Fara í aðalinnihald

Færslur

Uglan

Hún sveif framhjá bílnum þegar við vorum á leiðinni heim í dag. Með hægu vængjataki. Ekki stór búkur miðað við vænghaf og það er eins og það vanti á hana höfuðið. Skrítinn fugl, uglan meðal annarra íslenskra fuglategunda. Ég man aldrei eftir að hafa séð uglu þegar ég var barn nema snæugluna í Sædýrasafninu. En núna rekst maður á þær annað veifið hérna í firðinum. Þær sitja á girðingarstaurum og horfa á mann tortryggnar á svip um leið og þær breiða út vængina og líða á braut. Þær fljúga hljóðlaust.

Þeir eiga afmæli

Hér er mynd af afmælisbörnum dagsins og gærdagsins. Myndin er tekin um páskana og líklega eru þeir að horfa á ... fótbolta??? Ég knúsaði pabba í morgun í vinnunni og af því að mamma er að vinna er ég búin að bjóða honum í mat í kvöld. Það er eins gott að það verði eitthvað almennilegt að borða. :) Unglingarnir eru rétt ókomnir heim úr skólaferðalaginu. Við höfum hvorki heyrt hósta né stunu frá þeim alla vikuna og ég er farin að hlakka til að heyra ferðasöguna.

Snúrustaurar og straujárn

Feng sui fræðin segja manni ýmislegt um jafnvægi hlutanna. Ef að ég væri innvinkluð í þessi fræði væri ég örugglega flutt út því lausleg greining segir að eldhúsið sé á versta stað og hjónaherbergið líka! Svo er ég með stóran spegil á móti útidyrum (að vísu forstofuhurð á milli) sem er líka mjög slæmt fyrir feng suið í húsinu. Mér líður samt frekar vel í húsinu mínu, þó að það sé allt í drasli (óreiða er líka slæm fyrir feng suið), eins og núna og það eigi eftir að skrúfa nokkra gólflista. Og fjölskyldan er bara í þokkalegu jafnvægi, takk fyrir. Annars settist ég niður við tölvuna núna til að taka mér pásu frá þvottinum sem af einhverjum dularfullum ástæðum hrúgast upp. Loksins er hægt að þurrka úti á snúrum og þegar óhreinatauskarfan er að verða tóm er borðstofuborðið orðið fullt af hreinum þvotti. Sumir myndu segja að þetta væri spurning um skipulagningu og ganga frá þvottinum jafnóðum og hann er orðinn þurr. Mér finnst bara miklu skemmtilegra að hengja út þvott heldur en taka hann ...

"kalt er honum á tánum"

Þessi sumarnágranni minn var að leita sér að æti úti við snúrustaur áðan. Látið ekki blekkjast af græna litnum. Það var alhvít jörð í morgun og hefur verið éljagangur af og til í dag.

borgarísjaki

Það er hálf kuldalegt að litast um hér í Eyjafirðinum í dag. Þessi mynd er tekin úti á Árskógssandi á annan í hvítasunnu og líklega hefur ísjakinn breyst eitthvað á þeirri viku sem er liðin síðan. En það er ekkert sumarlegra og meiri snjór í fjöllum ef eitthvað er.

Júróvísíón

Sem sérlegur aðdáandi Júróvísíón má ég til með að tjá mig örlítið hér um keppnina í ár. Eins og aðrir sat ég spennt við sjónvarpið í gærkvöldi og horfði opinmynnt á íslenska lagið. Mér hefur nú fundist þetta lag frekar flott og Selma sérlega smart í videóinu í rauða síðpilsinu með bogann en .... Það er bara ekki nóg að vera smart í rauðu það skiptir pínulitlu máli hvernig efnið er klippt niður og saumað saman. Mér fannst hún vera eins og tíu ára stelpa á náttfötum en konan er bara komin hátt á þrítugsaldur og eins og Páll Óskar sagði einhversstaðar í dag þá er hún með flottar línur og á að sýna það. Heimasætunni varð bara að orði að þetta væri alveg eins og Abbabúningurinn sem hún og vinkona hennar skrýddust á síðustu skólaárshátíð! (hún er ellefu ára nb). Ég læt þetta nú ekki á mig fá og sest hamingjusöm fyrir framan sjónvarpið annaðkvöld, held bara með Noregi. Nemendur mínir voru sammála um að það væri flottasta lagið í undankeppninni. Við erum að spá í að elda pizzu. Það er alhvít j...