Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá júlí, 2005

Meira af rauðri málningu

Þessa mynd tók Stefán af JÓH uppi á þaki. Það þarf varla að taka fram að ég var heima þessa tvo daga sem það tók að mála þakið. Nú er það orðið rósrautt (sem er víst líka kallað sveitarautt, og á því vel við). Bráðum set ég hérna inn myndir af húsunum, en það verður ekki alveg strax. Þau eru (sérstaklega annað) frekar óhrjáleg að utan þessa dagana en það stendur til bóta. Það er að koma helgi. Lífið er gott og við höldum af stað staðráðin í því að horfa á björtu hliðarnar og hugsa jákvætt því það er svo miklu léttara.

Umferðarmenningin og fleira

Mjög svo efnileg yfirskrift hér. Ég var búin að skrifa langan pistil um umferðarmenninguna hér í Eyjafjarðarsýslunni og áhyggjur vegna ofsaaksturs í Öxnadal. Svo ýtti ég á publish post og allt heila klabbið hverfur nema nafnið. Best ég nefni líka ábyrgð umferðarlögreglunnar sem góðu heilli hefur verið mjög sýnileg síðustu vikurnar a.m.k. á Ólafsfjarðarvegi þar sem ég keyri annan hvern dag. Jæja, ég er á leiðinni út á þjóðveginn seinnipartinn og mæti líklega þeim sem lögðu af stað úr höfuðborginni um hádegið. Ég hef einu sinni farið leiðina Reykjavík - Akureyri á föstudegi fyrir verslunarmannahelgi (lögðum af stað um 6 leytið) og það var lífsreynsla. Þetta var þegar Halló Akureyri var upp á sitt "besta" og bílalestin var óslitin nánast alla leið. Það gerði þetta ferðalag óraunverulegra en ella að við vorum að koma af jarðaför ungs manns sem farist hafði í umferðarslysi og hugarástand okkar ferðafélaganna eftir því.

Sólarsamba

Þá getum við Norðlendingar tekið gleði okkar á ný. Sólin er farin að skína og norðangarrinn lætur undan síga. Það er miðvikudagur og verslunarmannahelgin nálgast nú óðfluga. Maður opnar ekki svo útvarp að ekki sé verið að tala um veðurspána og/eða ferðalög og útihátíðir. Það er nú í lagi í dag en þessi umræða byrjaði fyrir hálfum mánuði og er að verða svolítið þreytt, sérstaklega veðurspáin en hún er aldrei óáreiðanlegri en einmitt þessa helgi þegar slæm veðurspá getur hreinlega slegið af heilu hátíðirnar. Við fjölskyldan förum alltaf í útilegu um verslunarmannahelgina og höfum ekkert verið að flækja málin neitt sérstaklega. Förum bara alltaf á sama stað og höfum gert svo lengi sem börnin okkar muna, ekki skemmir fyrir nú um stundir að við förum að sjá fram á að þurfa ekki að vera mikið oftar í tjaldi í þessari útilegu. Þessi útihátíð er nefnilega haldin í næsta skógarreit við bústaðina okkar á hólnum í dalnum "kæra" Svarfaðardal. (þetta síðasta var nú frekar væmið, en ég er ...

rauð málning

Við vorum meira og minna í sveitinni alla helgina, en núna er komið að þvotta- og þrifadeginum hér á þessu heimili. Við JÓH vorum að mála í gær og ég þurfti að taka á honum stóra mínum og klifra upp í stiga til að mála þakskegg. Lofthrædd manneskjan. JÓH fékk að fara upp á þak. Ekki vildi betur til en svo að í eitt skiftið sem hann var að prika upp á þakið skrikaði honum fótur og var það lukkan ein sem réði því að hann hrapaði ekki niður á pallinn. Hann var með fulla málningarfötu í hendinni sem megnið helltist úr í hamaganginum þegar hann var að reyna að fóta sig. Málningin rann niður þakið og rigndi á mig sem var að bauka með pensilin fyrir neðan hann. Þannig að ég varð skyndilega með rósrauðar strípur í hárinu og doppótt í framan! En það var nú skárra heldur en að fá manninn í hausinn. Er nokkuð undarlegt þó mig sundli við það eitt að sjá einhvern uppi á þaki. Þetta var bara litla húsið sem er næstum með flötu þaki en næst á dagskránni er að mála þakið á stóra, sem er með háu risi!...

Harry Potter

You scored as Remus Lupin . You are a wise and caring wizard and a good, loyal friend to boot. However sometimes in an effort to be liked by others you can let things slide by, which ordinarily you would protest about. Remus Lupin 75% Albus Dumbledore 65% Draco Malfoy 65% Hermione Granger 65% Ron Weasley 65% Severus Snape 65% Sirius Black 60% Harry Potter 55% Ginny Weasley 50% Lord Voldemort 35% Your Harry Potter Alter Ego Is...? created with QuizFarm.com Ég stóðst ekki þessa... Ég á eftir að lesa bókina. Unglingarnir voru ekki í aðstöðu til að kaupa hana á laugardaginn og hún hefur verið uppseld síðan. A.m.k. hér á Akureyri.

Snúðabakstur JG

"Mamma þarf aðstoð við baksturinn. Þegar hún skrapp í símann tók ég hnífinn og skar alla snúðana, eru þeir ekki flottir!" Það stenst enginn svona sjarmatröll. Þegar búið er að klippa köttinn, sulla skyri út um allt eldhús, fara út með bíllyklana og reyna að... og mamma búin að verða reið, sorgmædd og skilningsrík (ekki endilega allt í einu eða í þessarri röð). Þá er þessi setning síðasta hálmstráið: "Ég er góður núna mamma".

taska

Í vor prjónaði ég heljarmikinn sekk sem átti að verða einhverskonar sundtaska. Eftir þæfingu í þvottavélinni varð til eitthvað sem líktist öllu öðru en tösku. Þetta hrúgald er búið að þvælast fyrir mér hérna í sumar án þess að ég vissi almennilega hvað ég ætti að gera við það. Í rigningunni gær fékk ég svo andann yfir mig, tók fram skæri og nál og þetta er útkoman, þessi fína hliðartaska. Ég er bara frekar ánægð með sköpunargleðina. Þetta á ég til þó að það sé stundum dálítið djúpt á því.

Ég sjálf

Maddaman sjálf með nýju sólgleraugun! Á sólpallinum með Bakkadalinn í baksýn, en þangað er planið að ganga einhverntímann í náinni framtíð. Þessi mynd er tekin á fimmtudaginn en þá vorum við með gott nesti í hádegismatinn eða saltfisksalat sem var hitað upp á prímusnum (eldavélin er ekki komin í samband, en það er sko rafmagn). Veðrið var því miður ekki svona gott í dag þegar ég brunaði úteftir með vinnumanninn úr helgarfríinu en þá ultu þokubakkarnir á móti okkur á Hámundarstaðarhálsinum og smiðirnir (JÓH og Stefán) orðnir hálf bláir í hráslaganum. Svona er lífið á hólnum. :)

Sunnudagsmorgun

Blogger er eitthvað svo hæggengur svona í morgunsárið að myndirnar verða að bíða betri tíma. Við smáfjölskyldan fórum í sælureitinn okkar í fyrradag með tjaldkerruna í eftirdragi og áttum eina ágæta nótt bakvið hús á hólnum. Það er heilmikið að gerast núna hjá okkur. Í gær vorum við að hreinsa utanaf stóra húsinu og henda gamalli einangrun, sagi og reiðingi. Það er líka komið nýtt hurðargat á húsið og hurð en Stebbi skellti henni í í gær. Og núna fer að sjást hvar nýju gluggarnir verða settir. Sem gerist á næstu dögum. Ég er með hálfgerða strengi í höndunum, enda mörg ár síðan ég hef haldið svona lengi á hamri eins og í gær. Við JG enduðum á því að fara í sund á Dalvík og sá stutti steinsofnaði á leiðinni heim. Það tókst ekki almennilega að hátta hann þegar heim var komið þannig að hann var enn hálfklæddur þegar hann vaknaði í morgun. "Afhverju er ég í bol og peysu í rúminu?" Ég ætla að byrja daginn á því að fara í morgunkaffi til pabba og mömmu og reyna svo að vekja unglinga...

Morgunstund...

Ég stend sjálfa mig að því þessa dagana að í staðin fyrir að drífa mig á fætur þegar ég vakna, sný ég mér á hina hliðina og lúri aðeins lengur áfram. Jafnvel fram undir hálf ellefu á virkum degi sem er alveg ómögulegt (þó maður sé í sumarfríi). Það er næði til þess þessa dagana. JÓH fer snemma í vinnuna með útilegumanninn á rútuna. Og þá erum við bara tvö heima ég og JG og hann skríður bara undir sæng hjá mömmu og sefur áfram. Ég er aðeins duglegri núna í morgun. Búin að fara út á snúrur og faðma hreina þvottinn minn. Út í garð og kíkja á jarðaberjaplönturnar og út á pall að tína saman það sem fauk í nótt. Sá stutti sefur enn og það er best að fara að vekja hann. Ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að fá mér langan göngutúr og prófa nýju skóna. Eða fara og þrífa bílinn. Það er auðvelt að geta sér þess til hvort mér finnst skemmtilegra. Rás 1 er útvarpstöðin mín þessa dagana og í gær heyrði ég í Sverri Páli mínum gamla kennara. Þar sem hann flutti pistil um íslenskt tungutak í ...

Heimasætan

Heimasætan lagði land undir fót seinnipartinn og er farin af stað í Borgarnes þar sem hún ætlar að dvelja fram að næstu helgi. Þær urðu samferða frænkurnar, hún og Ástdís, með rútunni. Hún hefur verið frekar þungt haldin af ferðakvíða undanfarið en ég held að það hafi nú allt saman verið yfirstaðið þegar þær lögðu af stað. Ég skil þetta alveg með kvíðan enda hefur hún það beint frá mér. Það er nokkuð sem verður bara að takast á við og yfirvinna. Það fækkar því heldur í kotinu. Útilegumaðurinn okkar kom að vísu heim í dag og verður heima í nótt en fer svo aftur suður á morgun. Og þá erum við bara þrjú eftir, við hjónakornin og JG. En það stendur nú ekki til að senda hann neitt. Þó hann væri örugglega alveg til í að vera bara í sveitinni. Þeir fóru feðgarnir úteftir bæði í dag og gær. JG var bara skilinn eftir á hlaðinu á Hofsá, upp í dráttarvél og út að slá.

Ég get hjólað

JG á tvö hjól, lítið með hjálpar- dekkjum og svo þetta sem sést hér til hliðar sem Haukur Gylfi frændi hans gaf honum í vor. Litla hjólið bilaði á dögunum og í morgun gat sá stutti ekki lengur beðið eftir því að pabbi lagaði það og hringdi í afa sinn. Afi lagaði hjólið og kippti um leið hjálpardekkjunum undan, við frekar litla hrifningu JG sem hefur verið fádæma kjarklaus þegar reynt hefur verið að ýta honum af stað á hjóli hingað til. Við fórum svo heim við svo búið en seinnipartinn fór strákur út en kom inn skömmu síðar og kallaði á mömmu að koma út að sjá. "Nú kann ég að hjóla". Hann prófaði nefnilega að fara eina bunu á litla hjólinu og uppgötvaði um leið að það er orðið alltof lítið fyrir svona stóran strák, tók þá hitt til handargagns og þetta er sko ekkert mál!

Skreppitúr austur á land

Í kvöldkyrrðinni varð náttúran eins og málverk. Fljótið kyrrt og þögult, grasið döggvott og hestarnir hreyfðu sig ekki þegar við komum brunandi á bílnum með tilheyrandi vélarhljóðum og hurðarskellum. Myndin er tekin á seinni tímanum í tólf í gærkvöldi. Útsýnið er yfir Lagarfljót, húsið til vinstri er ævagamalt bátahús og bakvið ljósmyndarann, rómantískasti gististaður sem við höfum kynnst. Gistihúsið Egilsstöðum nánar tiltekið. Þar dvöldum hjónakornin í nótt. JÓH þurfti að skreppa stutta vinnuferð austur og vegna þess að hægt var að fá herbergi, með stuttum fyrirvara uppi í risi fljótsmeginn, slóst ég í för. Enda búin að vera að bíða lengi eftir tækifæri til að gista þar aftur. Við brunuðum austur í gær, fórum af stað rétt fyrir hádegi og stoppuðum í Gamla bænum í Reykjahlíð og fengum okkur kjötsúpu. Á þessum árstíma heyrirðu flest önnur tungumál en íslensku talaða þar og núna var starfsfólkið líka frá hinum ýmsu þjóðlöndum. En súpan var góð. Egilsstaðir orka þannig á mig að mér fin...

Dalalíf 3

Nú er ég búin að vera í Hrútadalnum í nokkrar vikur, með hléum þó. En persónurnar eru farnar að sækja að mér í svefni og vöku. Þóra er mitt uppáhald, þó ég sé ekki alltaf sammála henni. Ég er þó núna farin að kynnast betur aukapersónum sem ber ekki eins mikið á. "Svo kom allt í einu saga, sem þótti æði munntöm. Hún byrjaði gang sinn á Ásólfsstöðum, fremsta bænum í dalnum að vestanverðu... Og sagan læddist út dalinn eins og þoka. Hún smaug inn í búrið eða eldhúsið og þaðan til baðstofunnar. Hún kitlaði fólkið í eyrun og gerði það forvitið... Sagan var sú, að henni var engin athugli veitt lengur. Hún tiplaði því af stað ofan í kaupstað. Þar gekk hún á milli húsanna og var jafn velkomin inn í stofuna hjá kaupmanninum eins og í torfkofann hjá fátæklingunum. Hún brá sér meira að segja til sjómannanna, og þeir höfðu hana með sér á sjóinn sér til skemmtunar. Svo lagði hún af stað fram dalinn að austanverðu og var orðin sæmilega sárfætt þegar hún kom fram að Hvammi. En þar fékk hún slæmar...

Afi og amma best

Pabbi og mamma komu í morgunkaffi í morgun og þegar þau brunuðu í burtu um hádegið var lítill laumufarþegi í aftursætinu. Pabbi hringdi svo og lét vita af því að stubbur væri í ömmu og afahúsi. Þar finnst honum best að vera. Hann fær að hjálpa afa að slá og raka og brasa í viðgerðum, verða skítugur og fá ís hjá ömmu og jafnvel mola hjá langömmu ef afi skreppur í kaffi.

í sparifötunum

Hér kemur ein af okkur hjónakornunum. Tekin á 16. júní síðastliðinn. Sæt og fín á leiðinni í Höllina. Ég er að prófa nýja leið við að setja myndir á bloggið. Og þetta virðist ganga alveg upp.

föstudagur

"Hvenær kemur sólin" sagði JG í morgun. Við getum nú samt ekki kvartað yfir veðrinu. Það rigndi svo í fyrrinótt að það buldi á þakinu. Ég bjó mig út í regnslá og gúmmístígvél og fór í gönguferð með JG og Blíðu í rigningunni í gær. Við löbbuðum upp í skóg og teyguðum að okkur ilminn af gróðrinum. Kisa varð úrillari eftir því sem hún varð blautari, en hún gat sjálfri sér um kennt að vera að elta okkur þetta. En það er stytt upp og sólin á eftir að brjótast fram úr skýjunum í dag spái ég. Ég dreif mig í húsverkin í morgun þegar ég vaknaði og skrúbbaði klósettið sem er það leiðinlegasta sem ég geri. Gott þegar það er frá.