Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá desember, 2006

30. desember

Vöknuðum "snemma" í morgun og brunuðum í Ólafsfjörðinn þar sem okkar beið indælis ofnsteikt villigæs og alls konar góðgæti með, hjá Þóri og Boggu. Tengdamamma kom með okkur og í bakaleiðinni fórum við hringinn í Dalnum (Svarfaðar...) og skoðuðum ljósaskreytingar á bæjum. Á Hólnum er ljósasería á þakskeggi og aðventuljós í gluggum sem tók sig vel út í rökkrinu seinnipartinn í dag. Annars var góður dagur í dag því pabbi kom heim seinnipartinn eftir nokkurra vikna sjúkrahúsdvöl. Við komum við á heimleiðinni hjá þeim og litla húsið var fullt af fólki og allir svo glaðir. Þeir voru svo að fara í flugeldaleiðangur núna áðan JÓH, Gísli bróðir og pabbi. Það þarf að styrkja hjálparsveitina núna og ég reikna með að þeir standi sig vel í því. JG vildi ekki fara með, er ekki fyrir flugelda. Við ætlum bara að fara að horfa á Sjóræningjana!

Hmm...

Mikið skelfilega er hann ljótur nýi verðlaunagripurinn sem íþróttamenn ársins fá úthlutað. Ég var nú ekkert að fylgjast með verðlaunaafhendingunni en kíkti á sjónvarpið þegar áhugasamari fjölskyldumeðlimir tilkynntu hver hefði hlotið titilinn að þessu sinni. Sá þá Guðjón Val rogast með stykkið niður af sviðinu. Maðurinn hlýtur að hafa hugsað hvar í ósköpunum hann ætti að stilla þess upp. Mér datt að vísu ekki í hug annað en að Eiður Smári fengi verðlaunin enda fáir íþróttamenn verið meira í sviðsljósinu á þessu ári. Það sannast enn og aftur að vegir íþróttafréttamanna eru órannsakanlegir!!

28. desember 2006

Ósköp dimm og drungaleg mynd tekin í -18°C á laugardegi viku fyrir jól. Nú er allur snjórinn horfinn og í dag fórum við JG í hjólatúr í góða veðrinu. Hann getur ekki beðið eftir áramótunum, eða öllu heldur að þau líði hjá því þriðja janúar verður hann 6 ára - loksins. Eftir hjólatúrinn fór drengurinn að hjálpa bræðrum sínum og frændum í efnisflutningum í áramótabrennuna. Maður vonar að veðurblíðan haldist eitthvað áfram. Ef að myndin kemur sæmilega út sést hvað var kominn mikill snjór þarna. Snjór sem hvarf alveg á rúmum sólarhring. JÓH er úti núna á peysunni með vasaljós að leita að ónýtri peru í fínu seríunni sem prýðir þakskeggið á húsinu ( sést kannski á myndinni ef vel er rýnt). Eftir að hafa barist um í roki og rigningu í marga daga án þess að blikka svo mikið sem einu sinni slokknaði á öllu saman í blíðunni í nótt. Ekki gott mál. Við fórum í bíltúr í gær og skoðuðum vegsummerki flóða og skriðufalla í framfirðinum, fórum fram í Djúpadal en til að fara fram að Grænuhlíð hefð...

Gleðileg Jól

Fjölskyldan Brekkutröð 4 óskar öllum vinum og ættingjum nær og fjær gleði á jólum. Borðið nú á ykkur gat elskurnar og njótið samvista við fjölskyldu og vini. Það er nákvæmlega það sem við ætlum að gera. Takk fyrir allar góðar gjafir og kveðjur. Við hlökkum alltaf til að lesa á jólakortin sem verður eftir mat, pakka og jólamessu. Jólamessan er það sem JG hlakkar næst mest til. "Því það er svo gaman að fara í kirkju á jólunum". (Alveg orðrétt haft eftir) Myndin er að sjálfsögðu tekin í Jólagarðinum í gærkvöldi. Fjölskyldan ilmandi af skötulykt, nýkomin úr seinni skötuveislu dagsins. Jólatréð beið heima í stofu og krakkarnir búin að velja sér jólakúlur ársins 2006. JG er svolítið lúinn á svipinn en það var ástæða fyrir því, hann komst ekki nema út á bílastæði þegar hann kastaði upp. Hann fær stundum magakveisur ef mikið stendur til og búið að vera óregla á matartímum. Þegar við komum heim fór hann í náttfötin og var hinn sprækasti fljótlega upp úr því. Nú er aðfangadagur runni...

Jólasveinninn minn

Verð að benda öllum á að fara á http://www.ruv.is og sjá Jóhann Gylfa í Jólagarðinum. Það kom loksins í Kastljósi í gær en Leikskólinn fór í Jólagarðinn fyrir viku síðan og hitti tvær sjónvarpsstöðvar þar óvænt. Annars vegar Akureyrarstöðina sem ég man nú ekki alveg hvað heitir og hins vegar Möggu Blöndal á Rúvak. JG, sem hér eftir verður kallaður Stúfur, er búinn að sitja límdur fyrir framan sjónvarpið og bíða eftir Kastljósinu alveg þangað til í gærkvöldi að hann var úti í bílskúr með pabba sínum og ég var ekki heima. Við þurftum því að horfa á þáttinn á netinu seint í gærkvöldi eftir að mamma hringdi og lét okkur vita. Ég spurði Stúf hvort hann hefði ekki hitt jólasveininn í Jólagarðinum og hann svaraði auðvitað játandi, hann hefði hitt Benna. Nú sagði ég hitturðu ekki jólasveininn. Jú, hann heitir Benni var svarað. Þetta flækist samt pínulítið fyrir honum því hann spurði svo hvort Grýla væri mamma hans Benna. Hmm... Að öðru leyti er það alveg á tæru, Benni er jólasveinninn.

Það eru að koma jól...

Þessi mynd af Jólagarðinum er reyndar ekki alveg ný en hún er vel við hæfi. Það er hið venjulega jólastress að ganga yfir í vinnunni. Þ.e.a.s. frágangur á námsmati í bland við jólaundirbúning. Hérna heima gengur lífið sinn vanagang. Jólatónleikahelgin liðin hjá og allir tónlistarnemendurnir mínir búnir að spila jólalögin. JÓH var fjarri góðu gamni að þessu sinni. Var fyrir sunnan frá því í síðustu viku kom ekki heim fyrr en seinnipartinn á sunnudaginn. Amma var dregin með á sunnudaginn og fékk að hlusta á Úlfar spila "Ó, helga nótt" á saxofóninn sinn.. Inga Hildur og Halldór voru að spila á laugardag og þá kom JG með mér. Hann er ekki enn hættur við að læra á trommur. Mig langar nú til að hann velji sér eitthvað æfingavænna hljóðfæri. En núna er JÓH að búa til jólakortið sem dreift verður frá Brekkutröðinni um alla heimsbyggðina fyrir þessi jól. Við ætlum að hella okkur í jólakortaskrifin helst á morgun. A.m.k. ganga frá þeim sem eiga að fara til útlanda. Annars eru vinir og...