Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá apríl, 2007

Aaaarrrg...

Ég fletti upp í gömlum færslum hjá mér og sá að pirringur dagsins er síður en svo nýr á nálinni. Við sátum hérna úti í blíðunni með seinnipartskaffið þegar dró fyrir sólu og súrnaði í augum. Sveitungi minn í framfirðinum notaði sunnanvindinn í dag til að kveikja í skurðbökkum sér til skemmtunnar. Í gær vorum við svo heppin að brennuvargurinn var norðan við okkur en óheppnari íbúar Svalbarðsstrandar og Akureyrar. Ég gat ekki á mér setið og hringdi í lögregluna og ræddi við afar skilningsríkan lögreglumann sem ráðlagði mér að setja mig í sambandi við sýslumannsembættið því þar fá menn leyfi fyrir sinubrunum. En núna sitjum við inni búin að loka dyrum og gluggum og rífa allan þvottinn af snúrunni. Það er ennþá tuttugu stiga hiti úti og sólskin en því miður er ekki hægt að njóta þess meir í dag. Nema það komi norðanátt. Arrrrrggg.....

leynihólf

Fyrir tveimur mánuðum síðan týndist myndavél heimilisins. Eða var það kannski einhvern tíman í janúar. Ég hef svosem ekkert sérstaklega verið að leita að henni. Veit að hún er hér einhversstaðar. Við skruppum til Bilbaó á dögunum og þegar til átti að taka fannst myndavélin ekki. Við erum búin að standa í framkvæmdum og tiltektum og búið að endurraða á öllum líklegum myndavélargeymslustöðum í húsinu að undanförnu. Þrátt fyrir nokkra leit fnnst hún ekki. Við þurftum því að reiða okkur á vináttu ferðafélaga okkar um myndatökur og getum ekkert kvartað yfir því. Ég var að vísu farin að hallast að því að myndavélin væri endanlega týnd og tröllum gefin. Því þó ég finni flest allt aftur sem ég týni þá kemur það fyrir að hlutir glatast að eilífu (til dæmis armbandsúrin mín tvö sem ég hef týnt á undanförnum árum). Ég var svo að barma mér yfir þessu óláni í huganum áðan, er að fara í hvalaskoðun á morgun og finnst heldur skítt að geta ekkert myndað. JG er áhugasamur myndasmiður og tekur gjarnan m...

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar Það er sólskin úti en frekar svalt. Frost í nótt þannig að við eigum gott sumar í vændum. Auðvitað. Stefnan tekin út í garð í dag í góða veðrinu.

Ljótu hálfvitarnir!!!

Það er kominn tími til að láta heyra frá sér aftur. Eftir stutt skrepp til R-víkur í vikunni og fermingarveislu í Borgarfirðinum í bakaleiðinni áttum við fjölskyldan rólegan dag á föstudaginn langa. Svona fram undir kvöldmat en þá datt okkur í hug að skreppa í Mývatnssveitina! Fórum svo við fjórða mann, slepptum kvöldmatnum en fengum okkur bara pulsu og kók í nesti á leiðinni. Í staðinn fyrir að eiga rólegt kvöld heima í gærkvöldi brunuðum við semsagt austur yfir heiðar alla leið í Skjólbrekku og fórum á tónleika með Ljótu hálfvitunum . Í stuttu máli sagt erum við með strengi í hláturvöðvum og héldum aftur heim á leið um miðnættið glöð í sinni og hjarta. Okkur leist nú ekki meira en svo á í upphafi. Við vorum auðvitað tímanlega á ferðinni og komin á svæðið rúmum hálftíma áður en átti að byrja. Þrír bílar fyrir utan og þegar við komum inn sátu fjórir þungbúnir Þingeyingar við borð aftast í salnum. Hm... Við völdum okkur sæti í þriðju sætaröð fyrir miðju og komum okkur vel fyrir Svo fór ...