri. Því miður gleymdist myndavélin heima í þeirri ferð.