Fara í aðalinnihald

Færslur

komin heim...

Það er að verða langt á milli skrifa hjá mér. Ég verð að bæta úr því eða hætta þessu alveg. Hm.. Nú er ég rétt dottin inn úr dyrunum eftir fimm daga dvöl á Reykjum í Hrútafirði með krakkana mína í 7. bekk. Mjög skemmtileg vika í alla staði. Ég er að vísu hálf lúin og fer örugglega snemma í háttin í kvöld. Ætla að njóta þess að liggja í leti fyrir framan sjónvarpið og horfa á Taggart. Fjarvera húsmóðurinnar hefur ekki breytt miklu hér á heimilinu. IH hefur sýnilega tekið til hendinni í þvottahúsinu og sjænað þar til. Því miður finnst henni ekkert gaman að vaska upp eða ganga frá í eldhúsinu.

Helgi í október

Það er kominn tími til að láta frá sér heyra aftur. Heimilistölvan er búin að vera í viðgerð. Hún kom skárri til baka en nú vantar sárlega nýjan skjá. Það er orðið svo ansi mikið myrkur á þessum gamla. Ég bara bíð og vona. Núna laumaðist ég í tölvuna hjá elsta syninum, sem er í vinnunni í augnablikinu. Sá næstelsti er að vaska upp. Heima, altsvo. Yngsti sonurinn er búinn að missa tvær tennur. Hann var í heimsókn hjá tannlækninum sem segir það alveg eðlilegt að foreldrar missi tökin á tannhirðunni þegar börnin eru orðin fjögur. (Hann á fjögur sjálfur). Það þarf nefnilega að gera við í þetta sinn. Við erum búin að ákveða að fara ekkert á Karíus og Baktus fyrr en þeir eru fluttir úr tönnunum hjá J.G. Föstudagur í dag. Lauk við eitt verkefni í gær, á annað eftir sem ég þarf að ljúka fyrir sunnudagskvöld. Veit ekki alveg hvernig það á að takast með alla stórfjölskylduna í mat á morgun. Svona er að geta ekki verið til friðs og þurfa sífellt að vera að finna upp á því að gera eitthvað. (Með ...

Ein lítil tönn

Gerðist á leikskólanum í dag. Hann var heppnari en stóra systir sem, á sínum tíma, gleypti fyrstu tönnina sem datt.

Fjallganga

Það var útivistardagur í dag og gengið á Staðarbyggðarfjall. Myndin er tekin "til baka" út fjörðinn. Veðrið var alveg frábært og göngufærið líka.

sultur og saftir

Við fórum í berjamó um helgina og í kvöld hafði ég mig í það að búa til saft úr öllum krækiberjunum sem tínd voru. Halldór var búinn að gera bragðpróf á berjum og kvað upp úr með að Svarfdælsku krækiberin væru öðruvísi á bragðið en þau sem tínd voru hér í framfirðinum. Ég ætlaði nú ekkert að hafa hátt um það að hafa farið út í Svarfaðardal að tína krækiber. Ég tíndi auðvitað líka og aðallega aðalbláber . Ég geri hrásaft og krakkarnir eru öll mjög sólgin í hana. Það urðu níu lítrar í kvöld. Uppskriftin er einföld: Krækiberjasaft Berin eru pressuð í þar til gerðri berjapressu sem sett er framan á hakkavél. (sem ég að vísu fæ lánaða hjá mömmu). Saftin síuð og mæld og í 1 lítra eru settar 2 msk af vínsýru og 4-500g sykur - leyst upp og sett á flöskur. Blandað með köldu vatni að smekk hvers og eins. Ég lofaði að setja inn uppskrift af Sólberjahlaupi . Venjulega þegar ég geri hlaup og það er sama uppskriftin sama hvort um er að ræða ribs, sólber eða hrútaber: Berin eru soðin í smávegis af va...

Syfja

Þegar íþróttaálfurinn vaknar á morgnanna (upp úr sjö) mætir hann kisu jafnan á ganginum og þau setjast niður saman smástund til að vakna almennilega. Hann spurði í morgun "mamma af hverju ferð þú alltaf fyrst á fætur?". Hm. Líklega er það vegna þess að ég þarf lengstan tíma til að taka mig til og svo þarf ég að hugsa um hann. Ég reyndi að svolítið að nota þessa spurningu til að ýta undir það að hann klæddi sig sjálfur en það er mjög erfitt snemma á morgnanna. Að vísu mætti ég heimasætunni fyrir sjö í morgun og þá var hún búin að fara í sturtu og var að slétta á sér hárið. Svo beið hún eftir því að fyrsti skóladagurinn á unglingastigi hæfist. Ég er að hlusta á útvarpið bakvið. JÓH og Óskar voru í einhverju fréttaspjalli í dag sem að ég missti af. Það er svo ansi gott að geta náð þessu eftir á. Á eftir þeim heyrði ég í Öbbu á Bjargi og verð að minnast á að á mánudaginn byrja ég í ræktinni og nú er það bara harkan sex næstu tólf vikur. Svo er það Akureyrarvakan á morgun. Það er ...

fjallganga

Húsbóndinn fór á sjó í morgun til að draga þorsk í soðið. Á meðan ákvað ég að drífa liðið í fjallgöngu. Fjósamaðurinn sem er heima núna nennti ekki á fætur en heimasætan var alveg tilbúin í slaginn við fórum því bara þrjú og pabbi keyrði okkur svona fyrsta spölinn. Þegar til kom langaði íþróttaálfinn ekkert í fjallgöngu og var með ógleði, verki í fótunum og óyndi mikið sem ágerðist eftir því sem ofar dró. Við komumst því aldrei á áfangastað sem var Grísarárdalurinn en snerum við uppi við efstu girðingu. Ég ákvað að fara aðra leið til baka og við lentum í heilmiklum svaðilförum í mýrarsundum (þá varð að bera íþróttaálfinn) og ofurháu grasi. Við áðum svo við Stóru steina og fengum okkur nesti stuttu áður en við komum á kunnugar slóðir en fundum svo þessi fínu bláber sem bíða betri tíma, en ekki mjög lengi. (Segi ekki hvar ég fann þau)). Myndin er tekin á leiðinni uppeftir.