Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá apríl, 2011

Á föstudaginn langa - 2

Sól í dag og sunnan vindur. Litli bróðir og nágranni hefur drifið sig út í morgun og flaggað í hálfa eins og fánareglur segja til um. Nágranninn á stórbýlinu heldur ekki daginn heilagan, en stendur í skítkeyrslu sem þýðir að hér eru ekki opnaðir gluggar í dag. Hér hefur hljómað kirkjuleg tónlist í allan morgun úr útvarpi og tölvum. Jóhann Ólafur er að sinna nýjasta áhugamálinu sínu. En hann byrjaði (loksins) að syngja í kór í haust þegar ég dró hann með mér í kirkjukórinn. Hann er auðvitað búinn að finna tölvuforrit sem spilar allar raddir þannig að hann slær inn allt sem við syngjum og æfir sig í tenórröddum daginn út og inn. Gaman að því. Í gær fórum við sem oftar í Hof , núna til að hlusta á Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ásamt Ungsveit sinfóníuhljómsveit Íslands flytja meðal annars "Myndir á sýningu" eftir Mussgorskí. Halldór Rafn var meðal sex hornleikara í sveitinni. Þetta var mjög gaman og ég uppgötvaði að það er ár og dagur síðan ég hef farið á svona sinfóníutónleik...

Á föstudaginn langa

Núna eru rétt tvö ár síðan hann elsku pabbi minn dó, en hann lést 17. apríl 2009. Þessi fallegi sálmur Kristjáns Vals var sunginn við útförina. Lagið er eftir Händel. "Í minningu þeirra allra sem urðu að fara á undan heim". Dagur  er nærri Lascia ch´io pianga Dagur er nærri. Dýrð þín um breytir myrkri í morgun með ljós og líf. Sem ljúfur ómur frá eilífð þinni er þitt orð um frið. Þungt hvílir sorgin á sálu og lífi. Lít til mín Drottinn með líkn og náð. Dagur er nærri. Dýrð þín um breytir myrkri í morgun með ljós og líf. Þýðing: Kristján Valur Ingólfsson

Jólastjarna í apríl

Líklega væri betra að kalla þetta blóm páskastjörnu.