Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá desember, 2010

30. desember 2010

Mikið er gott að geta með góðri samvisku slakað á í nokkra daga. Enda "af hverju ætti maður svosem alltaf að vera að gera eitthvað" svo ég vitni í góða vinkonu. Ég var að hugsa um að skrifa smá samantekt á árinu sem er nú næstum liðið. Fannst til að byrja með ekki mikið hafa á dagana drifið en við nánari athugun... Við uppgötvuðum að einkadóttirin er orðin fullorðin, hún er til dæmis farin að keyra bíl eins og hún hafi aldrei annað gert. Annar tvíburinn útskrifaðist með stúdentspróf í vor og er nú á vinnumarkaði í vetur meðan hann hugsar næstu skref. Litli prinsinn var kúasmali í sveit í sumar og virtist lítið sakna foreldra sinna. Hann er líka að verða stór. Fékk ekkert dót í jólagjöf (utan einn tölvuleik). Við sjáum fram á að verða ein í kotinu innan fárra ára. Við fögnuðum 25 ára stúdentsafmæli með stæl í vor og alltaf finnst manni merkilegt hvað skólafélagarnir hafa elst lítið/mikið.  Snemmsumars (2. júní 2010) voru líka tuttugu ár síðan við giftum okkur við JÓH á laug...