Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá nóvember, 2006

Ég er hérna ennþá

Keyrði upp nýjan blogger í gærkvöldi og það hafa dottið út einhverjir stafir. Ég þarf að gefa mér tíma til að fara yfir uppsetninguna einhverntíman fljótlega. "Þegar ég nenni"... Allt gott að frétta úr snjónum, sem óðum virðist vera að hverfa. Það var hálf ófært hingað í dag, þannig að mamma náði í mig seinnipartinn til að bjóða mér í nýbakaðar kleinur. Þau pabbi eru í fyrsta sinn með negld snjódekk á jeppanum en það hefur heldur en ekki komið sér vel undanfarna daga. Desemberbyrjun nálgast óðfluga. Ég verð að ljúka við ákveðið verkefni fyrir föstudag. Hvað getur það verið mikið mál að skrifa eina andsk. ritgerð upp á 3 síður?? Það er ekki spurning um að fá frest það þarf að ljúka þessu af punktur. Það er víst nóg annað að gera. Við ætlum á Herra Kolbert á föstudagskvöldið. Á laugardaginn verður laufabrauðið. Og svo framvegis.... Bless í bili.

Tarrot hvað??

You are The Empress Beauty, happiness, pleasure, success, luxury, dissipation. The Empress is associated with Venus, the feminine planet, so it represents, beauty, charm, pleasure, luxury, and delight. You may be good at home decorating, art or anything to do with making things beautiful. The Empress is a creator, be it creation of life, of romance, of art or business. While the Magician is the primal spark, the idea made real, and the High Priestess is the one who gives the idea a form, the Empress is the womb where it gestates and grows till it is ready to be born. This is why her symbol is Venus, goddess of beautiful things as well as love. Even so, the Empress is more Demeter, goddess of abundance, then sensual Venus. She is the giver of Earthly gifts, yet at the same time, she can, in anger withhold, as Demeter did when her daughter, Persephone, was kidnapped. In fury and grief, she kept the Earth barren till her child was returned to her. What Tarot Card a...

virkur dagur

Við hjónakornin skruppum örferð til höfuðborgarinnar um helgina. Flugum suður seinnipartinn á föstudag svo seint að við höfðum rétt tíma til að hendast upp á hótelherbergi og skipta um föt. Við fórum svo með vinnufélögum JÓH austur á Eyrarbakka og borðuðum humar (sumir völdu frekar lambasteik!!!) meðan við hlustuðum á Borgardætur. Þetta var semsagt í Rauða húsinu á Eyrarbakka. Loksins erum við búin að fá mat þar en þetta var okkar önnur tilraun til þess. Í sumar fórum við þarna við áttunda mann og ætluðum að gæða okkur á e-um sjávarréttum þegar yngsta fjölskyldumeðlimnum varð mjög skyndilega mjög illt í maganum. Hann kastaði upp yfir sjálfan sig og borðið þannig að við drifum hann í burtu. Ferðafélagar okkar urðu eftir og fengu sinn mat eftir að staffið hafði af miklu fumleysi og án þess að láta sér bregða hreinsað upp og lagt á borð upp á nýtt(á augabragði). Við urðu ekki fyrir vonbrigðum, hvorki með matinn né annað. Frábær staður. Á laugardaginn fórum við í Ikea eins og allir, hittum...