Kom heim úr ákaflega skemmtilegu ferðalagi á laugardagskvöldið. Lenti í ferðanefnd í kvenfélaginu mínu í vor og við ákváðum að fara í tveggja daga ferð um Skagafjörð og Húnavatnssýslur. Komum víða við en slepptum líka ansi mörgu. Mælt er með: Prjónuðum ljósastaur í Ólafsfirði. - Litla vinnustofan (var því miður ekki með myndavél með mér). Stoppi í Héðinsfirði (vera með nesti). Þjóðlagasetrinu á Siglufirði (auðvitað Síldarminjasafninu líka en við heimsóttum Þjóðlagasetrið að þessu sinni og fengum kaffi og þjóðlegan tónlistarflutning. Fallegt hús og skemmtilegt og mjög fróðlegt safn). Galleryinu á Hrauni í Fljótum (þar fæst æðardúnn). Sundlauginni á Hofsósi (skyldustopp). Skagfirðingabúð (á kvenfélagsferðalögum er stoppað í búðum og þetta er "búðin"). Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi (ég segi varla frá því upphátt að ég handavinnukennarinn kom þar síðast fyrir tuttugu árum). Þingeyrarkirkju (eitt af merkilegri guðshúsum á Íslandi, verður varla með orðum lýst). Hlaða...
Í dagsins önnum.