Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá júlí, 2006

Sveitamarkaður

Í þriðja skiptið núna á sunnudaginn í "bongóblíðu". Ýmislegt hægt að kaupa eins og sjá má.

Miðaldadagar

Danskt miðaldapar í dansi fyrst en síðan eftir nokkur átök og sverðaglamur hafði valkyrjan, karlrembuna undir. Og varð hann að biðjast afsökunnar á niðrandi orðum sem hann hafði um kvenhlutverkin. Við mamma keyptum okkur ölkönnur af danskri sölukonu, smökkuðum kjötsúpu, hlustuðum á kórsöng og fengum leiðsögn um svæðið á Gásum en þar voru miðaldadagar um helgina, tjaldað hafði verið yfir nokkrar búðatóftir og margt að skoða. Sveitungar mínir voru að sjálfsögðu mættir. Fjölskyldan í Kristnesi, Guðrún og Jón á Stekkjarflötum og fleiri. Ég fékk einmitt vattarsaumsnál úr beini (eða horni) hjá Guðrúnu. Mjög skemmtilegt og gaman að hugsa sér hvernig lífið hefur verið þarna að sumrinu á 13. öld.

Veðrið !!!

Eftir að hafa dvalið í sumarhúsi í viku í Hveragerði í misjöfnu veðri, svona eins og gengur og búin að vera heima í nokkra daga hef ég komist að niðurstöðu. Munurinn á veðrinu í á Suðvesturhorninu og hérna á Norðurlandi er sá að ef að þú spyrð Reykvíking hvernig veðrið sé, er það ÖMURLEGT en aðspurður svarar Norðlendingurinn aldrei öðru en að það sé gott veður. Alveg sama hvernig það er. Gott veður eða vont, það er bara spurning um hugarfar. Hér "veit" fólk að veðrið er alltaf gott en á íbúar á Suðvesturhorninu er strax í startholunum í byrjun júní og ef að það kemur dropi úr lofti í meir en tvo daga í röð er sumarið ónýtt. Ég þurfti að skreppa í bæinn snemma í morgun og útvarpið í litla bílnum er orðið svo lélegt að maður setur bara á stöðvaleit og svo er beðið eftir að eitthvað heyrist. Heyrði tal tveggja á einhverri útvarpsstöðinni og það var veðrið í Reykjavík, nokkuð lygnt í morgunsárið og hiti um ellefu stig á celsius. Ellefu gráður og það er kominn miður júlí sagði st...

Sumarfrí

Bloggleysi síðustu viku stafar af því að við fjölskyldan skelltum okkur frekar óundirbúið í sumarbústað í síðustu viku. Fyrir tæpum þremur vikum fannst okkur allt í einu alveg ómögulegt að fara ekki neitt í sumar. JÓH fór að leita á netinu og við höfðum upp úr krafsinu viku í Ölfusborgum í bústað sem Félag bókagerðarmanna á en við leigðum af Félagi málmiðnaðarmanna á Akureyri. Ég kann varla við að segja hvað við borguðum fyrir vikuna því það er í allt öðrum verðflokki en ég á kost á í mínu stéttarfélagi og þá meina ég ódýrara. Bústaðurinn kom okkur skemmtilega á óvart, allt til alls og þó plássið væri ekki mikið fór bara vel um okkur. Meira að segja uppþvottavél. Pabbi og mamma voru hjá okkur um helgina og vikan fór svo í það að liggja í leti og borða góðan mat. Ég hef aldrei áður komið í Ölfusborgir og get alveg mælt með þessum stað. Þó að það sé stutt á milli húsa er gróðurinn svo mikill að maður verður ekki var við nokkurn mann. Við komum heim á föstudagskvöldið og ég er ekki alveg ...