Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá október, 2005

snjókoma

Ég ætlaði að setja inn mynd af JG að moka pallinn en það gengur eitthvað brösulega. Heimasætan er einhversstaðar á leiðinni vestan úr Hrútafirði. Ég veit ekki annað en allt gangi að óskum. Það þurfti að senda bíl til að ná í hópinn því að áætlunarferðin fór ekki úr Reykjavík í morgun vegna veðurs. Ég fór að leita að snjóskóflunum áðan eftir að hafa þurft að ösla snjóinn í hné fyrir utan útidyrnar. JG er kominn inn. Farinn úr blautu fötunum. Hann var ekki klæddur til útiveru enda búinn að vera inni á í næstum þrjár vikur. Hann er annars orðinn alveg frískur og fékk þessvegna að moka í smástund, en núna þarf hann "aðeins" að komast í tölvuna.

Tehettur

Var að klára þessar tvær. Sú röndótta átti að verða afmælisgjöf en ég er miklu ánægðari með þessa einlitu. Hún bara ekki í réttum lit þannig að ég gróf dýpra í garnkörfunni og fitjaði upp á einni enn. Þær eiga kannski eftir að verða fleiri

Sunnudagskvöld

Heimasætan er komin með kvíðasvip á andlitið. Búin að raða og endurraða í ferðatöskuna, eða töskurnar öllu heldur því "flugfreyjutaskan" sem bróðir hennar lánaði henni sprakk þegar stígvélunum var skellt ofan á öll fötin og annað sem verður að hafa með. Hún er að fara á Reyki í fyrramálið og kemur ekki heim fyrr en á föstudaginn aftur. Spennan fyrir þessarin ferð er búin að vera ansi mikil undanfarið en núna er hún orðin pínulítið stressuð. Ég vona bara að hún sofi eitthvað í nótt blessunin. Ég fer vonandi á Reyki eftir ár með umsjónarbekkinn minn. Hef verið þar tvisvar sinnum og í bæði skiftin var mjög gaman. JG er allur að hressast af lungnabólgunni og fer á leikskólann á morgun til prufu, til 14:08 þegar lokar. Ég er ekki búin að ákveða hvort ég fer í Sjallann á morgun á fundinn en ég fer heim úr vinnunni. Árið 1985 var ég að vinna vaktavinnu á Kristnesi þennan dag, þá var boðið upp á sherrystaup á vaktaskiptunum í tilefni dagsins. Mér fannst það bara fínt.

"Ég er með plástur"

Eins og veðrið hefur verið leiðinlegt í haust er heilsufar fjölskyldunnar búið að vera enn verra. Við enduðum læknisheimsóknina í dag á lungnamyndatöku og blóðprufu uppi á FSA. JG stóð sig eins og hetja og fölnaði ekki nándar nærri eins mikið og pabbi hans, (sem hélt á honum) í blóðprufunni. Hann er semsagt með lungnabólgu, en búinn að fá viðeigandi lyf og fer vonandi að rétta úr kútnum.

vetur

Heiðskír himinn blár, hvítur og roðagullinn. Snjór yfir öllu, frost og stillt. - Allir út að anda að sér hreinu köldu lofti sem ilmar af snjó, frosti og vetri. Það er ekki að vita nema að veturinn sem kom í gærkvöldi verði orðinn aftur að haustrigningu í fyrramálið. Ein í svartsýniskasti. Hugsa jákvætt.... Hugsa jákvætt...

Hálka

Fyrsti hálkuakstur haustsins. Fyrsta (segi og skrifa) ferðin í ræktina í haust. Lendi ég þá ekki á eftir þrjátíu hjóla trailer flutningabíl, upp brekku. Svo hægði hann alltaf meira og meira á sér og ég áttaði mig allt í einu á því, komin alveg aftan á hann, að hann hafði sig ekki upp og var farinn að renna ískyggilega til hliðar að framan. Til allrar lukku fyrir mig og farþegana fjóra var enginn umferð á móti svo mér tókst að skjótast framhjá á mínum fjórhjóladrifna fjölskyldubíl. Sem er að sjálfsögðu í fjórhjóladrifinu þegar færðin er svona eins og hér þessa dagana. Slökuninn eftir body balance tímann fór alveg fyrir ofan garð og neðan því ég sá alltaf fj.. trailerinn fyrir mér, rennandi afturábak. Keyrði sveitt í lófunum heim, án óhappa.

Sjóhattar

Ég var minnt á það að ég hefði lofað að setja inn mynd af sjóhatti eins og þeim sem við vorum að selja á Handverkshátíðinni. Hér er heimasætan með einn sem dagaði upp hjá mér. (er örlítið gallaður). Til útskýringar þá ákvað kvenfélagið mitt að reyna nú loksins að nýta Handverkshátíðina til einhverskonar fjáröflunar og af því að þemað var hafið þá fengum við þessa "brilljant" hugmynd að sauma sjóhatta. Markmiðið var líka í og með að vera með þannig varning að við værum ekki í samkeppni við þá einstaklinga sem eru á sýningunni. Þeir urðu til í sumar í öllum regnbogans litum og seldust alveg prýðilega. Í leiðinni seldum við líka dagatölin okkar. En dagatalið fyrir árið 2006 kom snemma út að þessu sinni (fæst m.a. hjá mér).

Dagur

Nú er fyrsti í sameiningarkosningum á föstudaginn. Ég rakst á fréttasíðu sem m.a. segir mjög skilmerkilega frá öllum kynningarfundunum um sameiningarmál hérna í Eyjafirðinum. Ég mætti meira að segja á einn þeirra, svona til að vera viðræðuhæf. dagur.net er fín fréttasíða, ekki skemmir nafnið og letrið í hausnum vekur upp gamlar góðar minningar.

Hóllinn

Ég var búin að lofa einhverjum að setja inn mynd af sælureitnum okkar. Framkvæmdirnar rigndi niður með haustinu en áætlunin var upphaflega sú að búið yrði að setja klæðningu utan á bæði húsin fyrir veturinn. Það náðist þó að taka til í kring fyrir snjóa. En svona leit þetta út í lok ágúst og hefur lítið breyst. Nota bene þá á eftir að setja "pósta" í gluggana á stóra húsinu þannig að þeir munu ekki líta alveg svona út. Og þetta hvíta er ekki klæðning heldur undirlag, eða eitthvað svoleiðis. Það sést þarna glitta í tvöfalda hurð sem snýr nokkrunvegin í suður og ég segi og stend við það að það er alltaf skjól undir þessum vegg hvernig sem vindur blæs.

Jamm og jæja

Það var alhvít jörð í morgun. Veturinn mættur á svæðið. Vetrarkápan, skósíð og þykkur trefill um hálsinn, fann enga vettlinga? Lopapeysan innanundir, rennt upp í háls. Litla barnið hóstaði svo að það munaði ekki miklu að snúið væri við í útidyrunum. En hvað um það. Klukkan rúmlega fimm fór ég úr vinnunni með kápuna á handleggnum og trefilinn flaksandi á eftir mér í sunnangjólunni. Lopapeysan "frárennd". Svo fór ég og hengdi út á snúrur, sem þýðir að það hefur ekki rignt í dag. Hm... Mér er alveg hætt að lítast á hvað ég blogga sjaldan.....