Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá desember, 2005

Annar í jólum

Eftir rauðan aðfangadag og jóladag í roki og rigningu er loksins farið að snjóa örlítið þannig að rót er orðin grá. Jólin eru búin að vera alveg hefðbundin hjá fjölskyldunni í Brekkutröðinni. Við bættum forrétt framan á matseðilinn á aðfangadagskvöld. Töldum meirihluta barnanna vera orðin nógu þroskaðan til að lengja borðhaldið. Jóhann Gylfi borðaði vel af humrinum en hafði enga lyst á meiru! Borðhaldinu seinkaði sem forréttinum nam þannig að um hálf tíu tókum við hlé á jólapökkunum og fórum í messu á Grund. JG fékk að hafa með sér bíl og dundaði sér með hann í kirkjunni meðan við meðtókum jólaboðskapinn. Hann var svo heppinn að þegar heim kom aftur voru náttföt í fyrsta jólapakkanum svo hann skifti snarlega og sofnaði svo á gólfinu ofaná nýja flísteppinu innan um traktorana sína. (Það er mikið búið að heyja þessi jólin enda gott úthald til á bænum). Í gær var svo hangikjöt í Fjólgötunni seinnipartinn og svo jólaboðið hjá stórfjölskyldunni í gærkvöldi, líf og fjör að venju og fullt af ...

Þorláksmessukvöld

Þetta er að vísu ekki jólamyndin í ár. Þetta er ein af þeim sem ekki stóðst skoðun og ég valdi af handahófi núna til að setja hér inn. Þau eru komin í háttin núna enda farið að halla í aðfangadag og þau vita að það er ekkert eftir nema pakka inn jólagjöfunum til þeirra. (fyrir utan pínu skúringar). Gleðileg jól

raunir stekkjarstaurs

Þetta er nú aldeilis fín mynd og segir býsna margt um þroska listamannsins sem er rétt að verða 5 ára. (eftir þrjár vikur eða þar um bil). Í gærmorgun stökk hann á fætur þegar ýtt var við honum og rauk út í glugga og hvað haldiði að Stekkjarstaur hafi komið með??? Þetta fína litabox með vaxlitum. Litli drengurinn fór glaður og ánægður á leikskólann. Seinna um daginn labbaði hann heim til afa með stóru systur sinni og sagði afa auðvitað frá fínu litunum sem hann fékk í skóinn. Þá varð afa að orði: " Þá geturðu nú aldeilis málað á veggina heima hjá þér"! Til skýringar verður að geta þess að afi er ákaflega stríðinn og man vel eftir því þegar elsta dóttirin hjólaði ganginn endilangan með lit í annarri hendinni og teiknaði á veggina allt sem henni þótti fallegast. Litli drengurinn er skynsemdarbarn. Þegar hann kom heim til sín fór hann beina leið inn í stofu með litaboxið og teiknaði þessa fínu mynd af systur sinni á miðjan vegg. Það vantar á hana hárið en það er líklega vegna þe...

jólafundur

Sunnudagskvöld, þriðji í aðventu, jólafundur hjá kvenfélaginu. Ég fékk ekki möndluna, því miður. En fékk að láta ljós mitt skína. Las jólasögu og smávegis frá eigin brjósti um jólaundirbúninginn. Játaði m.a. að ég væri ekki farin að skrifa jólakortin. Sem er alveg satt. Ég hef svosem engar sérstakar áhyggjur af því, nema bara þessum sem þurfa að fara til útlanda. Við erum enn að strekkja við að taka myndir af börnunum og þó svo að við hefðum tvær myndavélar í takinu þegar við fórum í jólamyndatökuna á dögunum er eiginlega engin nothæf mynd af liðinu. Það er litli prinsinn sem kemur verst út er annaðhvort í fýlu eða grettukeppni. JÓH hefur meiri áhyggjur af þessu en ég. Enda bíð ég líka bara eftir hönnuðinum núna. Ég stakk upp á því að við sendum bara mynd af sumarbústaðnum í staðinn fyrir börnin, en það féll í frekar grýttan jarðveg. Við álpuðumst í bæinn (Akureyri) í gær, sem aldrei skyldi verið hafa. Það viðraði sýnilega vel til ferðalaga og bærinn fullur af fólki, það var ekki viðli...

Il divo

Í Idol pásunni í kvöld skiftum við yfir á Rúv og blasti þá ekki við þessi yndislegi kvartett Il divo syngjandi eitt af mínum uppáhaldslögum, unchained melody, á ítölsku líklega. Ég veit alveg hvaða jóladisk mig langar í, eða bara báða diskana þeirra. Þeir sungu alveg yndislega og ekki skemmdi fyrir hvað þeir voru ósköp fallegir.