Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá september, 2008

laugardagshreingerning

JG vaknaði snemma í morgun og kom til að kúra undir sænginni hjá mömmu og pabba. "það verður skemmtilegur dagur í dag". Þeir feðgar drifu sig svo fljótlega í "Dalinn" til að eyða deginum á dráttarvél með skítadreifara í eftirdragi. Ég og einkadóttirin tókum til hendinni í hefðbundinni laugardagshreingerningu. Mér þykir ekki skemmtilegt að skúra svo ég verðlauna mig með því að sitja smá stund við tölvuna og skríð svo inn í stofu með prjónana og horfi á einhverja skemmtilega mynd í rólegheitunum. Með tebolla við hendina. Nýt þess að vera ótrufluð. Svo ætlum við að drífa okkur í leikhús í kvöld hjónakornin.

Mánudagsmorgun

Maddama Blíða nýkomin úr baði. Jóhann Gylfi er veikur í dag og ég er heima til tíu. Hangi náttúrulega í tölvunni á meðan og fann þá þessa skemmtilegu mynd sem er tekin einhverntíman í vor. IH tekur sig til annað slagið og baðar maddömuna við litla hrifningu eins og sjá má á svipnum. Segiði svo að kettir séu karakterlausir.

Aðalberin

Aðalberin eru tínd í Svarfaðardalnum að sjálfsögðu. Í brekkunum fyrir ofan sælureitinn okkar. Það verða ber með rjóma í kvöld.

Sólblóm

Þau eru á síðasta snúningi þessar elskur sem fanga sólina sjálfa í blómkrónum sínum. Haustið er á þröskuldinum býr sig undir að banka...

Klofasteinar

Staðurinn heitir Klofasteinar efri og er í Möðrufellshrauni neðra. Fyrir um 250 árum fór fram þarna síðasta aftakan í Eyjafirði þegar Kálfagerðisbræður voru höggnir ásamt þriðja manni. Afar fáir sveitungar mínir þekkja þennan sögustað sem þó er í alfaraleið.