Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá júní, 2008

Rigning

Löngunin til að draga fyrir alla glugga og skríða undir teppi er að verða öllu yfirsterkari þessa dagana. A.m.k. forðast ég að horfa út um vesturgluggana því þar blasir við, þegar rigningarskýin hopa aðeins, nýsnævi á vesturfjöllum. Brrrr..... Upp með síðbrókina. Fyrir viku síðan fór ég í fyrstu ferð sumarsins. Mjög þægilegur rúntur bara tvö stopp. Einhver spurði eins og venjulega hvort veðrið væri "typical" fyrir árstímann. Já, já sagði ég auðvitað og yfirleitt hlýrra... Bara 14°C og sólskin þann daginn.

JG og Hekla

Þjóðhátíðardeginum eyddum við í letimorgunmat en eftir að hafa horft á beina útsendingu frá Austurvelli var hellt á könnuna og nokkrar samlokur smurðar með kjúkling og grænmeti. Í nestistöskuna var líka sett súkkulaði, gúrkur og Kristal handa barninu og ferðbúin lögðum við af stað í þjóðhátíðarbíltúr austur í Þjórsárdal. Stoppuðum við Skaftholtsrétt og fundum Laxárdalsdilkinn, síðan við Hjálparfoss og Þjóðveldisbæinn. Þar var okkur mjög pent ráðið frá því að fara upp að Stöng. Þar væri sóðalegt um að litast eftir helgina. þannig að við fórum til baka og eftir að hafa beygt af vegi við lítið áberandi skilti merkt gönguleiðir fundum við okkur notalegt skógarrjóður til að drekka hátíðar kaffi, pakkaði meira að segja nettum dúk í tilefni dagsins. Myndin af JG er tekin uppi á Gaukshöfða en við skokkuðum þangað upp á leiðinni til baka. JG er ekki eins góður í því að muna örnefni og dráttarvélartegundir en hann man þó að í Borgarfirði er fjallið hennar Þorgerðar. Þegar við komum niður af Holt...

Blogg

Það er orðið svo langt um liðið síðan ég tjáði mig eitthvað hér inni að það þurfti að leggjast í rannsóknir til að finna lykilorð og notendanafn. Það kemur þó yfir mig annað slagið þessi þörf fyrir að skrifa eitthvað og það er eina ástæðan fyrir því að ég er ekki búin að loka þessu bloggi. Svo hef ég pínu gaman af því að deila með öðrum einhverju skemmtilegu úr hversdagnum. Að vísu er ekki hægt að gúgla bloggið mitt. Fólk þarf að muna það og því kannski ekki margir sem nenna að leita það uppi og því síður að lesa það. En gott og vel. Ég hef samt engan áhuga á því að fara í annað bloggumhverfi sem fleiri hefðu aðgang að. Mér finnst þær umræður sem fara fram til dæmis á blog.is í flestum tilfellum vera fólki til minnkunnar. Þó ég hafi skoðanir á öllu og engu sé ég engan tilgang í því að viðra þær við aðra en þá sem ég vel að ræða við augliti til auglitis. Og hananú.... Þá er það áfram fótboltinn. Ég held með Hollandi eða Spáni eða Króatíu (eru þeir kannski dottnir út...?)

17. júní

Gleðilega þjóðhátíð. Páskarnir sýnilega löngu liðnir og síðustu tveir mánuðir skólaársins líka liðnir. Búið að skella í lás og sumarfríið blasir við. Við ákváðum um páskana að byrja sumarið á því að fara í bústað og því er þjóðhátíðardeginum eytt í sól og blíðu á Suðurlandi. Fyrst farið var af stað á annað borð var pantaður KÍ bústaður í Heiðarbyggð. Við erum svo heppin að vera enn á ódýrara tímabilinu en annars er þetta það dýrasta sem hægt er að komast í hjá stéttarfélögum. En húsið er flott og allt til alls og rúmt um okkur smáfjölskylduna. Við erum bara með litla prinsinn með okkur, unglingarir eru uppteknir í vinnu og einkadóttirinn (hún er víst orðin unglingur líka), sem kom með okkur suður á föstudaginn, flaug heim í gærkvöldi til að skemmta sér á Akureyri á þjóðhátíðardaginn og mæta í vinnuna á morgun. Núna liggjum við á meltunni eftir þjóðhátíðarlærið, sem á eftir að endast okkur í nesti heim á föstudaginn a.m.k. Kannski eigum við hjónakornin örlítið (bara smá) erfitt með að ...