Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá ágúst, 2005

RIGNING

Ég held að ég sé komin með skammdegisþunglyndi af allri þessari rigningu. Kannski í og með vonbrigði með það að hafa ekki druslast í berjamó í uppstyttunni í gær (var í vinnunni fram undir kvöldmat í staðinn) og það hefur rignt eins og hellt væri úr fötu allan seinnipartinn í dag. Það hefði verið svo ágætt að eiga nokkur bláber ofan á pavlovuna sem afmælisbarn morgundagsins pantaði. Heimasætan verður 12 ára á morgun og óskaði eftir fjölskyldukaffi annaðkvöld, bauð afa sínum og ömmum og frænkum og frændum. Ég ætla að draga fyrir eldhúsgluggana, kveikja fyrst á kerti, svo á bakarofninum og síðan á hrærivélinni og vona að ég komist í betra skap. Arg.....

bláber og rjómi

Ég held að það megi kalla yngsta fjölskyldumeðliminn lífsnautnamann með réttu. Það þýðir ekkert að bjóða upp á kornfleks eða súrmjólk í morgunmat. Nei, bláber og rjómi skal það vera og barnaefnið með. Á laugardagsmorgni þegar hitastigið úti er 5 gráður og búið að hækka í öllum ofnum í húsinu er voða gott að kúra undir teppi og borða bláber með rjóma meðan horft er á "Póstinn Pál". Þá er allt í lagi að fara í kringum regluna: aldrei borða fyrir framan sjónvarpið. (Við erum ekki með tæki í eldhúsinu!) Þvottavélin er komin heim, blessunin, öll miklu hressari og frískari en áður. Ég sem var farin að skoða auglýsingar frá heimilistækjaverslunum og strauk nokkrum spegilgljáandi nýjum þvottavélum í Byko í vikunni, þegar ég átti leið þar um. En fegin er ég að þurfa ekki að læra á nýja þvottavél. Mér þykir nefnilega ósköp vænt um gömlu mína og vona að hún endist sem lengst. Þetta er sænskur gæðagripur, topphlaðinn, keyptur í raftækjaverslun á Akureyri sem er löngu farin á hausin.

Það alversta

Það alversta gerðist í fyrradag. Þvottavélin bilaði. Akkúrat þegar ég hafði ekkert þvegið í sólarhring og óhreinatauið farið að flæða úr körfunni. Alltaf er ég jafn hissa á öllum þessum þvotti sem fylgir fjölskyldunni. En það er ekkert skrítið. Sex manns og allt að verða hálffullorðið. Endalaus handklæði og stuttermabolir... og, og... Hún fór í viðgerð í dag blessunin og vonandi kemur hún fljótt aftur. Að vísu er vélin komin nokkuð til ára sinna og ekki að vita hvort hún hefur ekki bara gefist endanlega upp.

Nú blánar yfir berjamó

Fór með pabba í berjamó í fyrradag og tók þá þessa mynd. Svona eru berin hér þetta haustið. En því miður engin krækiber.

Laugafell

Tvíburarnir óskuðu eftir Laugafellsferð í afmælisgjöf þannig að frídagar voru samræmdir og við fórum fram á fjöll í gær. Það leit ekkert sérstaklega út með veður þegar við komum fram á dal en það rættist úr því eins og sjá má á myndunum. Glampandi sólskin og hlýtt.Ég gat ekki valið eina mynd þannig að það eru bara margar. Við byrjuðum að sjálfsögðu á því að fá okkur gott bað í hreinni lauginni og dormuðum þar lengi í sólskininu og teyguðum í okkur orkuna frá Hofsjökli. Drukkum svo kaffi í Hjörvarsskála (ekki húsið á myndinni), röltum um nágrennið og fórum svo heim á leið endurnærð á sál og líkama. Pabbi og mamma komu með okkur og við enduðum góðan dag á því að borða saman grillaðan kjúlla, a la JÓH, með ofnbökuðum nýjum kartöflum, a la moi, salat úr garðinum og bláber og rjómi í eftirrétt. Gerist það betra?

what famous leader ....

What Famous Leader Are You? personality tests by similarminds.com Ég hef kannski ekki skilið allar spurningarnar rétt... Ég get ekki alveg tengt mig við þessa niðurstöðu. Hmm.... (ég prufaði svo að fækka spurningunum og fékk bara skelfilegri niðurstöðu)

Rigning

Ég er alveg búin að fá nóg af rigningu! Rigningarskýin hanga þunglyndisleg rétt yfir húsþökunum og gusa úr sér annað slagið. Það er haust í loftinu, en við höfum ekkert komist í berjamó. Kannski rignir berin niður í bókstaflegri merkingu áður en af því verður. Þvotturinn fer beint í þurrkarann og þvottavélin hefur ekki við að þvo drullugalla af leikskólabarninu. Fjósamaðurinn skrapp í bæinn í gærkvöldi til að spila smástund á fínasta veitingahúsi Akureyrar. Mamma straujaði sparifötin og fann axlaböndin sem ekki hafa verið brúkuð síðan í vor. (Þeir voru í einhverskonar "seventees" búningum á Handverkinu). Þeir fengu svo að velja hvort þeir fengju borgað í peningum eða kvöldverði og völdu að sjálfsögðu hið síðarnefnda. "En frábært" sagði mamma og drengurinn leit á hana og sagði svo hægt og rólega að foreldrum væri ekki boðið með... Hann er að verða fullorðinn litli drengurinn minn..... Á morgun eru nefnilega 16 ár síðan þeir fæddust glókollarnir. Það sem tíminn er flj...

föndur og fikt

Meðan heimasætan stundar fornleifauppgröft í herbergjum bræðra sinna dunda ég mér í tölvunni. Ég er búin að vera að velta fyrir mér hvernig á að setja inn krækjur, eða hvað sem það er nú kallað, var líka að spá í nýtt útlit og svo framvegis. Ég er bara svo óþolinmóð að ég nenni aldrei að lesa almennilega leiðbeiningarnar, ýti bara á eitthvað. Allt í einu var ég búin að henda út teljaranum öllum kommentunum (haloscan líka) og veðurpíunni líka. Hm....

Tiltekt

Heimasætan missti stjórn á sér í dag og hefur farið um húsið eins og hvítur stormsveipur. Hún er sönn meyja sem vill hafa allt í röð og reglu. Þegar hún var búin að raða í forstofunni, baðherberginu og herbergi litla bróður síns, tók hún til við að taka til hjá fjósamanninum og er langt komin. Ég veit ekki hvað hann kemur til með að segja þegar hann kemur heim (verður örugglega bara feginn). Ég held að tvíburabróðir hans sé með einhverskonar tiltektarfælni því hann verður alltaf bæði mállaus og heyrnarlaus þegar minnst er á að herbergið hans sé ekki alveg... Það verður að segjast að aðkoman þar er ólýsanleg. Ég veit ekki hvort heimasætan ætlar að taka til þar líka. Ég hugsa að ég verði að borga henni fyrir atorkuna en um það var ekkert samið í upphafi. Hún er frábær!

Kjötsúpan mín

Súpukjöt er sérkennilegt fyrirbæri. Þar sem ég kaupi aðallega í matinn í lágvöruverðsverslunum! sé ég súpukjöt niðursagað frosið í á tilboðum. Í gær greip ég einn poka úr frystikistunni og skellti í pott. Venjufremur góðir og fitulitlir bitar nema neðst í pokanum voru nokkrir litlir þunnir beinabitar sem við nánari athugun reyndust vera þykkur hálsbiti sem hafði verið sagaður niður (var sá á kjötsöginni að breyta til??). En banakringlan fylgdi með og það finnst mér frekar ósmekklegt og lítið ætilegt þar. En súpuna sauð ég og skellti í hana því girnilegasta úr garðinum. Þetta þykir mér eitt það besta sem ég fæ en því miður eru ekki allir í fjölskyldunni spenntir fyrir grænmetissúpum af þessu tagi. Jóhann Gylfi borðar hana þó með bestu lyst en hin börnin halda sig við soðið kjöt! JÓH kom seint heim í gærkvöldi og fékk sér smá súpu. Hann vaknaði svo með ælupest í morgun og þó ég geti alls ekki samþykkt að það hafi nokkuð með súpuna að gera, langar manninn minn ekki í meiri kjötsúpu. Þann...

rigning

Ég hjólaði heim úr vinnunni áðan í hellirigningu, varð blaut á rassinum og lærunum, ekki höfðinu (var með hjálm (reyni alltaf að vera börnunum góð fyrirmynd)). En það er eitthvað yfir fimmtán stiga hiti þannig að ekki varð mér kalt. Já, það er rétt, mætti í vinnuna klukkan átta í morgun. Það er að vísu ekki mæting fyrr en á föstudag á námskeið en mér finnst gott að koma aðeins fyrr og hugsa... Ég hljóp út frá ruslinu í stofunni minni í júní og eftir morguninn hefur ástandið versnað ef eitthvað er. En ég fékk nokkrar hugmyndir og er langt komin með að endurskoða skipulagið fyrir textílmenntina í vetur. Kisa var líka úti í rigningunni og bað um handklæði þegar hún kom inn (í alvöru) þannig að ég þurrkaði henni hátt og lágt.

fiskidagurinn mikli

Við heimsóttum Dalvík í dag eins og tugþúsundir annarra Íslendinga og þar rakst ég á plakatið á myndinni hér fyrir neðan. Við smökkuðum á fiski og hlustuðum og horfðum á tónlistarflutning (á milli þess sem auglýst var eftir týndum foreldrum og börnum). Og hittum ótalmargt fólk sem við þekktum og misstum af enn fleiri. JÓH fór með bræðrum sínumí gærkvöldi á súpurölt um Dalvíkina. Þeir fóru heldur seint af stað þannig að litla fengu þeir súpuna en ýmislegt annað víst... Merkilegt hvað það er alltaf gott veður á fiskidaginn mikla, það er varla einleikið...

Rækjur

Þetta vissi ég nú ekki, he, he...

í amstri föstudags

Í amstri dagsins eru morgnarnir orðnir besti tími dagsins við tölvuna. JG er byrjaður aftur á leikskólanum og vaknar með bros á vör klukkan hálf átta á morgnanna. Þá er bara að drífa sig á fætur skokka með hann úteftir og fá sér svo góðan morgunverð. Svefnpurkurnar eru ekki farnar að róta sér ennþá en það eru tvö börn heima í dag því fjósamaðurinn er í fríi þessa vikuna. Kom heim undir því yfirskini að hann þyrfti að æfa sig. Hattlausu herramennirnir eru að spila á Handverkshátíðinni um helgina. Mér hefur sýnst hann noti tímann aðallega til að sofa... Ég fæ þá tíma fyrir mig í rólegheitunum, kveiki á rás 1 og hef lágt stillt. Við vorum netsambandslaus í á annan sólarhring þangað til í gær en það bilaði eitthvað í þrumuveðrinu í fyrradag. Mér fannst það svo óþægilegt að það er áhyggjuefni. Ætla að setja mér markmið. Vera ekki svona mikið á netinu...

Þriðjudagsmorgun

Fór á fætur klukkan hálf átta og þá sat fjósamaðurinn frami í eldhúsi að borða morgunmat. Hann er kominn heim í frí en er orðinn svo vanur því að fara snemma á fætur að hann vaknaði fyrir allar aldir. Bróðir hans er líka í fríi í dag þannig að fjölskyldan var öll heima í nótt í fyrsta skipti í margar vikur. JG byrjaði svo á leikskólanum í morgun eftir sumarfrí. Stóra systir hans útskýrði það fyrir honum í gærkvöldi, frekar illkvitnisleg, verð ég að segja, að hann væri sá eini í fjölskyldunni sem væri að byrja í skólanum. Það væru allir aðrir í fríi ennþá. En hann lét það ekkert á sig fá og fór af stað glaður og ánægður. Ég ætla að fara í bæinn á eftir með tvíburana. Þeir þurfa í banka og ég líka því heimabankinn var með einhverja uppsteyt í morgun. Ég trúi því nú tæplega að það hafi einhver tekið sig til og borgað símreikningana okkar. Svo ætla ég að draga drengina á útsölur og vita hvort þeir fást ekki til að kaupa á sig einhver föt á afslætti. Ef að þeir tíma því.

Eftir helgina

Eftir útilegur taka alltaf við nokkrir dagar sem fara í það að þvo þvott og ganga frá dótinu. Við höfum nú verið meira og minna í "útilegu" í sumar þannig að töskur og matarkistur eru hættar að fara inn í skáp á milli ferða. Í dag er þvottadagur á heimilinu. JÓH fór úteftir í morgun en JG ætlar að njóta síðasta dagsins í sumarfríinu heima og fara kannski í hjólatúr til afa og ömmu. Hann byrjar á leikskólanum á morgun og hlakkar til. Fyrir utan útilegumanninn okkar sem var á Stuðmannatónleikum í R-vík á laugardagskvöldið mættum við fjölskyldan öll í afmæli stórbóndans á Hofsá. Þegar Jóhann Gylfi vissi að hann myndi fá að koma í afmælisveisluna ákvað hann að hann ætlaði að gefa Trausta afmælisgjöf. Við fórum í leiðangur á föstudaginn og keyptum þessa fínu dráttarvél með ámoksturstækjum (en það var algjört skilyrði) og létum svo pakka henni fínt inn í blómabúð. Hann var frekar montinn þegar hann fékk afhenda pakkann með viðhöfn í veislunni. Það er auðvitað skemmst frá því að seg...