Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá júní, 2007

Einn traktor

Nokkrar myndir frá Bílasýningunni "Þetta er stærsti traktor sem ég hef séð". Opel Rekord ´65 eða svo, mynd fyrir afa. Mátti til að smella einni af JÓH. Það rifjuðust upp fyrir honum gamlar minningar frá sumrinu '79. Listflugvélin hans Arngríms.

Hæ, hó jibbí jey...

Gleðilega hátíð. Myndin hér að ofan tengist 17. júní ekki neitt. Ég fann hana á vélinni áðan þegar ég var að setja myndir dagsins inn í tölvuna. Halldór viðurkenndi að hafa laumast til að smella af einhverntímann í síðustu viku þegar ég og heimilskötturinn fáum okkur síðdegisblund. Eins og sjá má til hægri er ég í miðju kafi við að brjóta saman þvott. Ástandið hérna á heimilinu undanfarið hefur verið þannig að ég var alveg hætt að skilja hvaðan allur þessi þvottur kom. Og að nokkur á heimilinu gæti fundið nokkuð inni í skáp hjá sér að fara í var mér ráðgáta. Það var allt á, við, undir og ofan á strauborðinu. Er nema von að ég hafi liðið út af af þreytu eftir öll húsverkin. Þetta er allt að koma og húsmóðirin í Brekkutröðinni ekki alveg eins aðframkomin eins og undanfarinn hálfan mánuð. Ég sé fram á viku sumarfrí og ætla að taka til hendinni við vor og jólahreingerningarnar. Eða vinna í garðinum, fer eftir veðri. Ég vaknaði samt í morgun með kvíðahnút í maganum. Dreymdi í morgunsárið a...

Bloggleysi

Ég sé að það er mánuður síðan ég bloggaði síðast. Verð að viðurkenna að ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að hætta þessu alveg en....

sumarfrí

Ég er loksins að koma úr kafi eftir törnina síðustu vikur. Búin að ferma einkadótturina og ljúka skólanum. Skrapp aðeins í vinnuna í dag til að taka með mér verkefni fyrir sumarið. Í gær fór ég í fyrstu ferðina. Fannst ég vera heldur ryðguð, vantaði orð og hafði á tilfinningunni að ég blaðraði tóma steypu á tímabili. Bíllinn bilaði svo þegar við vorum að koma niður Víkurskarðið og það kostaði tuttugu mínútna bið eftir nýjum bíl. Hópurinn var til allrar lukku mjög jákvæður og hress og tók öllu vel. Þau voru líka búin að hlæja svo mikið að bullinu í leiðsögumanninum!!! Við gátum þó lokið ferðinni með því að taka mjög stutta bæjarskoðun og stoppa í korter í lystigarðinum. Spurning dagsins var hvort ég vissi hvar væri hægt að fá lúpínufræ en það var ein konan svo óskaplega hrifin af alaskalúpínunni sem sem er í blóma þessa dagana. Myndin er úr hvalaskoðunarferð sem ég fór í í vor með leiðsögumönnum. Við vorum alveg óskaplega heppin með veður og hvali líka og mæli ég með þessum ferðum við ...