Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá október, 2007

jóla hvað ...

Ég fór á mjög skemmtilegt námskeið um daginn og þar fæddist þessi loðni hálfnorski herramaður. Hann stendur uppi á hillu í dag og bíður eftir því að eignast félaga. Það verður að bíða þangað til búið er að flísaleggja þvottahúsgólfið... hah! Til að allt sé á hreinu þá er ég búin að vera mjög dugleg að prjóna undanfarið.

mánaðarleg skrif

Fyrsti vetrardagur í gær en ekki sérlega vetrarlegt. Í dag er mun kaldara en afskaplega kyrrt og fallegt veður. Sólskin um hádegið en sólin er svo lágt á lofti núna að hún sker í augun. Innanhús opinberar dagsbirtan bara rykið og kámuga gluggana. Ég er ekki mikið fyrir að þvo glugga! En hef góða afsökun fyrir því að þurrka ekki af í bili, reyni samt að klóra í bakkann, sagið, með ryksugunni. JÓH er búinn að vera frammi í þvottahúsi í viku núna, með hléum, hann þarf að vera í vinnunni líka. Við fengum okkur nýja þvottavél fyrir viku og í kjölfarið ákváðum við að drífa í því að gera þvottahúsið almennilega nothæft. Sem þýðir að það þarf að endurnýja veggklæðningar og hljóðeinangra. Skipta um loftklæðningu, flísaleggja gólfið og mála allt í hólf og gólf. Við byrjuðum á því að henda út vaskaborðinu sem tók allt of mikið pláss í litla þvottahúsinu og keyptum skolvask í staðinn. Semsagt. Jóhann í þvottahúsinu. Þvottavélin úti í bílskúr og ég á ryksugunni. Reyni svo að prjóna svona inn á mil...