Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá 2005

Annar í jólum

Eftir rauðan aðfangadag og jóladag í roki og rigningu er loksins farið að snjóa örlítið þannig að rót er orðin grá. Jólin eru búin að vera alveg hefðbundin hjá fjölskyldunni í Brekkutröðinni. Við bættum forrétt framan á matseðilinn á aðfangadagskvöld. Töldum meirihluta barnanna vera orðin nógu þroskaðan til að lengja borðhaldið. Jóhann Gylfi borðaði vel af humrinum en hafði enga lyst á meiru! Borðhaldinu seinkaði sem forréttinum nam þannig að um hálf tíu tókum við hlé á jólapökkunum og fórum í messu á Grund. JG fékk að hafa með sér bíl og dundaði sér með hann í kirkjunni meðan við meðtókum jólaboðskapinn. Hann var svo heppinn að þegar heim kom aftur voru náttföt í fyrsta jólapakkanum svo hann skifti snarlega og sofnaði svo á gólfinu ofaná nýja flísteppinu innan um traktorana sína. (Það er mikið búið að heyja þessi jólin enda gott úthald til á bænum). Í gær var svo hangikjöt í Fjólgötunni seinnipartinn og svo jólaboðið hjá stórfjölskyldunni í gærkvöldi, líf og fjör að venju og fullt af ...

Þorláksmessukvöld

Þetta er að vísu ekki jólamyndin í ár. Þetta er ein af þeim sem ekki stóðst skoðun og ég valdi af handahófi núna til að setja hér inn. Þau eru komin í háttin núna enda farið að halla í aðfangadag og þau vita að það er ekkert eftir nema pakka inn jólagjöfunum til þeirra. (fyrir utan pínu skúringar). Gleðileg jól

raunir stekkjarstaurs

Þetta er nú aldeilis fín mynd og segir býsna margt um þroska listamannsins sem er rétt að verða 5 ára. (eftir þrjár vikur eða þar um bil). Í gærmorgun stökk hann á fætur þegar ýtt var við honum og rauk út í glugga og hvað haldiði að Stekkjarstaur hafi komið með??? Þetta fína litabox með vaxlitum. Litli drengurinn fór glaður og ánægður á leikskólann. Seinna um daginn labbaði hann heim til afa með stóru systur sinni og sagði afa auðvitað frá fínu litunum sem hann fékk í skóinn. Þá varð afa að orði: " Þá geturðu nú aldeilis málað á veggina heima hjá þér"! Til skýringar verður að geta þess að afi er ákaflega stríðinn og man vel eftir því þegar elsta dóttirin hjólaði ganginn endilangan með lit í annarri hendinni og teiknaði á veggina allt sem henni þótti fallegast. Litli drengurinn er skynsemdarbarn. Þegar hann kom heim til sín fór hann beina leið inn í stofu með litaboxið og teiknaði þessa fínu mynd af systur sinni á miðjan vegg. Það vantar á hana hárið en það er líklega vegna þe...

jólafundur

Sunnudagskvöld, þriðji í aðventu, jólafundur hjá kvenfélaginu. Ég fékk ekki möndluna, því miður. En fékk að láta ljós mitt skína. Las jólasögu og smávegis frá eigin brjósti um jólaundirbúninginn. Játaði m.a. að ég væri ekki farin að skrifa jólakortin. Sem er alveg satt. Ég hef svosem engar sérstakar áhyggjur af því, nema bara þessum sem þurfa að fara til útlanda. Við erum enn að strekkja við að taka myndir af börnunum og þó svo að við hefðum tvær myndavélar í takinu þegar við fórum í jólamyndatökuna á dögunum er eiginlega engin nothæf mynd af liðinu. Það er litli prinsinn sem kemur verst út er annaðhvort í fýlu eða grettukeppni. JÓH hefur meiri áhyggjur af þessu en ég. Enda bíð ég líka bara eftir hönnuðinum núna. Ég stakk upp á því að við sendum bara mynd af sumarbústaðnum í staðinn fyrir börnin, en það féll í frekar grýttan jarðveg. Við álpuðumst í bæinn (Akureyri) í gær, sem aldrei skyldi verið hafa. Það viðraði sýnilega vel til ferðalaga og bærinn fullur af fólki, það var ekki viðli...

Il divo

Í Idol pásunni í kvöld skiftum við yfir á Rúv og blasti þá ekki við þessi yndislegi kvartett Il divo syngjandi eitt af mínum uppáhaldslögum, unchained melody, á ítölsku líklega. Ég veit alveg hvaða jóladisk mig langar í, eða bara báða diskana þeirra. Þeir sungu alveg yndislega og ekki skemmdi fyrir hvað þeir voru ósköp fallegir.

Æsir

You are Freyja! Goddess of Love you are very beautiful and very wise. Your knowledge of magic rivals that of Odin himself. You have loved and lost and your tears form the amber we find here on earth. Which Norse God are You? brought to you by
Fræðatröll Þú ert vanafastur, tilfinningaríkur innipúki. Fræðatröllið er forvitið að eðlisfari og er köllun þess í lífinu að komast að sannleikanum. Fræðatröll má gjarnan finna í dimmum skúmaskotum bókasafna þar sem þau rykfalla og sussa á aðra gesti safnsins. Fræðatröllið klæðist gjarnan flaueli - nema þegar það er í tísku. Hringitónninn í síma þess er stefið úr þættinum Nýjasta tækni og vísindi, sem það grætur stöðugt að sé ekki lengur á dagskrá. Hvaða tröll ert þú?

Dagar í nóvember

Ég er búin að setjast nokkrum sinnum við tölvuna í vikunni. Horfa á skjáinn en ekkert kemur upp í hugann. Það er ekki eins og það sé ekki búið að vera nóg að gera! Ég hlakka svo til á morgun, sunnudag þá er ekkert á dagskránni. Leikhúsvertíðin hjá okkur byrjaði á fimmtudegi fyrir viku þegar við fórum að hlusta og horfa, á Brynhildi Guðjóns, ásamt fleirum niðri í Leikhúsi, að túlka Edit Piaf. Það var alveg yndisleg stund og stelpan er bara hreint frábær. Ég vildi gjarnan hafa séð allt verkið en þetta var þó betra en ekki. Á föstudagskvöldið fórum við hjónin síðan í Grundarkirkju að hlusta á Ellen Kristjánsdóttur flytja sálmalög með manninum sínum honum Eyþóri. Ég skil bara ekkert í því af hverju ég er ekki búin að eignast diskinn hennar. Kirkjan var náttúrulega alveg frábær umgjörð um sönginn hennar Ellenar. Grundarkirkja er kirkjan mín, þar sem ég var skírð og fermd. Þar giftum við Jóhann okkur og bárum börnin okkar til skírnar. Kirkjan varð hundrað ára á dögunum og var haldið upp á þa...

Í snjóskaflinum

Hérna kemur loksins myndin sem ég var að brasa við um daginn. JG fékk að fara út að leika sér í dag á leikskólanum, búinn að fá nýjan útigalla. Enda vaknaði hann fyrir allar aldir, hlakkaði svo til. Ég held að vísu að hann hafi bara verið í pollagallanum það er búin að vera hláka í dag því miður. Ég keyrði með strákana upp í Fjall í gær á bretti, það var eiginlega þoka uppfrá og hálf leiðinlegt skyggni. Þeir létu sig nú hafa það og komu blautir heim. Í dag fékk ég skyndilega það á tilfinninguna að ég þyrfti að fara að gera eitthvað í jólaundirbúningi. Ég veit ekki alveg hvað olli þessu og ég er ekkert farin að gera í því ennþá. Spurning hvort maður á að fara að baka eða föndra. Ég var nú búin að hugsa mér að snúa á kaupæðið sem virðist hafa heltekið landann, þó að það sé ekki kominn miður nóvember og hafa heimatilbúnar jólagjafir þetta árið. Fékk meira að segja hugmynd að mjög ódýrum gjafapappír. Hmm...

snjókoma

Ég ætlaði að setja inn mynd af JG að moka pallinn en það gengur eitthvað brösulega. Heimasætan er einhversstaðar á leiðinni vestan úr Hrútafirði. Ég veit ekki annað en allt gangi að óskum. Það þurfti að senda bíl til að ná í hópinn því að áætlunarferðin fór ekki úr Reykjavík í morgun vegna veðurs. Ég fór að leita að snjóskóflunum áðan eftir að hafa þurft að ösla snjóinn í hné fyrir utan útidyrnar. JG er kominn inn. Farinn úr blautu fötunum. Hann var ekki klæddur til útiveru enda búinn að vera inni á í næstum þrjár vikur. Hann er annars orðinn alveg frískur og fékk þessvegna að moka í smástund, en núna þarf hann "aðeins" að komast í tölvuna.

Tehettur

Var að klára þessar tvær. Sú röndótta átti að verða afmælisgjöf en ég er miklu ánægðari með þessa einlitu. Hún bara ekki í réttum lit þannig að ég gróf dýpra í garnkörfunni og fitjaði upp á einni enn. Þær eiga kannski eftir að verða fleiri

Sunnudagskvöld

Heimasætan er komin með kvíðasvip á andlitið. Búin að raða og endurraða í ferðatöskuna, eða töskurnar öllu heldur því "flugfreyjutaskan" sem bróðir hennar lánaði henni sprakk þegar stígvélunum var skellt ofan á öll fötin og annað sem verður að hafa með. Hún er að fara á Reyki í fyrramálið og kemur ekki heim fyrr en á föstudaginn aftur. Spennan fyrir þessarin ferð er búin að vera ansi mikil undanfarið en núna er hún orðin pínulítið stressuð. Ég vona bara að hún sofi eitthvað í nótt blessunin. Ég fer vonandi á Reyki eftir ár með umsjónarbekkinn minn. Hef verið þar tvisvar sinnum og í bæði skiftin var mjög gaman. JG er allur að hressast af lungnabólgunni og fer á leikskólann á morgun til prufu, til 14:08 þegar lokar. Ég er ekki búin að ákveða hvort ég fer í Sjallann á morgun á fundinn en ég fer heim úr vinnunni. Árið 1985 var ég að vinna vaktavinnu á Kristnesi þennan dag, þá var boðið upp á sherrystaup á vaktaskiptunum í tilefni dagsins. Mér fannst það bara fínt.

"Ég er með plástur"

Eins og veðrið hefur verið leiðinlegt í haust er heilsufar fjölskyldunnar búið að vera enn verra. Við enduðum læknisheimsóknina í dag á lungnamyndatöku og blóðprufu uppi á FSA. JG stóð sig eins og hetja og fölnaði ekki nándar nærri eins mikið og pabbi hans, (sem hélt á honum) í blóðprufunni. Hann er semsagt með lungnabólgu, en búinn að fá viðeigandi lyf og fer vonandi að rétta úr kútnum.

vetur

Heiðskír himinn blár, hvítur og roðagullinn. Snjór yfir öllu, frost og stillt. - Allir út að anda að sér hreinu köldu lofti sem ilmar af snjó, frosti og vetri. Það er ekki að vita nema að veturinn sem kom í gærkvöldi verði orðinn aftur að haustrigningu í fyrramálið. Ein í svartsýniskasti. Hugsa jákvætt.... Hugsa jákvætt...

Hálka

Fyrsti hálkuakstur haustsins. Fyrsta (segi og skrifa) ferðin í ræktina í haust. Lendi ég þá ekki á eftir þrjátíu hjóla trailer flutningabíl, upp brekku. Svo hægði hann alltaf meira og meira á sér og ég áttaði mig allt í einu á því, komin alveg aftan á hann, að hann hafði sig ekki upp og var farinn að renna ískyggilega til hliðar að framan. Til allrar lukku fyrir mig og farþegana fjóra var enginn umferð á móti svo mér tókst að skjótast framhjá á mínum fjórhjóladrifna fjölskyldubíl. Sem er að sjálfsögðu í fjórhjóladrifinu þegar færðin er svona eins og hér þessa dagana. Slökuninn eftir body balance tímann fór alveg fyrir ofan garð og neðan því ég sá alltaf fj.. trailerinn fyrir mér, rennandi afturábak. Keyrði sveitt í lófunum heim, án óhappa.

Sjóhattar

Ég var minnt á það að ég hefði lofað að setja inn mynd af sjóhatti eins og þeim sem við vorum að selja á Handverkshátíðinni. Hér er heimasætan með einn sem dagaði upp hjá mér. (er örlítið gallaður). Til útskýringar þá ákvað kvenfélagið mitt að reyna nú loksins að nýta Handverkshátíðina til einhverskonar fjáröflunar og af því að þemað var hafið þá fengum við þessa "brilljant" hugmynd að sauma sjóhatta. Markmiðið var líka í og með að vera með þannig varning að við værum ekki í samkeppni við þá einstaklinga sem eru á sýningunni. Þeir urðu til í sumar í öllum regnbogans litum og seldust alveg prýðilega. Í leiðinni seldum við líka dagatölin okkar. En dagatalið fyrir árið 2006 kom snemma út að þessu sinni (fæst m.a. hjá mér).

Dagur

Nú er fyrsti í sameiningarkosningum á föstudaginn. Ég rakst á fréttasíðu sem m.a. segir mjög skilmerkilega frá öllum kynningarfundunum um sameiningarmál hérna í Eyjafirðinum. Ég mætti meira að segja á einn þeirra, svona til að vera viðræðuhæf. dagur.net er fín fréttasíða, ekki skemmir nafnið og letrið í hausnum vekur upp gamlar góðar minningar.

Hóllinn

Ég var búin að lofa einhverjum að setja inn mynd af sælureitnum okkar. Framkvæmdirnar rigndi niður með haustinu en áætlunin var upphaflega sú að búið yrði að setja klæðningu utan á bæði húsin fyrir veturinn. Það náðist þó að taka til í kring fyrir snjóa. En svona leit þetta út í lok ágúst og hefur lítið breyst. Nota bene þá á eftir að setja "pósta" í gluggana á stóra húsinu þannig að þeir munu ekki líta alveg svona út. Og þetta hvíta er ekki klæðning heldur undirlag, eða eitthvað svoleiðis. Það sést þarna glitta í tvöfalda hurð sem snýr nokkrunvegin í suður og ég segi og stend við það að það er alltaf skjól undir þessum vegg hvernig sem vindur blæs.

Jamm og jæja

Það var alhvít jörð í morgun. Veturinn mættur á svæðið. Vetrarkápan, skósíð og þykkur trefill um hálsinn, fann enga vettlinga? Lopapeysan innanundir, rennt upp í háls. Litla barnið hóstaði svo að það munaði ekki miklu að snúið væri við í útidyrunum. En hvað um það. Klukkan rúmlega fimm fór ég úr vinnunni með kápuna á handleggnum og trefilinn flaksandi á eftir mér í sunnangjólunni. Lopapeysan "frárennd". Svo fór ég og hengdi út á snúrur, sem þýðir að það hefur ekki rignt í dag. Hm... Mér er alveg hætt að lítast á hvað ég blogga sjaldan.....

haustlægðir

Það er frekar þungskýjað þessa dagana. Dagarnir styttast og veturinn er eitthvað svo óskaplega langur fram undan. Ekki síst þegar hver dagurinn á fætur öðrum líður í roki og rigningu eða strekkingi og slyddu eða kalda og éljagangi, stundum allt í bland. Og ég sem lýsti því yfir í klukkinu að ég væri fréttafíkill, er hætt að lesa Moggann (nema minningargreinarnar) og kveiki helst ekki á útvarps eða sjónvarpsfréttum. Baugsmál valda mér bara flökurleika. Miðvikudagur og lífið gengur sinn gang...

Sjónvarpskvöld

Fátt þykir mér skemmtilegra að horfa á í sjónvarpi en matreiðsluþætti. Sætu kokkarnir tveir sem eru núna í RÚV á miðvikudagskvöldum eru ósköp sætiri og góðir á brimbrettum en eldamennskan er alltof mikið veitingahúsaeldhús fyrir minn smekk. Óvart horfði ég aftur á móti á bráðskemmtilegan sænskan ferðaþátt, Á faraldsfæti þar sem sænskur sjónvarpsmaður fór um Vesturland og Vestfirði með íslenskum samferðamanni sínum til að sýna aðra hlið á Íslandi en goshveri og eldfjöll. Þeir komu við í Bjarnarhöfn hjá Hildibrandi og smökkuðu hákarl. Þeim sænska þótti bragðið minna helst á vel þroskaðan sterkan ost og þykir mér sú samlíking svolítið skemmtileg. Þeir fóru svo áfram vestur á bóginn en í miðjum þætti milli Látrabjargs og vestfirskra fjalla kom langt myndskeið af Dettifossi! Ég vona bara að sænskir túristar fari ekki að leita að vatnsmesta fossi á Íslandi vestur á fjörðum. Dönsku skólapiltunum sem gistu hjá okkur nokkrar nætur fyrir ári þótti Dettifoss toppa allt sem þeir sáu í íslensku la...

Klukk

Það er einhverskonar klukk leikur í gangi á blogginu. Guðrún Vala klukkaði mig og þá á ég víst að gefa upp 5 gagnslausar upplýsingar um sjálfa mig. 1. Ég er að verða gráhærð, rúmlega fertug manneskjan hef aldrei látið lita á mér hárið (þrisvar farið í strípur) og held ég sleppi því bara. Stefni á að næla flétturnar undir skotthúfuna þegar JG verður fermdur. 2. Ég er fréttafíkill. Sakna alltaf fyrsta vetrarins í sambúð okkar JÓH. Þá fengum við hvorki meira né minna en sex dagblöð inn um lúguna á hverjum m0rgni. Nú er það bara Mogginn.... og netið. 3. Ekkert fer eins í taugarnar á mér og tillitsleysi og dónaskapur í umferðinni. 4. Mér líður best heima hjá mér (en þó ekki of lengi í einu). 5. Og síðast en ekki síst þá er ég kvenfélagskona og stolt af því. Haustfundurinn er annaðkvöld og þá verður örugglega gaman. Allt frekar léttvægt. Ég þekki svo fáa bloggara að það þannig að ég klukka bara hildurinu og Báru Mjöll .

sunnudagskaffi.

Ég snaraðist út í garð í morgun og smellti nokkrum myndum af gljámisplinum sem er svona óskaplega fallegur á litinn þessa dagana. Eins og sést var (og er enn) rigning. Hér var því innidagur í dag. Þvegið fyrir þurrkarann, tekið til og svo bretti ég upp ermarnar og bakaði vöfflur með kaffinu. Sem var líka eins gott því það komu gestir. Ég luma á aldeilis ágætri vöffluuppskrift sem ég fann einu sinni á netinu og hef prentað reglulega út því að ég týni alltaf blaðinu. Nú brá svo við að það er búið að breyta síðunni og ég fann ekki uppskriftina en til allrar hamingju fann ég eina útprentun. En uppskriftin er svona: 2 egg 5-6 dl hveiti 3 tsk. lyftiduft 1/2 l súrmjólk 1 tsk salt 4 msk olía eða 50 g smjör/smjörvi brætt. mjólk Eggin og súrmjólkin létthrært saman. Þurrefnunum blandað saman við og síðast olíunni. Þynnt með mjólk ef þarf.

Persónuleikapróf Bangsímons

Take the 100 Acre Personality Quiz! Þegar ég var lítil hét þessi persóna Kengúran og unginn hennar var kengúrubarnið. Mér hefur alltaf líkað betur við gömlu þýðinguna. Skógurinn hét líka Hundraðmetraskógur sem er líka búið að breyta. Mig minnir að Kengúran hafi verið frekar ströng mamma. Bara alveg eins og ég...

Bros

Mamma: "hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór?" Litli drengurinn: "fimm ára." Hann er rúmlega fjögura og hálfs árs)

Haust frh.

Einn morguninn í vikunni var svona umhorfs á pallinum og ég smellti af þessari mynd áður en ég fór í vinnuna. Daginn áður fórum við mamma í þrjúkorter í hrútaberjamó og tíndum heilmikið. Þannig að ég á nokkrar krukkur af þessu fína hrútaberjahlaupi. mmm... Í næstu uppstyttu verður að fara að taka upp kartöflur. En það verður líklega ekki í dag. Unglingarnir fóru til Reykjavíkur á föstudaginn, og koma heim á morgun. Það átti að fara í búðir og fleira. Ég náði í fjósamanninn á fimmtudagskvöldið (eftir fjós). Hann ætlar úteftir um næstu helgi en þá eru seinni göngur. Bróðir hans hætti að vinna fyrir viku og er búinn að liggja heima veikur síðan, með kvef og hálsbólgu. Ég lét hann hringja í heimilislækninn á fimmtudag en það er víst ekkert við þessari pest að gera nema láta sér batna. Skólinn byrjar svo á þriðjudaginn hjá þeim. Þeir hlakka mikið til, eru búnir að kíkja á stundatöflur á netinu og komust að því að þeir eru ekki saman í bekk, sem er bara allt í lagi.

Haust

Svona var útsýnið einn morguninn í fyrri viku. Það er orðið svo langt síðan ég hef bloggað að ég sleppti alveg heilli helgi úr. Síðasta sunnudag fórum við út í Svarfaðardal í réttirnar og tókum tengdamömmu með. Hún hitti marga og frétti margt! Það eru að nálgast tuttugu ár síðan hún flutti úr sveitinni og henni fannst hún þekkja orðið heldur fáar í konurnar í kaffinu. Fjósamaðurinn fór í göngur á laugardeginum og endaði svo á gangnaballinu á sunnudagskvöldið. Þá var mömmu um og ó, en barnið er orðið sextán og það er löglegur aldur inn á svona skemmtanir. Hann kann fótum sínum forráð drengurinn, finnst áfengi vont en gerði nokkrar atferlisathuganir á samferðamönnum sínum sem gerðust drukknir mjög þegar leið á. Núna um helgina eru göngur og réttir hérna framfrá en það er nú orðið þannig að réttirnar sem ég fór á þegar ég var krakki eru löngu aflagðar vegna þess að það er ekki lengur neitt fé sem gengur hér í fjallinu. Hér eru þó aðrar réttir sem standa enn fyrir sínu. Gangnamenn hér feng...

12. ára

Hún átti afmæli í gær, er eiginlega orðin unglingur. Hún átti að fæðast um miðjan ágúst á sama tíma og bræður hennar en henni fannst það augljóslega ekki ákjósanlegt og lét bíða eftir sér. Ég prjónaði heila lopapeysu meðan ég beið eftir henni í tvær vikur og gerði örugglega margt fleira. Man bara að ég var alltaf að og gat alls ekki sest niður nema vera með eitthvað í höndunum. (hef stundum óskað þess að geta tekið svona hormónatöflu tja, svona einu sinni í viku eða svo). Daman kom svo í heiminn eftir að hafa fengið smá spark. Var ekki par ánægð og hvessti augunum á pabba sinn. Leit eftir það á tilveruna með mjög stóiskri ró og grét ekki einu sinni fyrr en einhverntímann eftir jól. Hún átti svo seinna eftir að reyna á þolmörk foreldra sinna þegar hún prófaði hvað hún kæmist langt. Þangað til hún fann út hvaða leið virkar best og síðan fær hún sínu framgengt, hávaðalaust...

Hrútaber

Uppstytta í dag og við IH notuðum tækifærið og hjóluðum í berjamó. Hann varð frekar endasleppur því bæði fór að rigna og svo hringdi útilegumaðurinn og vildi fara að komast heim. Hann var í síðustu ferðinni í dag. Frekar fáir farþegar á Egilsstaði, fleiri til baka. Hann lokaði sig inni í herbergi og skreið undir sæng strax og við komum heim, búinn að vera hálf slappur í allan dag. Ég vona að það lagist fyrir helgi því hann ætlar að heimsækja bróður sinn í sveitina og fara í réttir. En hrútaberin eru fallega rauð. Ég þarf að fara aftur og tína meira.

RIGNING

Ég held að ég sé komin með skammdegisþunglyndi af allri þessari rigningu. Kannski í og með vonbrigði með það að hafa ekki druslast í berjamó í uppstyttunni í gær (var í vinnunni fram undir kvöldmat í staðinn) og það hefur rignt eins og hellt væri úr fötu allan seinnipartinn í dag. Það hefði verið svo ágætt að eiga nokkur bláber ofan á pavlovuna sem afmælisbarn morgundagsins pantaði. Heimasætan verður 12 ára á morgun og óskaði eftir fjölskyldukaffi annaðkvöld, bauð afa sínum og ömmum og frænkum og frændum. Ég ætla að draga fyrir eldhúsgluggana, kveikja fyrst á kerti, svo á bakarofninum og síðan á hrærivélinni og vona að ég komist í betra skap. Arg.....

bláber og rjómi

Ég held að það megi kalla yngsta fjölskyldumeðliminn lífsnautnamann með réttu. Það þýðir ekkert að bjóða upp á kornfleks eða súrmjólk í morgunmat. Nei, bláber og rjómi skal það vera og barnaefnið með. Á laugardagsmorgni þegar hitastigið úti er 5 gráður og búið að hækka í öllum ofnum í húsinu er voða gott að kúra undir teppi og borða bláber með rjóma meðan horft er á "Póstinn Pál". Þá er allt í lagi að fara í kringum regluna: aldrei borða fyrir framan sjónvarpið. (Við erum ekki með tæki í eldhúsinu!) Þvottavélin er komin heim, blessunin, öll miklu hressari og frískari en áður. Ég sem var farin að skoða auglýsingar frá heimilistækjaverslunum og strauk nokkrum spegilgljáandi nýjum þvottavélum í Byko í vikunni, þegar ég átti leið þar um. En fegin er ég að þurfa ekki að læra á nýja þvottavél. Mér þykir nefnilega ósköp vænt um gömlu mína og vona að hún endist sem lengst. Þetta er sænskur gæðagripur, topphlaðinn, keyptur í raftækjaverslun á Akureyri sem er löngu farin á hausin.

Það alversta

Það alversta gerðist í fyrradag. Þvottavélin bilaði. Akkúrat þegar ég hafði ekkert þvegið í sólarhring og óhreinatauið farið að flæða úr körfunni. Alltaf er ég jafn hissa á öllum þessum þvotti sem fylgir fjölskyldunni. En það er ekkert skrítið. Sex manns og allt að verða hálffullorðið. Endalaus handklæði og stuttermabolir... og, og... Hún fór í viðgerð í dag blessunin og vonandi kemur hún fljótt aftur. Að vísu er vélin komin nokkuð til ára sinna og ekki að vita hvort hún hefur ekki bara gefist endanlega upp.

Nú blánar yfir berjamó

Fór með pabba í berjamó í fyrradag og tók þá þessa mynd. Svona eru berin hér þetta haustið. En því miður engin krækiber.

Laugafell

Tvíburarnir óskuðu eftir Laugafellsferð í afmælisgjöf þannig að frídagar voru samræmdir og við fórum fram á fjöll í gær. Það leit ekkert sérstaklega út með veður þegar við komum fram á dal en það rættist úr því eins og sjá má á myndunum. Glampandi sólskin og hlýtt.Ég gat ekki valið eina mynd þannig að það eru bara margar. Við byrjuðum að sjálfsögðu á því að fá okkur gott bað í hreinni lauginni og dormuðum þar lengi í sólskininu og teyguðum í okkur orkuna frá Hofsjökli. Drukkum svo kaffi í Hjörvarsskála (ekki húsið á myndinni), röltum um nágrennið og fórum svo heim á leið endurnærð á sál og líkama. Pabbi og mamma komu með okkur og við enduðum góðan dag á því að borða saman grillaðan kjúlla, a la JÓH, með ofnbökuðum nýjum kartöflum, a la moi, salat úr garðinum og bláber og rjómi í eftirrétt. Gerist það betra?

what famous leader ....

What Famous Leader Are You? personality tests by similarminds.com Ég hef kannski ekki skilið allar spurningarnar rétt... Ég get ekki alveg tengt mig við þessa niðurstöðu. Hmm.... (ég prufaði svo að fækka spurningunum og fékk bara skelfilegri niðurstöðu)

Rigning

Ég er alveg búin að fá nóg af rigningu! Rigningarskýin hanga þunglyndisleg rétt yfir húsþökunum og gusa úr sér annað slagið. Það er haust í loftinu, en við höfum ekkert komist í berjamó. Kannski rignir berin niður í bókstaflegri merkingu áður en af því verður. Þvotturinn fer beint í þurrkarann og þvottavélin hefur ekki við að þvo drullugalla af leikskólabarninu. Fjósamaðurinn skrapp í bæinn í gærkvöldi til að spila smástund á fínasta veitingahúsi Akureyrar. Mamma straujaði sparifötin og fann axlaböndin sem ekki hafa verið brúkuð síðan í vor. (Þeir voru í einhverskonar "seventees" búningum á Handverkinu). Þeir fengu svo að velja hvort þeir fengju borgað í peningum eða kvöldverði og völdu að sjálfsögðu hið síðarnefnda. "En frábært" sagði mamma og drengurinn leit á hana og sagði svo hægt og rólega að foreldrum væri ekki boðið með... Hann er að verða fullorðinn litli drengurinn minn..... Á morgun eru nefnilega 16 ár síðan þeir fæddust glókollarnir. Það sem tíminn er flj...

föndur og fikt

Meðan heimasætan stundar fornleifauppgröft í herbergjum bræðra sinna dunda ég mér í tölvunni. Ég er búin að vera að velta fyrir mér hvernig á að setja inn krækjur, eða hvað sem það er nú kallað, var líka að spá í nýtt útlit og svo framvegis. Ég er bara svo óþolinmóð að ég nenni aldrei að lesa almennilega leiðbeiningarnar, ýti bara á eitthvað. Allt í einu var ég búin að henda út teljaranum öllum kommentunum (haloscan líka) og veðurpíunni líka. Hm....

Tiltekt

Heimasætan missti stjórn á sér í dag og hefur farið um húsið eins og hvítur stormsveipur. Hún er sönn meyja sem vill hafa allt í röð og reglu. Þegar hún var búin að raða í forstofunni, baðherberginu og herbergi litla bróður síns, tók hún til við að taka til hjá fjósamanninum og er langt komin. Ég veit ekki hvað hann kemur til með að segja þegar hann kemur heim (verður örugglega bara feginn). Ég held að tvíburabróðir hans sé með einhverskonar tiltektarfælni því hann verður alltaf bæði mállaus og heyrnarlaus þegar minnst er á að herbergið hans sé ekki alveg... Það verður að segjast að aðkoman þar er ólýsanleg. Ég veit ekki hvort heimasætan ætlar að taka til þar líka. Ég hugsa að ég verði að borga henni fyrir atorkuna en um það var ekkert samið í upphafi. Hún er frábær!

Kjötsúpan mín

Súpukjöt er sérkennilegt fyrirbæri. Þar sem ég kaupi aðallega í matinn í lágvöruverðsverslunum! sé ég súpukjöt niðursagað frosið í á tilboðum. Í gær greip ég einn poka úr frystikistunni og skellti í pott. Venjufremur góðir og fitulitlir bitar nema neðst í pokanum voru nokkrir litlir þunnir beinabitar sem við nánari athugun reyndust vera þykkur hálsbiti sem hafði verið sagaður niður (var sá á kjötsöginni að breyta til??). En banakringlan fylgdi með og það finnst mér frekar ósmekklegt og lítið ætilegt þar. En súpuna sauð ég og skellti í hana því girnilegasta úr garðinum. Þetta þykir mér eitt það besta sem ég fæ en því miður eru ekki allir í fjölskyldunni spenntir fyrir grænmetissúpum af þessu tagi. Jóhann Gylfi borðar hana þó með bestu lyst en hin börnin halda sig við soðið kjöt! JÓH kom seint heim í gærkvöldi og fékk sér smá súpu. Hann vaknaði svo með ælupest í morgun og þó ég geti alls ekki samþykkt að það hafi nokkuð með súpuna að gera, langar manninn minn ekki í meiri kjötsúpu. Þann...

rigning

Ég hjólaði heim úr vinnunni áðan í hellirigningu, varð blaut á rassinum og lærunum, ekki höfðinu (var með hjálm (reyni alltaf að vera börnunum góð fyrirmynd)). En það er eitthvað yfir fimmtán stiga hiti þannig að ekki varð mér kalt. Já, það er rétt, mætti í vinnuna klukkan átta í morgun. Það er að vísu ekki mæting fyrr en á föstudag á námskeið en mér finnst gott að koma aðeins fyrr og hugsa... Ég hljóp út frá ruslinu í stofunni minni í júní og eftir morguninn hefur ástandið versnað ef eitthvað er. En ég fékk nokkrar hugmyndir og er langt komin með að endurskoða skipulagið fyrir textílmenntina í vetur. Kisa var líka úti í rigningunni og bað um handklæði þegar hún kom inn (í alvöru) þannig að ég þurrkaði henni hátt og lágt.

fiskidagurinn mikli

Við heimsóttum Dalvík í dag eins og tugþúsundir annarra Íslendinga og þar rakst ég á plakatið á myndinni hér fyrir neðan. Við smökkuðum á fiski og hlustuðum og horfðum á tónlistarflutning (á milli þess sem auglýst var eftir týndum foreldrum og börnum). Og hittum ótalmargt fólk sem við þekktum og misstum af enn fleiri. JÓH fór með bræðrum sínumí gærkvöldi á súpurölt um Dalvíkina. Þeir fóru heldur seint af stað þannig að litla fengu þeir súpuna en ýmislegt annað víst... Merkilegt hvað það er alltaf gott veður á fiskidaginn mikla, það er varla einleikið...

Rækjur

Þetta vissi ég nú ekki, he, he...

í amstri föstudags

Í amstri dagsins eru morgnarnir orðnir besti tími dagsins við tölvuna. JG er byrjaður aftur á leikskólanum og vaknar með bros á vör klukkan hálf átta á morgnanna. Þá er bara að drífa sig á fætur skokka með hann úteftir og fá sér svo góðan morgunverð. Svefnpurkurnar eru ekki farnar að róta sér ennþá en það eru tvö börn heima í dag því fjósamaðurinn er í fríi þessa vikuna. Kom heim undir því yfirskini að hann þyrfti að æfa sig. Hattlausu herramennirnir eru að spila á Handverkshátíðinni um helgina. Mér hefur sýnst hann noti tímann aðallega til að sofa... Ég fæ þá tíma fyrir mig í rólegheitunum, kveiki á rás 1 og hef lágt stillt. Við vorum netsambandslaus í á annan sólarhring þangað til í gær en það bilaði eitthvað í þrumuveðrinu í fyrradag. Mér fannst það svo óþægilegt að það er áhyggjuefni. Ætla að setja mér markmið. Vera ekki svona mikið á netinu...

Þriðjudagsmorgun

Fór á fætur klukkan hálf átta og þá sat fjósamaðurinn frami í eldhúsi að borða morgunmat. Hann er kominn heim í frí en er orðinn svo vanur því að fara snemma á fætur að hann vaknaði fyrir allar aldir. Bróðir hans er líka í fríi í dag þannig að fjölskyldan var öll heima í nótt í fyrsta skipti í margar vikur. JG byrjaði svo á leikskólanum í morgun eftir sumarfrí. Stóra systir hans útskýrði það fyrir honum í gærkvöldi, frekar illkvitnisleg, verð ég að segja, að hann væri sá eini í fjölskyldunni sem væri að byrja í skólanum. Það væru allir aðrir í fríi ennþá. En hann lét það ekkert á sig fá og fór af stað glaður og ánægður. Ég ætla að fara í bæinn á eftir með tvíburana. Þeir þurfa í banka og ég líka því heimabankinn var með einhverja uppsteyt í morgun. Ég trúi því nú tæplega að það hafi einhver tekið sig til og borgað símreikningana okkar. Svo ætla ég að draga drengina á útsölur og vita hvort þeir fást ekki til að kaupa á sig einhver föt á afslætti. Ef að þeir tíma því.

Eftir helgina

Eftir útilegur taka alltaf við nokkrir dagar sem fara í það að þvo þvott og ganga frá dótinu. Við höfum nú verið meira og minna í "útilegu" í sumar þannig að töskur og matarkistur eru hættar að fara inn í skáp á milli ferða. Í dag er þvottadagur á heimilinu. JÓH fór úteftir í morgun en JG ætlar að njóta síðasta dagsins í sumarfríinu heima og fara kannski í hjólatúr til afa og ömmu. Hann byrjar á leikskólanum á morgun og hlakkar til. Fyrir utan útilegumanninn okkar sem var á Stuðmannatónleikum í R-vík á laugardagskvöldið mættum við fjölskyldan öll í afmæli stórbóndans á Hofsá. Þegar Jóhann Gylfi vissi að hann myndi fá að koma í afmælisveisluna ákvað hann að hann ætlaði að gefa Trausta afmælisgjöf. Við fórum í leiðangur á föstudaginn og keyptum þessa fínu dráttarvél með ámoksturstækjum (en það var algjört skilyrði) og létum svo pakka henni fínt inn í blómabúð. Hann var frekar montinn þegar hann fékk afhenda pakkann með viðhöfn í veislunni. Það er auðvitað skemmst frá því að seg...

Meira af rauðri málningu

Þessa mynd tók Stefán af JÓH uppi á þaki. Það þarf varla að taka fram að ég var heima þessa tvo daga sem það tók að mála þakið. Nú er það orðið rósrautt (sem er víst líka kallað sveitarautt, og á því vel við). Bráðum set ég hérna inn myndir af húsunum, en það verður ekki alveg strax. Þau eru (sérstaklega annað) frekar óhrjáleg að utan þessa dagana en það stendur til bóta. Það er að koma helgi. Lífið er gott og við höldum af stað staðráðin í því að horfa á björtu hliðarnar og hugsa jákvætt því það er svo miklu léttara.

Umferðarmenningin og fleira

Mjög svo efnileg yfirskrift hér. Ég var búin að skrifa langan pistil um umferðarmenninguna hér í Eyjafjarðarsýslunni og áhyggjur vegna ofsaaksturs í Öxnadal. Svo ýtti ég á publish post og allt heila klabbið hverfur nema nafnið. Best ég nefni líka ábyrgð umferðarlögreglunnar sem góðu heilli hefur verið mjög sýnileg síðustu vikurnar a.m.k. á Ólafsfjarðarvegi þar sem ég keyri annan hvern dag. Jæja, ég er á leiðinni út á þjóðveginn seinnipartinn og mæti líklega þeim sem lögðu af stað úr höfuðborginni um hádegið. Ég hef einu sinni farið leiðina Reykjavík - Akureyri á föstudegi fyrir verslunarmannahelgi (lögðum af stað um 6 leytið) og það var lífsreynsla. Þetta var þegar Halló Akureyri var upp á sitt "besta" og bílalestin var óslitin nánast alla leið. Það gerði þetta ferðalag óraunverulegra en ella að við vorum að koma af jarðaför ungs manns sem farist hafði í umferðarslysi og hugarástand okkar ferðafélaganna eftir því.

Sólarsamba

Þá getum við Norðlendingar tekið gleði okkar á ný. Sólin er farin að skína og norðangarrinn lætur undan síga. Það er miðvikudagur og verslunarmannahelgin nálgast nú óðfluga. Maður opnar ekki svo útvarp að ekki sé verið að tala um veðurspána og/eða ferðalög og útihátíðir. Það er nú í lagi í dag en þessi umræða byrjaði fyrir hálfum mánuði og er að verða svolítið þreytt, sérstaklega veðurspáin en hún er aldrei óáreiðanlegri en einmitt þessa helgi þegar slæm veðurspá getur hreinlega slegið af heilu hátíðirnar. Við fjölskyldan förum alltaf í útilegu um verslunarmannahelgina og höfum ekkert verið að flækja málin neitt sérstaklega. Förum bara alltaf á sama stað og höfum gert svo lengi sem börnin okkar muna, ekki skemmir fyrir nú um stundir að við förum að sjá fram á að þurfa ekki að vera mikið oftar í tjaldi í þessari útilegu. Þessi útihátíð er nefnilega haldin í næsta skógarreit við bústaðina okkar á hólnum í dalnum "kæra" Svarfaðardal. (þetta síðasta var nú frekar væmið, en ég er ...

rauð málning

Við vorum meira og minna í sveitinni alla helgina, en núna er komið að þvotta- og þrifadeginum hér á þessu heimili. Við JÓH vorum að mála í gær og ég þurfti að taka á honum stóra mínum og klifra upp í stiga til að mála þakskegg. Lofthrædd manneskjan. JÓH fékk að fara upp á þak. Ekki vildi betur til en svo að í eitt skiftið sem hann var að prika upp á þakið skrikaði honum fótur og var það lukkan ein sem réði því að hann hrapaði ekki niður á pallinn. Hann var með fulla málningarfötu í hendinni sem megnið helltist úr í hamaganginum þegar hann var að reyna að fóta sig. Málningin rann niður þakið og rigndi á mig sem var að bauka með pensilin fyrir neðan hann. Þannig að ég varð skyndilega með rósrauðar strípur í hárinu og doppótt í framan! En það var nú skárra heldur en að fá manninn í hausinn. Er nokkuð undarlegt þó mig sundli við það eitt að sjá einhvern uppi á þaki. Þetta var bara litla húsið sem er næstum með flötu þaki en næst á dagskránni er að mála þakið á stóra, sem er með háu risi!...

Harry Potter

You scored as Remus Lupin . You are a wise and caring wizard and a good, loyal friend to boot. However sometimes in an effort to be liked by others you can let things slide by, which ordinarily you would protest about. Remus Lupin 75% Albus Dumbledore 65% Draco Malfoy 65% Hermione Granger 65% Ron Weasley 65% Severus Snape 65% Sirius Black 60% Harry Potter 55% Ginny Weasley 50% Lord Voldemort 35% Your Harry Potter Alter Ego Is...? created with QuizFarm.com Ég stóðst ekki þessa... Ég á eftir að lesa bókina. Unglingarnir voru ekki í aðstöðu til að kaupa hana á laugardaginn og hún hefur verið uppseld síðan. A.m.k. hér á Akureyri.

Snúðabakstur JG

"Mamma þarf aðstoð við baksturinn. Þegar hún skrapp í símann tók ég hnífinn og skar alla snúðana, eru þeir ekki flottir!" Það stenst enginn svona sjarmatröll. Þegar búið er að klippa köttinn, sulla skyri út um allt eldhús, fara út með bíllyklana og reyna að... og mamma búin að verða reið, sorgmædd og skilningsrík (ekki endilega allt í einu eða í þessarri röð). Þá er þessi setning síðasta hálmstráið: "Ég er góður núna mamma".

taska

Í vor prjónaði ég heljarmikinn sekk sem átti að verða einhverskonar sundtaska. Eftir þæfingu í þvottavélinni varð til eitthvað sem líktist öllu öðru en tösku. Þetta hrúgald er búið að þvælast fyrir mér hérna í sumar án þess að ég vissi almennilega hvað ég ætti að gera við það. Í rigningunni gær fékk ég svo andann yfir mig, tók fram skæri og nál og þetta er útkoman, þessi fína hliðartaska. Ég er bara frekar ánægð með sköpunargleðina. Þetta á ég til þó að það sé stundum dálítið djúpt á því.

Ég sjálf

Maddaman sjálf með nýju sólgleraugun! Á sólpallinum með Bakkadalinn í baksýn, en þangað er planið að ganga einhverntímann í náinni framtíð. Þessi mynd er tekin á fimmtudaginn en þá vorum við með gott nesti í hádegismatinn eða saltfisksalat sem var hitað upp á prímusnum (eldavélin er ekki komin í samband, en það er sko rafmagn). Veðrið var því miður ekki svona gott í dag þegar ég brunaði úteftir með vinnumanninn úr helgarfríinu en þá ultu þokubakkarnir á móti okkur á Hámundarstaðarhálsinum og smiðirnir (JÓH og Stefán) orðnir hálf bláir í hráslaganum. Svona er lífið á hólnum. :)

Sunnudagsmorgun

Blogger er eitthvað svo hæggengur svona í morgunsárið að myndirnar verða að bíða betri tíma. Við smáfjölskyldan fórum í sælureitinn okkar í fyrradag með tjaldkerruna í eftirdragi og áttum eina ágæta nótt bakvið hús á hólnum. Það er heilmikið að gerast núna hjá okkur. Í gær vorum við að hreinsa utanaf stóra húsinu og henda gamalli einangrun, sagi og reiðingi. Það er líka komið nýtt hurðargat á húsið og hurð en Stebbi skellti henni í í gær. Og núna fer að sjást hvar nýju gluggarnir verða settir. Sem gerist á næstu dögum. Ég er með hálfgerða strengi í höndunum, enda mörg ár síðan ég hef haldið svona lengi á hamri eins og í gær. Við JG enduðum á því að fara í sund á Dalvík og sá stutti steinsofnaði á leiðinni heim. Það tókst ekki almennilega að hátta hann þegar heim var komið þannig að hann var enn hálfklæddur þegar hann vaknaði í morgun. "Afhverju er ég í bol og peysu í rúminu?" Ég ætla að byrja daginn á því að fara í morgunkaffi til pabba og mömmu og reyna svo að vekja unglinga...

Morgunstund...

Ég stend sjálfa mig að því þessa dagana að í staðin fyrir að drífa mig á fætur þegar ég vakna, sný ég mér á hina hliðina og lúri aðeins lengur áfram. Jafnvel fram undir hálf ellefu á virkum degi sem er alveg ómögulegt (þó maður sé í sumarfríi). Það er næði til þess þessa dagana. JÓH fer snemma í vinnuna með útilegumanninn á rútuna. Og þá erum við bara tvö heima ég og JG og hann skríður bara undir sæng hjá mömmu og sefur áfram. Ég er aðeins duglegri núna í morgun. Búin að fara út á snúrur og faðma hreina þvottinn minn. Út í garð og kíkja á jarðaberjaplönturnar og út á pall að tína saman það sem fauk í nótt. Sá stutti sefur enn og það er best að fara að vekja hann. Ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að fá mér langan göngutúr og prófa nýju skóna. Eða fara og þrífa bílinn. Það er auðvelt að geta sér þess til hvort mér finnst skemmtilegra. Rás 1 er útvarpstöðin mín þessa dagana og í gær heyrði ég í Sverri Páli mínum gamla kennara. Þar sem hann flutti pistil um íslenskt tungutak í ...

Heimasætan

Heimasætan lagði land undir fót seinnipartinn og er farin af stað í Borgarnes þar sem hún ætlar að dvelja fram að næstu helgi. Þær urðu samferða frænkurnar, hún og Ástdís, með rútunni. Hún hefur verið frekar þungt haldin af ferðakvíða undanfarið en ég held að það hafi nú allt saman verið yfirstaðið þegar þær lögðu af stað. Ég skil þetta alveg með kvíðan enda hefur hún það beint frá mér. Það er nokkuð sem verður bara að takast á við og yfirvinna. Það fækkar því heldur í kotinu. Útilegumaðurinn okkar kom að vísu heim í dag og verður heima í nótt en fer svo aftur suður á morgun. Og þá erum við bara þrjú eftir, við hjónakornin og JG. En það stendur nú ekki til að senda hann neitt. Þó hann væri örugglega alveg til í að vera bara í sveitinni. Þeir fóru feðgarnir úteftir bæði í dag og gær. JG var bara skilinn eftir á hlaðinu á Hofsá, upp í dráttarvél og út að slá.

Ég get hjólað

JG á tvö hjól, lítið með hjálpar- dekkjum og svo þetta sem sést hér til hliðar sem Haukur Gylfi frændi hans gaf honum í vor. Litla hjólið bilaði á dögunum og í morgun gat sá stutti ekki lengur beðið eftir því að pabbi lagaði það og hringdi í afa sinn. Afi lagaði hjólið og kippti um leið hjálpardekkjunum undan, við frekar litla hrifningu JG sem hefur verið fádæma kjarklaus þegar reynt hefur verið að ýta honum af stað á hjóli hingað til. Við fórum svo heim við svo búið en seinnipartinn fór strákur út en kom inn skömmu síðar og kallaði á mömmu að koma út að sjá. "Nú kann ég að hjóla". Hann prófaði nefnilega að fara eina bunu á litla hjólinu og uppgötvaði um leið að það er orðið alltof lítið fyrir svona stóran strák, tók þá hitt til handargagns og þetta er sko ekkert mál!

Skreppitúr austur á land

Í kvöldkyrrðinni varð náttúran eins og málverk. Fljótið kyrrt og þögult, grasið döggvott og hestarnir hreyfðu sig ekki þegar við komum brunandi á bílnum með tilheyrandi vélarhljóðum og hurðarskellum. Myndin er tekin á seinni tímanum í tólf í gærkvöldi. Útsýnið er yfir Lagarfljót, húsið til vinstri er ævagamalt bátahús og bakvið ljósmyndarann, rómantískasti gististaður sem við höfum kynnst. Gistihúsið Egilsstöðum nánar tiltekið. Þar dvöldum hjónakornin í nótt. JÓH þurfti að skreppa stutta vinnuferð austur og vegna þess að hægt var að fá herbergi, með stuttum fyrirvara uppi í risi fljótsmeginn, slóst ég í för. Enda búin að vera að bíða lengi eftir tækifæri til að gista þar aftur. Við brunuðum austur í gær, fórum af stað rétt fyrir hádegi og stoppuðum í Gamla bænum í Reykjahlíð og fengum okkur kjötsúpu. Á þessum árstíma heyrirðu flest önnur tungumál en íslensku talaða þar og núna var starfsfólkið líka frá hinum ýmsu þjóðlöndum. En súpan var góð. Egilsstaðir orka þannig á mig að mér fin...

Dalalíf 3

Nú er ég búin að vera í Hrútadalnum í nokkrar vikur, með hléum þó. En persónurnar eru farnar að sækja að mér í svefni og vöku. Þóra er mitt uppáhald, þó ég sé ekki alltaf sammála henni. Ég er þó núna farin að kynnast betur aukapersónum sem ber ekki eins mikið á. "Svo kom allt í einu saga, sem þótti æði munntöm. Hún byrjaði gang sinn á Ásólfsstöðum, fremsta bænum í dalnum að vestanverðu... Og sagan læddist út dalinn eins og þoka. Hún smaug inn í búrið eða eldhúsið og þaðan til baðstofunnar. Hún kitlaði fólkið í eyrun og gerði það forvitið... Sagan var sú, að henni var engin athugli veitt lengur. Hún tiplaði því af stað ofan í kaupstað. Þar gekk hún á milli húsanna og var jafn velkomin inn í stofuna hjá kaupmanninum eins og í torfkofann hjá fátæklingunum. Hún brá sér meira að segja til sjómannanna, og þeir höfðu hana með sér á sjóinn sér til skemmtunar. Svo lagði hún af stað fram dalinn að austanverðu og var orðin sæmilega sárfætt þegar hún kom fram að Hvammi. En þar fékk hún slæmar...

Afi og amma best

Pabbi og mamma komu í morgunkaffi í morgun og þegar þau brunuðu í burtu um hádegið var lítill laumufarþegi í aftursætinu. Pabbi hringdi svo og lét vita af því að stubbur væri í ömmu og afahúsi. Þar finnst honum best að vera. Hann fær að hjálpa afa að slá og raka og brasa í viðgerðum, verða skítugur og fá ís hjá ömmu og jafnvel mola hjá langömmu ef afi skreppur í kaffi.

í sparifötunum

Hér kemur ein af okkur hjónakornunum. Tekin á 16. júní síðastliðinn. Sæt og fín á leiðinni í Höllina. Ég er að prófa nýja leið við að setja myndir á bloggið. Og þetta virðist ganga alveg upp.

föstudagur

"Hvenær kemur sólin" sagði JG í morgun. Við getum nú samt ekki kvartað yfir veðrinu. Það rigndi svo í fyrrinótt að það buldi á þakinu. Ég bjó mig út í regnslá og gúmmístígvél og fór í gönguferð með JG og Blíðu í rigningunni í gær. Við löbbuðum upp í skóg og teyguðum að okkur ilminn af gróðrinum. Kisa varð úrillari eftir því sem hún varð blautari, en hún gat sjálfri sér um kennt að vera að elta okkur þetta. En það er stytt upp og sólin á eftir að brjótast fram úr skýjunum í dag spái ég. Ég dreif mig í húsverkin í morgun þegar ég vaknaði og skrúbbaði klósettið sem er það leiðinlegasta sem ég geri. Gott þegar það er frá.

Fuglaveiðar

Skark og læti utan við svefnherbergisgluggann vakti okkur í morgun. Hrossagaukur gaggaði svo í nágrenninu og varaði við yfirvofandi vá. Einhver hlustaði ekki og veiði morgunsins liggur hérna úti. En pjattrófan okkar virðist ekki hafa lyst á fjöðrum. Þarna var líklega Blíða að verki, því það gleymdist að loka glugganum í þvottahúsinu í gærkvöldi! Hann Fúsintes heitinn, bröndótti kisinn hennar mömmu át það sem hann veiddi, jafnt ferfætlingana sem þá fiðruðu. Tvíburarnir gerðu rannsóknir á þessu og komust að því að hann gleypti fuglinn og hrækti svo út úr sér fjöðrunum, en mýsnar borðaði hann frá haus og afturúr en sleppti skottinu. (Þeir voru 5-6 ára þegar þessar rannsóknir fóru fram og virðist ekki hafa orðið meint af þessum "blóðugu" upplifunum.)

Sumarnætur

Nú er sumarnótt og fjörðurinn er feiminn svo að fagurrauðum log slær um heiminn. Er það satt að sólin gefi gaum er hún gengur yfir hafið dreymin? Litverp skýin uppí lofti varla ná sér og þau langar til að segja: Ertu frá þér! Jafnvel fjöllin roðna og fara hjá sér; allir firðir eiga svona draum. Næturþögnin tregablandin tárast titrar dögg um stund á birkigrein. Eirðarleysið sólinni er sárast, sína leið hún gengur burtu ein. Og í stundarkvöl sig felur bak við fjöllin faðmar hana að sér gullin skýjahöllin þar til morgungeislar verma völlinn, vekja fjörðinn upp með lífsins glaum. Síðla dags hann gefur henni gætur, glæðist aftur roði sumarnætur; henni er ekki eins leitt og hún lætur læðist nær og vekur nýjan draum. Við vorum á leiðinni heim úr afmæli á seinni tímanum í miðnætti í gærkvöldi þegar fjörðurinn var nákvæmlega eins og lýst er í þessu ljóði Emilíu Baldursdóttur. Þá langar mig mest af öllu að vaka alla nóttina, hlusta á fuglana og ána og finna ilminn af sumrinu. Þetta gerist ekki ö...

Fjörugróður

Blóm

Blágresi og sóleyja í fossúðanum við Seljalandsfoss

Heima er best

Kisugreyið okkar er búin að vera ein heima í heila viku, innilokuð (við töldum það áhættuminnst). Hún varð heldur glöð þegar við duttum inn úr dyrunum í gærkvöldi og er búin að mjálma yfir fjölskyldumeðlimum í kvörtunartón síðan. Eftir að hafa slegið lóðina strax við heimkomu héldu nafnarnir út í Svarfaðardal í morgun. JG tilkynnti það þegar hann vaknaði að þangað ætlaði hann í dag!! Ég fór afturámóti út í garð og reyndi aðeins að klóra í umhirðuleysi síðustu vikna. Komst að því m.a. að það kom ekki upp svo mikið sem ein gulrót af öllu því sem ég sáði! Skil bara ekkert af hverju. En það er nú ýmislegt annað ætilegt sem sprettur bara vel. Þannig að ég læt nú ekkert hugfallast. Svo brunuðum við IH í bæinn að versla og ná í útilegumanninn sem var að koma frá R-vík í dag og langaði alveg óskaplega mikið heim. Hann hefur ekkert komið frameftir alla vikuna. Gisti bara hjá Dísu í bænum. Enda er hann búinn að loka sig inni í herbergi hjá tölvunni og ég býst ekki við að sjá hann fyrr en í fyrr...

jubilantar

Við hjónakornin erum að halda upp á tuttugu ára (segi og skrifa) stúdentsafmæli þessa dagana. Ég verð víst að viðurkenna að úthaldið hjá mér hefur minnkað með árunum, hvort sem það er aldurinn eða eitthvað annað. Lokahófið er í kvöld þegar við mætum í höllina í samkvæmisklæðnaði og skemmtum okkur með öðrum jubilöntum (ég veit nú ekki alveg hvort þetta latneska orð er rétt stafsett hjá mér), eða eitthvað um sjöhundruð manns. Það er búið að vera fj. skemmtilegt síðustu tvo daga en ég verð að viðurkenna að ég er svolítið slæpt í dag. Við fórum í stutta skoðunarferð um okkar gamla skóla í gær. Sverrir Páll leiddi okkur um nýbyggingarnar og útskýrði ýmsar breytingar. Nú ber svo við að ýmislegt dót sem notað var þegar við vorum við skólann er komið upp á háaloft og er þar til sýnis. Sýnishorn af gömlum tölvum og básar úr málastofunni (sælla minninga) svo dæmi séu tekin. Við JÓH notuðum tækifærið fyrst við vorum á staðnum á virkum degi og gengum úr skugga um hvort umsóknir sona okkar væru ekk...

Blómstrandi runnar

Garðurinn hefur oft litið betur út í byrjun sumars, en það er eitthvað aðeins að lifna yfir honum. Ég sneiddi alveg hjá því að mynda koparreyninn sem er þarna við hliðina en blöðin á honum sölnuðu í kuldanum um daginn. Ég er að senda þessar myndir í gegnum Hello og það þýðir ekkert að senda texta með það koma bara kassar fyrir broddstafina og þ & ð. Þetta er ekki alveg nógu sniðugt.

Meira sólskin

Ég verð alltaf hálf dösuð eftir að hafa verið lengi úti í sólinni. Það er nefnilega sól og blíða fyrir norðan í dag. Bara alvöru sumar með logni fyrir hádegi og hafgolu seinnipartinn. Steikjandi hiti á pallinum í Brekkutröðinni. Ég dró Þorgerði mágkonu með mér í kvennahlaupið hér á Hrafnagili og tókum við dætur okkar með. Þær hlupu auðvitað eitthvað á undan okkur nema þessi minnsta sem var bara í vagninum sínum. Svo voru grillaðar pylsur á eftir og boðið upp á ýmsar mælingar sem ég sleppti í þetta sinn. Við fórum bara í Vín með mömmu og fengum okkur ís í tilefni dagsins. Þannig að ég er eiginlega alveg búin að vera í augnablikinu. Ég hef samt grun um að slen undanfarinna daga megi rekja til þess að ég er að taka inn rándýrar töflur úr grænu tei sem eiga að vera svona ansi hollar. Hm.

Sólskinsdagar

Hérna fyrir neðan skrifaði ég uppáhaldssetninguna úr Dalalífi eftir Guðrúnu frá Lundi. Ég er byrjuð á sumarlesningunni, búin að blaða í gegnum bindin fimm og er loks byrjuð aftur á fyrsta bindinu. Til að lesa almennilega. Skyldulesning a.m.k. annað hvert ár en bara í sumarfríinu. Nokkrar blaðsíður á kvöldi og njóta allra skemmtilegu orðanna og setninganna. Í fyrsta kaflanum eru þessi orð: "Það var hagfræðin, sem þá réð hjónaböndunum. Ástin var lítið þekkt olnbogabarn, sem sjaldan þorði að láta sjá sig í birtunni".

Samræmd próf

Tvíburarnir fóru með mér niður í skóla í dag til að fá að vita hvernig þeir hefðu komið út úr prófunum. Þeir voru missáttir við útkomuna en geta verið alveg hæstánægðir sýnist mömmu gömlu. Nú geta þeir farið að ganga frá umsóknum í framhaldsskóla. Annar þeirra er búinn að ákveða að sækja um MA og sjá til hvort hann kemst inn. Hinn er ekki alveg ákveðinn ennþá. Ég heyrði áðan í útvarpinu að meðaleinkunnin væri lægst í samfélagsfræði og skil það vel því ég skoðaði prófið um daginn!!

Gómsætt

Gómsætt í sólinni. Ég keypti þennan fína blómabakka á tvöhundruðkall í Tiger á föstudaginn.

Sól og blíða

Sunnudagsmorgun í sveitinni.

kál, krydd og fleira

Ég fékk þessa frábæru skyndihugdettu í morgun þegar ég var búin að skutla Halldóri í tónlistarskólann. Kom við í BYKO og keypti mér einn lítinn ræktunarkassa. Svo hringdi ég í JÓH og tilkynnti honum að hann þyrfti að munda skrúfjárnið í kvöld. Ég fattaði svo áðan að það fylgdu víst engar skrúfur, það er nú kannski hægt að bjarga því en það vantar víst lamir líka þannig að betri helmingur minn verður að koma við í byggingarvöruverslun. Nú ætla ég að henda gamla jarðaberjareitnum og grisja jarðaberjaplönturnar. Það hefur ekki verið nein óskapar uppskera hjá mér undanfarið þannig að ég ætla að minnka svolítið umfangið í bili. Af því að ég var nú komin af stað í þessari hugmyndavinnu þá varð ég auðvitað að koma við í Kjarna og keypti þar slatta af bláum stjúpum. Sem eru að vísu ekki alveg í réttri sétteringu við húsið!!! Mér fannst þetta bara fallegasti liturinn. Þær eiga að fara í lítil beð sem eru kringum reynitrén mín tvö. Bætti svo við nokkrum kálplöntum og kryddjurtum. Ég ætla svo að...

Morgunstund gefur gull í mund

Ég var nú samt ekkert sérstaklega hress í morgun þegar síminn hringdi fyrir hálf átta. Allra síst vegna þess að við fórum nú ekki að sofa fyrr en að ganga fjögur í nótt. Hm... Meðan JÓH var í blaðamennskunni kom það oft fyrir að menn hringdu til að ræða málin, á öllum tímum sólarhringsins og í misjöfnu ástand. Þeim ágangi linnti nú að mestu þegar hann skifti um starfsvettvang. En sýnilega ekki alveg. Ég var búin að ákveða að sofa lengi frameftir í morgun, enda gott næði. Inga Hildur og Jóhann Gylfi bæði að heiman og tvíburarnir bæra nú ekkert á sér fyrr en eftir hádegi nema tilneyddir. Þeir eru að reyna að sofa út... áður en þeir byrja að vinna og þurfa að fara að vakna sjálfir. En fyrst ég er vöknuð á annað borð er best að drífa sig á fætur og fara út í sólina.

Uglan

Hún sveif framhjá bílnum þegar við vorum á leiðinni heim í dag. Með hægu vængjataki. Ekki stór búkur miðað við vænghaf og það er eins og það vanti á hana höfuðið. Skrítinn fugl, uglan meðal annarra íslenskra fuglategunda. Ég man aldrei eftir að hafa séð uglu þegar ég var barn nema snæugluna í Sædýrasafninu. En núna rekst maður á þær annað veifið hérna í firðinum. Þær sitja á girðingarstaurum og horfa á mann tortryggnar á svip um leið og þær breiða út vængina og líða á braut. Þær fljúga hljóðlaust.

Þeir eiga afmæli

Hér er mynd af afmælisbörnum dagsins og gærdagsins. Myndin er tekin um páskana og líklega eru þeir að horfa á ... fótbolta??? Ég knúsaði pabba í morgun í vinnunni og af því að mamma er að vinna er ég búin að bjóða honum í mat í kvöld. Það er eins gott að það verði eitthvað almennilegt að borða. :) Unglingarnir eru rétt ókomnir heim úr skólaferðalaginu. Við höfum hvorki heyrt hósta né stunu frá þeim alla vikuna og ég er farin að hlakka til að heyra ferðasöguna.

Snúrustaurar og straujárn

Feng sui fræðin segja manni ýmislegt um jafnvægi hlutanna. Ef að ég væri innvinkluð í þessi fræði væri ég örugglega flutt út því lausleg greining segir að eldhúsið sé á versta stað og hjónaherbergið líka! Svo er ég með stóran spegil á móti útidyrum (að vísu forstofuhurð á milli) sem er líka mjög slæmt fyrir feng suið í húsinu. Mér líður samt frekar vel í húsinu mínu, þó að það sé allt í drasli (óreiða er líka slæm fyrir feng suið), eins og núna og það eigi eftir að skrúfa nokkra gólflista. Og fjölskyldan er bara í þokkalegu jafnvægi, takk fyrir. Annars settist ég niður við tölvuna núna til að taka mér pásu frá þvottinum sem af einhverjum dularfullum ástæðum hrúgast upp. Loksins er hægt að þurrka úti á snúrum og þegar óhreinatauskarfan er að verða tóm er borðstofuborðið orðið fullt af hreinum þvotti. Sumir myndu segja að þetta væri spurning um skipulagningu og ganga frá þvottinum jafnóðum og hann er orðinn þurr. Mér finnst bara miklu skemmtilegra að hengja út þvott heldur en taka hann ...

"kalt er honum á tánum"

Þessi sumarnágranni minn var að leita sér að æti úti við snúrustaur áðan. Látið ekki blekkjast af græna litnum. Það var alhvít jörð í morgun og hefur verið éljagangur af og til í dag.

borgarísjaki

Það er hálf kuldalegt að litast um hér í Eyjafirðinum í dag. Þessi mynd er tekin úti á Árskógssandi á annan í hvítasunnu og líklega hefur ísjakinn breyst eitthvað á þeirri viku sem er liðin síðan. En það er ekkert sumarlegra og meiri snjór í fjöllum ef eitthvað er.

Júróvísíón

Sem sérlegur aðdáandi Júróvísíón má ég til með að tjá mig örlítið hér um keppnina í ár. Eins og aðrir sat ég spennt við sjónvarpið í gærkvöldi og horfði opinmynnt á íslenska lagið. Mér hefur nú fundist þetta lag frekar flott og Selma sérlega smart í videóinu í rauða síðpilsinu með bogann en .... Það er bara ekki nóg að vera smart í rauðu það skiptir pínulitlu máli hvernig efnið er klippt niður og saumað saman. Mér fannst hún vera eins og tíu ára stelpa á náttfötum en konan er bara komin hátt á þrítugsaldur og eins og Páll Óskar sagði einhversstaðar í dag þá er hún með flottar línur og á að sýna það. Heimasætunni varð bara að orði að þetta væri alveg eins og Abbabúningurinn sem hún og vinkona hennar skrýddust á síðustu skólaárshátíð! (hún er ellefu ára nb). Ég læt þetta nú ekki á mig fá og sest hamingjusöm fyrir framan sjónvarpið annaðkvöld, held bara með Noregi. Nemendur mínir voru sammála um að það væri flottasta lagið í undankeppninni. Við erum að spá í að elda pizzu. Það er alhvít j...

Blíða í Brekkutröð

Ég var að setja myndir af vélinni yfir í tölvuna og rakst þá á þessa sem IH hefur líklega smellt af kisunni okkar henni Blíðu. Ég vildi stundum að ég byggi yfir þeirri stóisku ró sem þessi köttur hefur.

hljóð úr horni

Ég er ekkert hætt að blogga. Ef að ég hef sest við tölvuna undanfarið hefur eitthvað truflað mig eða þá að mér hefur ekki dottið neitt gáfulegt í hug að skrifa. Þá eru unglingarnir á heimilinu að fara í fyrsta samræmda prófið á morgun. Ég hef verið að leika ábyrgt foreldri um helgina og farið yfir helstu málfræðiatriðin með þeim. Verð að viðurkenna að ég er farin að ryðga ansi mikið í setningafræðinni og germynd og þolnmynd, svo eitthvað sé nefnt. Mér sýnist þeir vera bara nokkuð vel staddir og vona bara að allt gangi vel. Þeir eru báðir komnir með sumarvinnu og verða meira og minna að heiman í sumar. Svo er bara að ákveða hvað á að taka sér fyrir hendur næsta vetur. Þeir eru ekki búnir að ákveða hvort VMA eða MA verður fyrir valinu. Kannski fara þeir bara í sitthvorn skólann, en það fer nú svolítið eftir hvernig þeir koma út úr prófunum. Við höfum ekki ætlast til annars en að þeir stæðu sig það vel að þeir gætu valið um skóla. Þó að við JÓH höfum bæði verið í MA og kynntumst þar meira...

meira af sinu

Ég er ekkert mikið fyrir að kvarta en ég er alvarlega að hugsa um að stofna samtök gegn sinubrunum. Brennuglaður sveitungi minn notaði norðan andvarann seinnipartinn til að kveikja í aftur og nú leggur mökkinn yfir hjá okkur. Fyrir utan að mann langar ekkert að fara út í góða veðrið í kvöld þá er ég með fullar snúrur af þvotti sem fara beinustu leið í vélina aftur!! Ég held að óþægindi þúsunda íbúa hérna á svæðinu hljóti að fara að vega hærra en hagsmunir einstaka bænda sem hafa talið sér trú um að það sé eitthvað gagn af því að brenna sinu. Því ekki ætla ég að menn geri þetta aðeins til að vera til leiðinda og valda ergelsi og pirringi í nágrenninu.

Grænt og gott

Ég var að koma heim af frábæru námskeiði hjá Sólveigu Eiríksdóttur "Sollu grænu". Þar sem við fengum fyrirlestur og svo elduðum við sjálfar allskonar rétti. Kvenfélagið mitt stóð fyrir þessu námskeiði og er það sannarlega gott framtak. Mér þykja grænmetisréttir ofsalega góðir en ef að ég ætti að verða grænmetisæta eingöngu yrði ég að búa ein. Ekki það að JÓH myndi ekki láta sig hafa það. Unglingarnir myndu líklega flytja að heiman "med det samme". Það hefur að vísu breyst mjög mikið mataræðið á heimilinu síðustu mánuði. Sem er bein afleiðing af átaksverkefnum okkar hjónanna. Árangurinn hefur heldur ekki látið á sér standa. Þetta námskeið kemur því alveg á réttum tíma fyrir mig. Unglingunum leist ekki meira en svo á afgangana sem ég kom með með mér og spurðu hvað yrði í matinn í kvöld. Ég kom smávegis af spírum og salati með heim. Ég gat nú frætt þá á því að það yrðu tvenns konar baunir!! Ég ætla nefnilega, aldrei þessu vant, að elda eftir uppskrift sem ég rakst á ...

Sunnudagskvöld

Helgarnar eru allt of fljótar að líða. Mánudagsmorgun framundan og tiltölulega annasöm vika framundan. M.a. forsetaheimsókn á miðvikudaginn, en það verður nú bara gaman. Ein af afleiðingum sítengingar er að maður dettur "inn" í tölvuna annað slagið og gleymir sér gersamlega í einhverju vafri. Fann til dæmis skemmtilegar uppskriftir af poncoum sem ég heklaði. Nú er ég að herða mig upp í að prjóna sjal sem ég fann uppskrift af á netinu. Að vísu á ensku og það fælir mig frá. Ég leita auðvitað að einhverju áhugaverðu fyrir mig og í haust datt ég niður á bloggsíður hannyrðakvenna. Það er sýnilega prjónaáhugi í fleiri löndum en á Íslandi. Ég læt hér fylgja með tengil inn á síðu þar sem er langur listi af bloggsíðum. Norræn prjónablogg

slysó

Við mæðgurnar eyddum síðdeginu á slysavarðstofunni á FSA. IH tókst að brjóta á sér eina tá í stórfiskaleik í morgun (hljóp á vegg). Hún haltraði um í skólanum fram yfir hádegi en þá var fóturinn á henni orðinn svo blár og bólginn að við ákváðum að láta líta á hann. Það var potað og myndað og svo fékk hún plástur á tána! Þetta tók þennan hefðbundna tíma eða hátt í tvær klukkustundir. Merkilegar þessar biðstofur á sjúkrastofnunum. Þar liggja frami staflar af slúðurblöðum. Síðast þegar ég beið þarna voru blöðin flest á norsku eða dönsku, en nú bar svo við að þarna voru staflar af Mannlífi og öðru íslensku slúðri en ekkert blað yngra en 2 ára. Ég stytti mér biðina með því að lesa lífsreynslusögur í Vikunni í hálfan annan klukkutíma. Vikan er annars lítið annað en endalausar megrunarsögur og uppskriftir af megrunarkúrum! Ég brunaði með IH í bæinn á smábílnum, stundum er gott að vera með frestunaráráttu því við vorum ekki búin að taka snjódekkin undan bílunum eins og svo margir aðrir. Það þu...

Gullkorn

"Mamma, ég er með höfuðverk í fótunum" sagði Jóhann Gylfi í kvöld dauðþreyttur og líka með smá höfuðverk í höfðinu. Mamma vonar bara að hann sé ekki að verða veikur!!

Reykjavíkurferð

Við skruppum til höfuðborgarinnar um helgina, öll fjölskyldan. Á þessum árstíma á fólk varla annað erindi milli landshluta en fermingar og við vorum boðin í eina slíka á laugardag. En þar fyrir utan fórum við í einar sex heimsóknir (mislangar að vísu), ráfuðum um tvær stórverslanir auk Kringlunnar og fórum í sund. Þess utan fundum við hjónin okkur tíma á sunnudagsmorguninn til að fara í langan labbitúr um Þingholtin og Kvosina sem var ákaflega hressandi og varla nokkur maður á ferli. Bara endurnar og álftirnar á tjörninni auk fleiri fuglategunda, þ.á.m. æðarfugla sem var ósköp heimilislegt að heyra úúúúa í morgunkyrrðinni. Við gistum á Sóleyjargötunni eins og svo oft áður en fengum því miður ekki stóru íbúðina þannig að heimasætan hélt til annarsstaðar. Ég heiti því jafnan að fara aldrei aftur í Kringluna þegar ég kem út þaðan en í þetta sinn var það yngri kynslóðin sem vildi endilega fara þangað á laugardaginn. Við auðvitað létum freistast á Kringlukastinu og keyptum nokkrar buxur á J...

Blaður

Æi, ég henti þessu rusli bara út sem ég var að reyna að setja inn í gær og gekk ekki sem skyldi. Það koma alltaf einhverjar skrítnar meldingar. Ég var búin að skrifa langan texta um ráðningarmál á ríkisútvarpinu, eftir að hafa hlustað með öðru eyranu á Kastljósið í kvöld. Svo strokaði ég bara allt saman út. Ég ætti nú ekki annað eftir en að fara að tjá mig um pólitík hér á þessari síðu. Var að klára að lesa yfir íslenskuritgerðir sem unglingarnir voru að klára í kvöld (á síðustu stundu!). Þeir eru að verða nokkuð liprir í að setja saman skiljanlegan texta en eru að glíma við alveg sömu vandamál og móðir þeirra í stafsetningu. Hm...

páskarnir að baki

Þá eru páskarnir að baki. Mætti í vinnuna fersk í morgun klukkan átta og sat námskeið til klukkan fimm, skrapp svo í bæinn eina snögga ferð og kom heim um hálf sjö og var frekar þreytt og pirruð á framtaksleysinu við húsverkin. En krakkarnir voru öll heimavið í dag. Mér láðist alveg að hringja heim og biðja um uppvask og fleira. Öðrum unglingnum brá svo að rúmið hans var samstundis komið fram á gang og hann uppi með kústinn og gólftuskuna. En þetta líður yfirleitt fljótt hjá og það sem fer fram á gang í tiltektaræðinu er oft ansi lengi inn í herbergi aftur. Nú ætla ég ekki að kvarta meira yfir börnunum mínum. Ég var farin að halda að ég væri að veikjast. Er búin að vera svo ofboðslega "þreytt" undanfarna daga. Þurfti að leggja mig seinnipartinn í gær og fyrradag líka!! Komst svo að því áðan að líklega eru þetta eftirköst og fylgikvillar súkkulaði og sykuráts um páskana. Þannig að nú er bara að bretta upp ermarnar og snúa sér aftur að grænmetinu. Við vorum annars ansi dugleg h...

kisa og kráka

Fórum með hana Blíðu okkar í morgun til dýralæknisins og sóttum hana aftur seinnipartinn. Hún er ennþá ansi slæpt og hefur sofið eiginlega alveg síðan hún kom heim. Þetta ástand varð heimasætunni ofviða á endanum og ég hugsa að hún muni ekki leggja fyrir sig í dýralækningar framtíðinni. Ég sé að ég hef skrifað smávegis um líkamsræktaráhughuga húsbóndans. Ég fann loksins æfingabuxurnar mínar og mætti í body balance í síðustu viku. Ákvað að fara rólega af stað en þetta er tekur samt á þó engin séu hoppin eða hlaupin. Í gær gat ég haldið jafnvægi í ca 3 sekúndur í "krákunni". (Ég ætla ekkert að reyna að útskýra það frekar). Við erum svo að spá í það systurnar að mæta aðeins fyrr í næsta tíma og fara í tækjasalinn til að hlaupa. Eða eitthvað. Nú verð ég að fara að horfa á Gettu betur. Ég er bara svolítið hrædd um að Borgarholtsskóli vinni þó að ég haldi að sjálfsögðu með MA.

Kisulóra

Nú er blessunin hún eyrnalöng okkar, sem við fengum fyrir jól, að verða fullorðin, a.m.k. komin á unglingsár. Við ætlum að byrgja brunnin áður en köttunum fjölgar á heimilinu og láta taka hana úr sambandi. Ég hringdi því í dýralækni í gær og var sagt að ég gæti komið með hana í dag. Við IH brunuðum svo í bæinn áðan. En af því að ég hef svoddan gullfiskaminni á stundum þá var ég alveg búin að gleyma því að ég hefði átt að fara með köttinn fyrir hádegi ekki seinnipartinn!! Stundum þyrfti ég að vera með minnisbókina hangandi um hálsinn (og penna með) En við gerum aðra tilraun í fyrramálið. Það eina góða er að kisa er búin að fá góðan bíltúr án þess að fylgi mjög slæmar minningar.

Kleinubakstur

Heimilistölvan í viðgerð eina ferðina enn þannig að núna sit ég við borðstofuborðið með ferðatölvu fyrir framan mig. Við erum víst með þráðlausa nettengingu og hvaðeina. Svo nú ætla ég að bæta úr bloggleysi síðustu viku. Örverpið gafst upp fyrir Pokemon inni í hjónaherbergi og er sofnaður. Heimasætan er að æfa sig á klarinettið sitt, í stofusófanum. (og horfa á sjónvarpið í leiðinni!!). Það er ekkert hægt að gera að hennar sögn en bræður hennar ráku hana frá tölvunni áðan og lokuðu að sér. Svona er lífið í páskafríinu. Ég brýt allar reglur um mat og tölvur með glas með ískaldri undanrennu á hægri hönd og nýbakaðar kleinur á diski á þá vinstri (nú ætti ég að vita betur, hellti kaffi yfir lyklaborðið á tölvunni hans Úlfars um daginn!!). Þó ég segi sjálf frá þá geri ég skrambi góðar kleinur. Svo reyni ég að jafna óhollustuhallann með því að hafa undanrennuna með. Mér hefur aldrei fundist undanrenna neitt serstaklega góð en um daginn þegar bleiku fernurnar birtust í búðinni þá féll ég ky...

GSM

Þarna er hann kominn síminn sem ég ætla að fá mér. Skjárinn er líka spegill!!

Handstúkur

Tengdamóðir prjónaði þessar handstúkur og gaf mér um daginn. IH fékk líka eins en bara svartar og hvítar en þessar eru brúnar og hvítar. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta hlýjar manni. Ég er búin að vera að monta mig af þeim í vinnunni og ákvað bara að monta mig líka hér.

Morgunroði í Eyjafjarðarsveit.

Svona var nú fallegt skýjafarið á föstudagsmorguninn um átta leytið þegar við IH vorum á leiðinni í vinnu/skóla. Ég er að æfa mig á því að taka myndir á stafrænu myndavélina og loksins er ég búin að læra hvernig á að setja þær inn í tölvuna. Þetta er allt að koma. Fjallið heitir Staðarbyggðarfjall og ef ég fer rétt með sést þarna í Uppsalahnjúk. Það er á áætlun sumarsins að ganga þarna upp.