Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá 2009

Langsjal úr einbandi

Í fyrrasumar keypti ég tvær hespur af einbandi frá Þingborg til að prjóna þetta sjal. Mjög skemmtilegt íslenskt band. Sjalið hefði mátt vera aðeins lengra en ég ætla að punta mig með því í leikhúsi í kvöld.

Opart 2

Mér fannst svo skemmtilegt að prjóna fyrra teppið að nú er ég búin með annað. Það er töluvert minna og úr kambgarni. Til að fá rétt form á teppið þarf að strekkja það til og kom þá "hurðin" sem er geymd úti í bílskúr í góðar þarfir. (Ég er búin að kaupa garn í eitt teppi í viðbót.

Öskudagur

Einn vígalegur að morgni öskudags. Hann fór í bæinn ásamt tveimur bekkjarsystrum sínum og söng, "hún amma mín gamla" og fleira. Kom heim með haldapoka af sælgæti sem er blessunarlega búið núna.

Gleðilegt ár 2009

Eftir að hafa dottið inn á Facebook um jólin er ég loks komin aftur heim og held ég haldi bara áfram að skrifa hérna þegar mér dettur eitthvað skemmtilegt í hug. Fésbókin er annars skrítið fyrirbæri en tilgangurinn er ekki alveg ljós enn. Bloggið færði mér nánari tengsl við frænkurnar mínar og kannski á þetta eftir að tengja mann meira við gamala vini sem eru stundum bæði langt og stutt í burtu. Það er bara svo margt annað sem mig langar til að gera en að hanga í tölvunni. Áramótaheitið í ár er alveg klassískt. Ég ætla að hreyfa mig mikið og reglulega, eða halda áfram að gera það. Ég labba í vinnuna... á hverjum degi, alla leið og heim aftur. Hm... Svo ætlum við hjónakornin að halda áfram að stunda fjallgöngur. Eins og sjá mátti á jólakortinu fékk bóndinn "bakteríuna" í sumar og það er um að gera að hamra járnið meðan það er heitt, segi ég. Enda gaf ég honum forláta gönguskó í afmælisgjöf og útivistarfatnað í jólagjör m.m.