Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá febrúar, 2005

Líkamsræktin

Fór með JÓH og krökkunum á Bjarg í gær. En þar var fjölskyldudagur. Strákarnir fóru og lyftu með pabba sínum en IH mætti í unglingaþrek sem boðið var upp á. Ég lét mér nægja að eltast við JG á meðan. Gat þó spurst fyrir um það hvort þriggja mánaða gjafakortið, sem ég er búin að eiga í tvö ár, væri nokkuð útrunnið. Sem það er ekki. JÓH er búinn að lofa mér því að ganga með mér á Súlur og jafnvel einhver fleiri fjöll í sumar þannig að það er líklega best að fara að reyna að koma sér í betra form.

Heimasætan

Ein af heimasætunni með flétturnar sínar.
Grísaráin

Froststillur í febrúar

Þegar ég vaknaði í morgun hélt ég augnablik að það hefði snjóað en það var þá bara allt hvítt af hélu.

Töskur

Er þetta ekki eitthvað akkúrat fyrir mig. Við bleiku eða bláu sumarkápuna sem ég á eftir að fá mér... Marimekko

Bangsímon

Við Jóhann Gylfi fórum í bíó í gær og hann í fyrsta skipti á sinni 4 ára æfi. Fáfni frænda okkar langaði svo að sjá Bangsímon og Ragnheiður mamma hans fékk þá góðu hugmynd að bjóða okkur JG með. Það er skemmst frá því að segja að bíóið var þvílík upplifun að drengurinn getur ekki beðið eftir því að fara aftur. Hann ætlar í bíó og sjá "stóra sjónvarpið". Ég sé fram á að þurfa að fara aftur um næstu helgi. Aftur á móti ætlaði stóra systir hans í bíó með vinkonum sínum í gærkvöldi en rak sig þá á vegg. Þar sem okkur foreldrum hennar þykir laugardagskvöld ekki vera réttur tími fyrir 11 ára börn að fara í bíó. Hún fór því ekki og var ekki sérlega ánægð með mömmu og pabba. En það verður að hafa það.

Hræringur

Inga Hildur fór með bekknum sínum á Minjasafnið í gær til að kynnast gömlum íslenskum matarhefðum. Þar voru sýnishorn af ýmsum mat og þau fengu að smakka. Svo kom að einum rétti og spurði safnkennarinn yfir hópinn hvort einhver vissi hvað þetta væri. Ein hönd hófst á loft. "Já, þetta er hræringur. Afi borðar svona og ég líka". Þetta var IH Jóhanns. og var hún sú eina sem nokkru sinni hafði kynnst hræring. Það fengu sér víst flestir smá smakk af hræringnum. "Hann var bara góður", sagði hún svo aðspurð í gærkvöldi. Það er nú langt síðan mér hefur flogið í hug að búa til hræring, þó elda ég oft hafragraut en hann klárast yfirleitt. Líklega passar hann ekki vel með vanilluskyrinu sem er inni í ísskáp. Það er þó aldrei að vita. Mig minnir nú einhvernvegin að skyrið hafi verið ósætt sem notað var í eldhúsinu á Kristnesspítala þegar ég var að vinna þar á unglingsárunum. Það er ýmislegt fleira sérkennilegt sem IH hefur borðað hjá afa sínum og ömmu til dæmis soðnir þorskhaus...

Móðir Teresa

Fólk er oft sjálfselskt, óskiljanlegt, ótryggt - fyrirgefðu því samt. Ef þú ert örlátur muntu ef til vill verða ásakaður um sjálfselsku - vertu samt örlátur Ef þér vegnar vel muntu eignast falska vini og sanna óvini, leitastu samt við að vegna vel. Ef þú ert heiðarlegur og hreinskiptinn þá mun fólk ef til vill notfæra sér þig. - vertu samt heiðarlegur og hreinskiptinn. Það sem þú hefur eytt árum í að byggja upp mun einhver ef til vill eyðileggja á einni nóttu - byggðu samt Ef þú finnur frið og hamingju verður einhver ef til vill öfundsjúkur - vertu samt hamingjusamur Það góða sem þú gerir í dag verður ef til vill gleymt á morgun. - Gerðu samt góðverk í dag. Gefðu heiminum það besta sem þú getur, og það nær áreiðanlega skammt. - Gefðu samt það besta sem þú getur. Því þegar allt kemur til alls þá er þetta allt milli þín og Guðs. - það var aldrei milli þín og hinna. Móðir Teresa

Öskudagur

Inga Hildur, Helga og Kata Þessi mynd er tekin í gær á Sprengidagsballinu í skólanum. Dóttir mín er þessi hvíta en hún er "ísmeyja". Hannaði búninginn sjálf en ég sá um saumaskapinn. Verst að búningurinn var eins kaldur og hann leit út fyrir að vera og mamma var ekki vinsæl þegar hún heimtaði að daman tæki með sér síðbrækur til að fara í undir nælonsokkabuxurnar. Hún fór með sængina sína í gærkvöldi og gisti hjá vinkonu sinni í en þær voru saman í liði þessar þrjár sem eru saman á myndinni. Mamma einnar sá um að keyra þær í bæinn í morgun. Tvíburarnir eru vaxnir upp úr öskudagsliðum, en við fórum samt í bæinn og fórum á kaffihús. Ég er alveg laus við það að pirra mig yfir öskudeginum eins og mér finnst margar mæður í kringum mig gera. Hef bara gaman af þessu öllu saman. Í morgun þegar við komum í bæinn byrjuðum við á því að fara til Dísu systur og fá okkur smá kaffi þar og hlusta á eitthvað á annan tuginn af öskudagsliðum, en það var stöðugur straumur á skrifstofuna...

Rokkhljóðið

Örverpinu er ekki alls varnað. Hann situr hér fyrir aftan mig og stígur rokkinn af miklum móð. Finnst líklega hljóðið eitthvað róandi. Reynir samt að komast eins hratt og hann getur svo að bandið hrekkur útaf hjólinu reglulega. Ég skrapp svo frá til að hita mér tebolla og þá var sá stutti fljótur að grípa tækifærið og skellti sér í tölvuna. Þó að hann sé ekki nema fjögura ára veit hann upp á hár hvernig á að fara á netið (erum að vísu með sítengingu) og finna leikinn sem honum finnst skemmtilegastur. Tölvan var alveg að gefast upp á fiktinu í honum um daginn og þá brugðum við á það ráð að setja lás á hana, sem dettur á um leið og skjáhvílan. Eftir mínútu eða svo. En það dugar ekki alltaf.

Gulrófur

Ég setti pínulítinn teljara á síðuna og það eru bara þónokkuð margir sem slæðast hingað. Ekki veit ég til hvers það hlýtur að vera alveg óvart. En að rófunum. Gulrófur hafa alltaf verið fyrir mér eitthvað sem maður borðar hrátt á sumrin, í rófustöppu á þorranum og svo rétt til bragðbætis í kjötsúpuna. Soðnar rófur hafa aldrei heillað mig neitt sérstaklega. En ég er búin að komast að því að svo lengi lærir sem lifir. Uppskriftin sem ég sauð saman í fyrrakvöld þegar ekkert annað grænmetiskyns var til í ísskápnum hljóðar nokkurnvegin svona: Gulrófa í teningum sæt kartafla í teningum hvítkál í strimlum rauðlaukur í þunnum sneiðum (minnir mig) nokkrir bitar beikon harðsteikt Steikt á pönnu í pínulítilli olíu. Kryddað með karrýpasta úr krukku eftir smekk og látið hitna undir loki í nokkrar mínútur. Svona er ég skrítin.